Morgunblaðið - 14.09.2008, Side 56
56 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Prag
25. september
frá kr. 59.990
Helgarferð á einstökum tíma í Prag!
Nú er upplagt að skreppa til Prag og dekra við sig í aðbúnaði í þessari
einstaklega fögru borg. Bjóðum frábært sértilboð á Hotel Clarion
Congress sem er nýtt glæsilegt hótel sem opnaði í vor. Haustið í Prag
er einstakt og frábært að heimsækja borgina. Gríptu tækifærið og skelltu
þér til Prag og njóttu góðs aðbúnaðar í ferðinni. Ath. aðeins 10 herbergi
í boði á þessum kjörum.
M
bl
10
46
39
1
Verð kr. 59.990 **** - helgarferð
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði í 3 nætur á Hotel Clarion
Congress **** með morgunmat. Aukagjald fyrir einbýli kr. 19.000.
Frábært helgartilboð
Glæsileg nýtt hótel
Hotel Clarion Congress
* * * *
MEÐ hreinum, fallegum kúb-
ískum kubbum Rebekku Ingi-
mundardóttur, mögnuðum hljóm-
um Elísabetar Indru Ragnars-
dóttur, flottri, dularfullri lýsingu
Þórðar Orra Péturssonar og í leik-
andi skemmtilegri kóreógrafíu
heldur Marta Nordal utan um
þetta fyrsta leikstjórnarverk sitt í
atvinnuleikhúsi og gefur því
einkar glæsilegt heildarform.
Leikrit Þórdísar Elvu Þorvalds-
dóttur Bachmann er hins vegar
ekki beinlínis auðvelt eða borð-
liggjandi verk. Tilraun hennar til
að skrifa sakamálaleikrit sem velt-
ir upp öðrum hliðum og mannlegri
á þeim sakamálum sem skella á
okkur í hneykslisbylgjum fjöl-
miðlanna daginn út og inn er sann-
arlega skemmtilega djörf. Það er
þó á mörkunum að hægt sé að
taka trúanlegar þær ólíku hvatir
sem hún lætur búa innra með
Sævari (Björn Ingi Hilmarsson),
aðalpersónu verksins, né ástæður
fyrir því að eiginkona hans Fann-
ey (Sara Dögg Ásgeirsdóttir) held-
ur svona rígfast í hann eftir að
hún hefur komist að leyndarmáli
hans. En leikhús er töfrastaður og
hefði Birni Inga tekist að túlka
innri baráttu og fýsnir þessa
manns jafnvel og hann hreyfir sig
hefði sýningin fengið annan botn
og hljómmeiri. Þá hefði ef til vill
Sara Dögg fengið að njóta sín í
fleiri atriðum en átakaatriðum. Þá
hefði texti Þórdísar Elvu ekki
svona oft fallið flatur. Það hindrar
hins vegar ekki Theódór Júlíusson
í að gera persónur sínar spennandi
og dularfullar né Víði Guðmunds-
son í að búa til úr drengnum, dóp-
istanum lifandi persónu, alveg
lausa við klisjur.
En sennilega hefur glæsilegur
ramminn líka tekið of mikinn kraft
á þeim stutta æfingatíma er leik-
húsin iðka og ekki gefist tími til að
hlusta eftir þeim stöðugu grun-
semdum, ótta og eignarhaldstilf-
inningum sem búa reyndar undir
samtölum þeirra hjóna. Frásögnin
er ekki línuleg og einmitt í þeim
leik með tíma og framvindu býr
merkileg spenna í sambandi
hjónanna sem ekki heldur er reynt
að fylgja eftir í sýningunni.
Niðurstaða: Ytri glæsileiki sýn-
ingarinnar sem lýsir efnilegum
leikstjóra er, þegar upp er staðið,
á kostnað ekki síður efnilegs leik-
ritahöfundar.
Innihald og form
LEIKLIST
Borgarleikhúsið
Eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bach-
mann. Leikstjóri: Marta Nordal. Leik-
mynd og búningar: Rebekka A. Ingimund-
ardóttir. Tónlist og hljóð: Elísabet Indra
Ragnarsdóttir. Lýsing: Þórður Orri Pét-
ursson. Sýningarstjórn: Chris Astridge.
Leikarar: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Björn
Ingi Hilmarsson, Víðir Guðmundsson,
Theodór Júlíusson.
Nýja sviðið, 12. september 2008 kl.
20.00.
Fýsn
Hjón „Leikrit Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann er hins vegar ekki beinlínis auðvelt eða borðliggjandi verk.“
María Kristjánsdóttir
ÓVISSUFERÐIR hafa verið ákaf-
lega vinsælar á landinu undanfarin
ár. Í slíkar pakkaferðir býður nú
Sviðslistahópurinn 16 elskendur sem
samanstendur af sex leikurum og
fræðimönnum útskrifuðum úr
Listaháskóla Íslands.
