Morgunblaðið - 14.09.2008, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 14.09.2008, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 47 ✝ Móðir mín og frænka, ÞORBJÖRG MÖLLER LEIFS, Hávallagötu 17, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn 7. september. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 16. september kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Geðhjálp eða aðrar líknarstofnanir. Leifur Leifs og frændsystkini. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og sambýlismaður, GUNNAR JÓHANNSSON, Lindargötu 23, Reykjavík, áður til heimilis í Vestmannaeyjum, lést sunnudaginn 7. september. Útförin fer fram frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 20. september kl. 14.00. Klara Gunnarsdóttir, Víðir Óskarsson, Elsa Gunnarsdóttir, Björn Indriðason, Gunnar Hallberg Gunnarsson, Hrönn Harðardóttir, barnabörn, barnabarnabörn, Þóra Gunnarsdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, KRISTÍN MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR, Langholti 11, Akureyri, lést aðfaranótt föstudagsins 5. september á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir sendum við dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð, lyflækningadeild F.S.A., Heimahlynningu Akureyrar auk allra þeirra er studdu hana í veikindum sínum. Sigurður Arnar Styrmisson, Arnfríður Ólafsdóttir, Birgir Rafn Styrmisson, Bára Ingjaldsdóttir, Margrét Sigríður Styrmisdóttir, Jón Ólafsson, Sigurlína Hólmfríður Styrmisdóttir, Björgvin Árnason, Sigvaldi Már Guðmundsson, Agnes Jósavinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVERRIR HARALDSSON læknir, Selbrekku 6, Kópavogi, lést á heimili sínu mánudaginn 8. september. Útförin verður gerð frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 17. september kl. 11.00. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Hjördís Rósa Daníelsdóttir, Ásgeir Sverrisson, Helga Sigurðardóttir, Svandís Sverrisdóttir, Kristján Gíslason, Hasse Svedberg, Annika Svedberg, Kristín Sverrisdóttir, Jón Magnús Jónsson, Arnbjörg Sverrisdóttir, Robin Svendsen, Jóhann Sverrisson og barnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR EINAR SIGURBJÖRNSSON, Garðvangi, Garði, áður til heimilis að Hringbraut 98, Keflavík, lést á Garðvangi, þriðjudaginn 9. september. Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 17. september kl. 14.00. Sigurbjörn Ólafsson, Gerður Ólafsdóttir, Hrólfur Karlsson, Eggert Ólafsson, Sólrún Valsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Kristín MargrétSigurðardóttir fæddist á Sjávar- bakka í Arnarnes- hreppi 23. nóvem- ber 1929. Hún andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Hlíð á Akur- eyri aðfaranótt 5. september síðastlið- ins. Foreldrar hennar voru Sig- urður Helgi Jóhannsson, f. á Syðri-Haga á Ár- skógsströnd 25. ágúst 1899, d. 25. mars 1977, og Jónína Steinunn Magnúsdóttir, f. á Gili í Öxnadal 25. nóvember 1901, d. 4. maí 1978. Árið 1950 giftist Kristín Styrmi Gunnarssyni stýrimanni og skip- stjóra, f. 4. nóvember 1925, d. 12. ágúst 2004. Foreldar hans voru sr. Gunnar Benediktsson rithöf- undur, f. 9. október 1892, d. 26. ágúst 1981, og Sigríður Gróa Þorsteinsdóttir, f. 31. ágúst 1891, d. 7. september 1982. Börn Krist- ínar og Styrmis eru: Sigurður Arnar, f. 8. janúar 1949, maki Arnfríður Ólafsdóttir, f. 1950. Birgir Rafn, f. 1. nóvember 1950, maki Brynhildur Bára Ingjalds- dóttir, f. 1. febrúar 1951. Mar- grét Sigríður, f. 20. febrúar 1954, maki Jón Ólafsson, f. 1946. Álf- heiður Jónína, f. 16. júlí 1956, d. 29. ágúst 1977, maki Guðmundur Sigvaldason, f. 14. apríl 1954. Sig- urlína Hólmfríður, f. 6. október 1962, maki Björgvin Árnason, f. 2. sept- ember 1962. Barna- börnin eru 14 og barnabarnabörnin eru 13. Fyrir átti Styrmir Guðnýju, f. 19. september 1946, maki Ásgeir Ás- geirsson, f. 8. apríl 1948. Mestan hluta ævi sinnar helg- aði