Morgunblaðið - 14.09.2008, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 51
AUÐLESIÐ EFNI
Mikill spenna er í
kosninga-baráttunni í
Banda-ríkjunum. John
McCain, fram-bjóðandi
Repúblikana-flokksins
nýtur aukins
stuðnings eftir að
hann kynnti
vara-forseta-efni sitt,
Söru Palin. Sumar
kannanir sýna McCain
með meira fylgi en
Barack Obama,
fram-bjóðandi
Demókrata-flokksins.
Obama hefur orðið
fyrir talsverðri
gagnrýni eftir að hann sagði
á fundi að það væri ekki nóg
að setja vara-lit á svín.
Svínið væri áfram svín.
And-stæðingar hans segja
þessi umm-mæli
ósmekklega árás á Palin.
Stuðnings-menn Obama
hafa rifjað upp að McCain
sagði það sama á
fundi fyrr á árinu
þegar hann vísaði til
Hillary Clinton sem þá
barðist fyrir því að
verða forseta-efni
síns flokks.
Palin var í viðtali
við ABC-sjón-
varps-stöðina í
vikunni. Hún hikstaði
í sumum svörum
sínum og þótti ekki
sýna mikla þekkingu
þegar hún var spurð
út í Íraks-stríðið.
Frétta-maðurinn þurfti
t.d. að útskýra fyrir Palin
kenningu Bush forseta um
fyrir-byggjandi stríð.
Sumir fjölmiðlar hafa
gagnrýnt Palin fyrir að veita
ekki viðtöl, en tvær vikur liðu
frá því tilkynnt var um
framboð hennar þar til hún
kom í viðtal.
Hörð kosningabar-
átta í Bandaríkjunum
Sarah Palin
Barack Obama
Stuðnings-menn skoska
lands-liðsins í fót-bolta voru
áberandi á götum Reykjavíkur í
vikunni. Ísland og Skot-land
kepptu á Laugar-dals-velli og
höfðu Skotar betur. Þeir skoruðu
tvö mörk en Íslendingar eitt.
Mark Íslands skoraði Eiður
Smári Guðjohnsen úr
víta-spyrnu.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari
íslenska liðsins var ekki sáttur
við að tapa leiknum, en hann
sagðist að mörgu leyti vera
sáttur við hvernig lið Íslands
spilaði.
Stuðnings-menn Íslands
höfðu vonast eftir að liðið næði
að fylgja eftir góðum leik við
Noreg, en sá leikur endaði með
jafn-tefli.
Tæplega 10.000 áhorfendur
horfðu á leikinn og voru Skotar
fjöl-margir í stúkunni. Þeir voru
líka áberandi á börum í Reykjavík
og drukku mikið af bjór.
Skotar gerðu góða ferð til Íslands
Morgunblaðið/G.Rúnar
Skotar Margir Skotar lögðu leið sína til Íslands og fögnuðu sigri skorska lands-liðsins í
fótbolta. Víða mátti sjá brosandi menn í skota-pilsum á veitingahúsum í höfuð-borginni.
Breska ferða-þjónustu-fyrirtækið XL
Leisure Group hefur verið úrskurðað
gjald-þrota. Sky-fréttastöðin sagði að
gjaldþrotið hefði áhrif á um 200
þúsund viðskipta-menn
fyrir-tækisins. Íslenskir fjár-festar
áttu hlut í XL Leisure. Gjaldþrot
félagsins hefur áhrif á fjárhagslega
stöðu Eimskips því á félaginu hvíldi
ábyrgð á láni upp á 27 milljarða sem
tekið var þegar Eimskip seldi XL.
Feðgarnir Björgólfur Guðmundsson
og Björgólfur Thor Björgólfsson og
fleiri fjárfestar lýstu því hins vegar yfir
áður en XL varð gjald-þrota að þeir
myndu kaupa kröfuna. Það þýðir að
Eimskip mun skulda feðgunum 27
milljarða. Óljóst er hvort þessari
skuld verður breytt í hlutafé.
Hluta-bréf í Eimskip hafa fallið mjög
mikið alla vikuna. Fyrir einu ári voru
hluta-bréf félagsins skráð á um það
bil 39, en eru nú skráð á 8.
XL Leisure
gjaldþrota
Morgunblaðið/hag
Um 2.400 nýjar óseldar íbúðir
standa auðar á
höfuð-borgar-svæðinu. Þetta er
niður-staða nýrrar könnunar sem
unnin var af Lands-bankanum. Ef
teknar eru með íbúðir sem byrjað er á
fer talan upp í 5.900. Fram-boðið á
nýjum íbúðum myndi duga þó að
engar nýjar íbúðir yrðu byggðar
næstu tvö árin.
Verð-mæti þessara 2.400 íbúða er
talið vera um 70 milljarðar. Ari
Skúlason, forstöðu-maður
fyrir-tækja-sviðs Lands-banka segir
að búið sé að byggja of mikið.
Margar
auðar íbúðir
Morgunblaðið/ÞÖK
Hús Margar íbúðir hafa verið byggð-
ar síðustu ár en sala er núna dræm.
Munur á
launum karla
og kvenna í
SFR jókst á
síðasta ári.
Árið 2007 var
þessi munur
14,3%, en í
nýjustu
könnun er þessi munur
17,2%. VR kannaði líka laun
félags-manna sinna. Munur á
launum karla og kvenna í VR
hefur ekkert breyst en hann er
12%.
Jóhanna Sigurðar-dóttir
félags-mála-ráðherra sagði
þessa niður-stöðu vonbrigði.
„Það veldur mér áhyggjum að
launa-munurinn sé meiri á
opinbera markaðnum en þeim
almenna.“
Þrjár nefndir eru starfandi á
vegum stjórn-valda sem eiga
að vinna gegn launa-muninum.
Aukinn
launamunur
Jóhanna
Sigurðarrdóttir
Lítið þokast í átt til
samkomu-lags í kjara-deilu
ljós-mæðra og ríkisins.
Ljós-mæður hafa gengið í
gegn um tvö tveggja daga
verk-föll og nýtt verk-fall er
boðað í næstu viku.
Árni Mathiesen
fjár-mála-ráðherra hefur
ákveðið að höfða mál fyrir
félags-dómi til að fá
upp-sagnir ljós-mæðra
dæmdar ólöglegar. Guðlaug
Einars-dóttir formaður
Ljós-mæðra-félagsins segir
að þetta sé eina útspilið sem
komið hafi frá ráðherranum í
deilunni. Alþingi breytti lögum
um kjara-samninga
opinberra-starfsmanna fyrir
átta árum, en breytingin
þrengir möguleika fólks til að
knýja á um kjara-bætur með
uppsögnum.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Verkfall Margir hafa lýst yfir stuðningi við kröfur ljós-mæðra.
Fer í mál við ljósmæður
„ÉG er ekki í
sjöunda
heldur
áttunda himni
með þennan
árangur,“
sagði Eyþór
Þrastarson
sund-maður
eftir að hafa keppt í 400
metra skriðsundi á
Ólympíu-móti fatlaðra í
Peking. Eyþór komst í úrslit
og hafnaði í 8. sæti. Hann
bætt eigið Íslands-met um
rúmar 13 sekúndur í
undan-rásum. Eyþór hefur
tekið stefnuna á verðlaun á
næsta móti eftir fjögur ár.
Fimm íslenskir fatlaðir
íþrótta-menn keppa á mótinu
Jóhanna Sigurðar-dóttir
félags-mála-ráð-herra fylgdist
með þeim.
Eyþór í
úrslitum
Eyþór Þrastarson
Netfang: auefni@mbl.is