Óvissuferðin byrjar með því að
verkefnastjóri Íkea-ferða býður þig
velkominn við innganginn og af-
hendir þér greiningarblað – þar sem
þér er gert að svara fimm spurn-
ingum sem greina hvers konar
ferðalög henti þér best. Ein spurn-
inganna er til dæmis: Hvað er frelsi
fyrir þér?! Og þá geturðu krossað
við einn valkost af fjórum: vatn,
frelsisstyttuna, frítíma og ást. Svo
ertu lentur á kynningu ferðaskrif-
stofunnar á sérstökum ferðum þar
sem hugmyndafræði „hins sænska
alþjóðlega húsgagnarisa IKEA um
magninnkaup og flatar umbúðir“ er
lögð til grundvallar.
Óvissuferðum lýsir maður ekki
nema ræna frá þeim sem fara næstu
ferð gleðinni yfir að uppgötva;
greina má þó frá því að mönnum
gefst kostur á ferðast til Miðaust-
urlanda, Kína, á þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum, Benidorm og Ind-
lands. Auk þess sem nokkrar
sjálfsafgreiðsluferðir eru á boð-
stólum. Ég fór til Indlands og Mið-
Austurlanda.
Óvissuferðin gerir áhorfandann
að þáttakanda og einn af leikurunum
þannig að það reynist erfitt, stund-
um ómögulegt, að fá fjarlægð, skoða
utan frá.
Óvissuferðinni er stjórnað af Aðal-
björgu Árnadóttur, Davíð Frey Þór-
unnarsyni, Evu Rún Snorradóttur,
Friðgeiri Einarssyni, Karli Ágúst
Þorbergssyni og Ylfu Ösp Áskels-
dóttur og eru þau öll hæfilega við-
vaningslegir en öruggir fararstjórar,
sem spila líkt og af fingrum fram út-
hugsaða endalausa flækjuna. Tvennt
er það sem er merkilegast við ferða-
lagið með þeim. Annars vegar að það
tekst að rjúfa fjórða vegginn milli
áhorfenda og leikara áreynslulaust;
aldrei þessu vant verður það ekki
vandræðalegt, áhorfandanum líður
ekki illa; það myndast samkennd í
hópnum og menn taka stöðugt svolít-
ið ruglaðir í ríminu hlæjandi þátt í
ferðalögum og ýmsum uppátækjum,
fara jafnvel að spinna sjálfir. Hins
vegar tekst líka að koma áhorf-
endum úr jafnvægi: á Indlandi var
mér ögrað til að taka afstöðu, í Mið-
austurlöndum var ég látin áþreif-
anlega finna fyrir hlutskipti ákveðins
samfélagshóps. Ferðalangar fá sem
sagt hlutverk og í þeim tækifæri til
að takast á við klisjur og eigin for-
dóma. Enginn upplifir allt sem er í
boði, ofbólgin innihaldslaus orð
ímyndarsamfélagsins festast ekki
við, þau renna hjá líkt og í veru-
leikanum.
Í óvissuferðinni hefði kannski
sumt mátt vera beittara, skýrara, til
dæmis leikurinn um „leiðtoga“ stór-
fyrirtækisins einkum þar sem þeir
hafa afhjúpað sig svo grimmilega
undanfarna mánuði og sá leikþáttur
hefði líka mátt vera styttri. En eftir
stendur að það var gaman þetta
kvöld og að leiklistardeild Listahá-
skólans er að útskrifa ekki sjálf-
hverfa heldur sjálfstæða og gagn-
rýna nemendur. Og það eitt og sér er
ákaflega gleðilegt.
Fararstjórar „Óvissuferðin gerir áhorfandann að þátttakanda...“
Út í óvissuna
María Kristjánsdóttir
LEIKLIST
Sviðslistahópurinn 16 elskendur
–16lovers@gmail.com
Eftir Sviðslistahópinn Leikstjórn, leik-
mynd, búningar, lýsing: Hópurinn
Sviðslistahópurinn: Aðalbjörg Árnadóttir,
Davíð Freyr Þórunnarson, Eva Rún
Snorradóttir, Friðgeir Einarsson, Karl
Ágúst Þorbergsson og Ylfa Ösp Áskels-
dóttir.
Eyjaslóð 16, miðvikudag 10. september
kl. 20.
ÍKEA-ferðir
FÉLAG sjálfstæðra kvikmyndaframleiðenda
var stofnað á miðvikudaginn og standa yfir 30
framleiðslufyrirtæki að félaginu. Því er ætlað
að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart
Kvikmyndamiðstöð, menntamálaráðuneyti,
sjónvarpsstöðvum og öðrum kaupendum
myndefnis.
Jón Þór Hannesson var kjörinn formaður á
stofnfundinum, en aðrir meðlimir í stjórn eru
Ingvar Á. Þórisson, Addi Knútsson, Konráð
Gíslason, Jón Axel Egilsson, Hrafnhildur
Gunnarsdóttir og Dúi J. Landmark.
Ástæðan fyrir stofnun félagsins var sú að:
„Framleiðslufyrirtæki hafa ekki verið sam-
einuð í einum samtökum í mörg ár og hefur
það komið niður á hagsmunum þeirra og
veikt stöðu þeirra. Auk þess hafa mörg minni
fyrirtæki ekki átt þess kost að ganga í SÍK
(Samtök íslenskra kvikmyndaframleiðanda)
og þess vegna ekki verið í neinum hagsmuna-
samtökum,“ eins og segir í tilkynningu frá
stjórn hins nýstofnaða félags.
Kvikmyndframleiðendur sameinast
Jón Þór Hannesson