Kristín líf sitt fjölskyldu sinni og afkomendum þeirra. Árið 1984 veiktist hún af hjartasjúk- dómi og hin síðari ár hrjáði hana oft mikill heilsubrestur auk þess sem hún annaðist eiginmann sinn þar sem hann átti einnig við veik- indi að stríða. Styrmir lést hinn 12. ágúst 2004. Kristín var víðlesin kona og eitt af hennar helstu áhuga- málum var lestur bókmennta og ljóða. Þessari þekkingu miðlaði hún til barna sinna og afkomenda þeirra. Kristín hafði sérstakt yndi af barnabörnum sínum og sýndi þeim ótakmarkaða ástúð sem var þeim ómetanleg. Útför Kristínar fór fram frá Höfðakapellu á Akureyri 12. september. Elskuleg móðir mín er látin. Oft á tíðum var lífsganga hennar og heilsa þyrnum stráð. Með þrjósku, trú og von hélt hún sinni göngu alltaf áfram. En vissulega voru líka marg- ar bjartar og góðar stundir sem hún nýtti vel. Synir mínir nutu mikið nærveru ömmu sinnar og sinnti hún þeim af slíkri ástúð, umhyggju og natni að engin orð geta lýst því. Ekki man ég hversu oft ég þurfti að flytja hana í skyndi á Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri eða hversu oft ég var næturlangt yfir henni, þar sem talið var endalokin væru hugsanlega að nálgast. Baldvin yngsti sonur minn var fermdur hinn 5. apríl síðastliðinn. Móðir mín hélt sínu striki og mætti til kirkju, fór til altaris og sat hans veislu, þrátt fyrir veikindi sín. Degi síðar flutti ég móður mína á sjúkra- hús í síðasta sinn. Þetta voru erfiðir tímar. Fyrsta barnabarn mitt kom í heiminn aðfaranótt 9. maí. Það er í mínum huga eins og móðir mín hafi fengið sinn síðasta kraft þegar hún fékk tækifæri til að sjá sonardóttur mína sem ber nafn hennar. Móðir mín fékk tækifæri til að kyssa enni litlu stúlkunnar og strjúka blíðlega yfir vanga hennar. Það var henni mikils virði og sem ljós og birta í minni sorg. Ég hugsa um mynd þína, hjartkæra móð- ir, og höndina mildu, sem tár strauk af kinn. Það yljar á göngu um ófarnar slóðir þó yfir sé harmþrungið rökkur um sinn. Ljósið er slokknað á lífskerti þínu, þú leiddir mig örugg á framtíðar braut. Hlýja þín vakir í hjartanu mínu frá hamingjudögum, er fyrrum ég naut. Minningarljósið á lífsvegi mínum lýsir upp sorghúmið, kyrrlátt og hljótt. Höfði nú drúpi’ ég hjá dánarbeð þínum þú Drottni sért falin, ég býð góða nótt. (Hörður Björgvinsson.) Þín dóttir Sigurlína Hólmfríður. Elsku amma, nú ertu komin til afa og Heiðu, dóttur þinnar sem þú saknaðir svo mikið. Það er alltaf sárt að sjá á eftir þeim sem manni þykir vænt um, en gott er að hugga sig við það að þú ert nú hjá góðu fólki og þér líður vel. Við systurnar þökkum þér kær- lega fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur og alla væntumþykjuna sem þú sýndir okkur, mökum okkar og börnunum. Við áttum margar glaðar stundir hjá þér þegar við vorum smástelpur og oft espaðir þú upp í okkur prakkarann. Farið var í dúkkuleik í eldhúsinu, eldaður plat- matur handa þeim og alltaf þóttist þú borða með okkur. Í stiganum var farið í leiki, endalaust hoppað upp og niður hann en aldrei skammaðir þú okkur eða baðst um að við hefðum lægra. Í kjallaranum voru allskyns gull sem gaman var að gramsa í og gömul föt til að máta. Við eigum ykk- ur afa svo margt að þakka og þá sér- staklega fyrir að eignast pabba okk- ar, sem er auðvitað besti pabbi og vinur í heimi. Takk, elsku amma, fyrir allt. Ástarkveðja, Kristín Margrét, Matthea og Álfheiður (Magga, Mattý og Heiða) Sigurðardætur. Elsku amma mín. Ég get ekki lýst þér í orðum. Fyrir mér varst þú ein besta manneskja sem til er í öllum heiminum. Ég hefði stundum viljað að þú hugsaðir meira um sjálfa þig en alla í kringum þig. Ég get heldur ekki með orðum lýst því hversu góð þú varst við mig. Þegar ég var lítill prakkari og kveikti á eldavélinni á hæsta straum þá skammaði afi mig en amma reidd- ist bara við afa og sagði að ég myndi aldrei gera svona. Hún hefði bara sjálf rekið sig í alla takkana. Ég gat verið stríðinn strákur en ég vissi alltaf að ömmu þótti mjög vænt um mig og vildi allt fyrir mig gera. Næstsíðasta daginn sem þú varst heima þá mættir þú í ferm- inguna mína, fórst með mér til alt- aris og mættir í veisluna mína, þrátt fyrir þín erfiðu veikindi. Daginn eftir fórstu á sjúkrahús og við tóku mikil og erfið veikindi. Amma mín, ég hef þá trú að þú sért hjá mér enn og munir hjálpa mér á mínum stundum. Ég er þakk- látur yfir að hafa átt þig að og mun aldrei gleyma þér. Ég veit nú að þú ert hjá Guði og loksins færðu þína verðskulduðu hvíld frá þínum erfiðu veikindum. Ó, Jesús bróðir besti og barnavinur mesti, æ, breið þú blessun þína á barnæskuna mína. (Páll Jónsson.) Ástarþakkir, þinn Baldvin Jónsson. Elsku, elskulegasta besta amman mín, núna ert þú dáin, dagurinn sem ég hef kviðið fyrir svo lengi er runn- inn upp. Ég hef átt mínar lífsins stundir með þér og hef svo oft sakn- að þín, amma mín. Þú hefur fært mér svo margt undursamlegt og stundirnar sem við áttum þegar ég var lítil eru gullið mitt sem ég ætíð kem til með að minnast og hugsa um með ást og gleði í hjarta. Mannstu öll kvöldin sem ég fékk að sofa í af- arúmi þegar hann var úti á sjó. Þú kenndir mér allar bænirnar og manstu hvað við hlógum þegar þú útskýrðir Faðirvorið fyrir mér. Þú bjóst til sögu um strák sem þurfti að spyrja um allar meiningar, hvað þær þýddu og þannig kenndir þú mér á þinn góðlátlega og elskulega hátt hvað öll orðin þýddu. Enn bið ég bænirnar mínar og alltaf ert þú í huga mínum þá líka. Þú sagðir mér og kenndir svo margar skemmtilegar sögur, gafst mér svo fallegar minningar af lífi þínu, hvernig þú varst dugleg í íþróttum, dugleg að stökkva og hlaupa þegar þú varst lítil. Þú gafst mér líka margar fallegar minningar af mömmu og systkinum hennar, Sigga, Bigga, Heiðu og Sillu, ærsla- ganginum og leikjunum í þeim sum- ar sem vetur þegar þau voru lítil á Spítalastígnum. Fyrir rúmlega 2 ár- um fórum við í bíltúr og stoppuðum þar sem fæðingarbær þinn var, drukkum kaffi og spjölluðum um ævi þína. Ég skildi þá að þú ert sátt! Núna veit ég og skil hversu ótrúlegt ríkidæmi það er að hafa fengið að vera hjá þér, njóta af umhyggju þinni, gáfum, kunnáttu og ást. Önn- ur yndisleg minning er þegar ég var 4 ára og hjálpaði þér að flysja kart- öflurnar sem við sóttum út í garð skömmu áður. Ég sat á eldhús- bekknum og fékk að smakka á öllum kartöflunum áður en þú settir þær í pottinn. Þegar ég var 8 ára vildi ég læra að prjóna. Þolinmæði hefur aldrei verið mín stærsta dyggð, en þér tókst samt að kenna mér það ásamt því að hekla, sauma út og gera margvíslega aðra handavinnu sem ég er stolt af að kunna í dag. Börnin mín klæðast í dag peysum sem þú hefur prjónað handa þeim. Dreng- urinn minn Nökkvi mun minnast þín elsku amma og nafna þín hún Saga Kristín líka. Á þessari stundu hugs- um við til þín, skoðum allar mynd- irnar af þér við kertaljós og minn- umst þín með gleði og söknuð í hjarta. Kletturinn í lífi mínu er far- inn áfram til Guðs, furðulegt, elsku amma, að þú sért ekki í Langholti 11 til að taka á móti mér lengur, en þú ert hjá okkur og vakir yfir okkur með sömu varfærni og ást og áður, það veit ég. Þegar þú veiktist í hjart- anu í fyrsta skipti var ég lítið barn og laginu sem strákurinn söng um pabba sinn á sjónum breytti ég í lag um þig í huganum. Engin manneskja hefur nokkurn tíman vitað þetta, en þetta lag hef ég hugsað um og raulað í huganum frá þeim tíma. Ég vil láta þennan texta vera það sem fylgir þér frá mér, en elsku amma ég á eftir að minnast þín og sakna þín alltaf og þín verður minnst og þér verður þakkað fyrir allt sem þú gafst okkur um ókomin ár. „Ég sakna þín amma ég sakna þín heitt, án þín ég lítið er. Af því ég amma mín elska þig heitt …“ Þín dótturdóttir Elísabet (Lísa) Guðmundsdóttir í Svíþjóð. Kristín Margrét Sigurðardóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.