Morgunblaðið - 02.10.2008, Blaðsíða 1
Í HNOTSKURN
»Krónan veiktist um 3,07% ígær og hefur gengið lækkað
um tæp 27% á einum mánuði.
»Rétti krónan sig ekki af ánæstunni gæti almennt verð-
lag hækkað mikið á næstu mán-
uðum. Gæti hækkunin numið allt
að 10-11%.
»Gengi Bandaríkjadals var109,5 krónur við lokun mark-
aða í gær, gengi evru var 153,8
krónur og gengi pundsins 194,7
krónur. Sænska krónan var 15,8
krónur.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ENN er ekkert lát á gengisveikingu
krónunnar og fór gengisvísitalan í
fyrsta sinn yfir 200 stig í gær. Krón-
an veiktist um 3,07% í gær og var
lokagildi vísitölunnar 202,8 stig.
Í hagspá greiningardeildar
Kaupþings sem gefin var út í gær
segir að nú sé svo komið að gengið
sé mun lægra en samrýmst geti
þjóðhagslegri heilsu landsins. Spáir
hún að meðalgengi krónunnar verði
180 stig á fjórða fjórðungi þessa árs.
Undanfarið hálft ár hafi gjaldeyr-
ismarkaðurinn verið án kjölfestu
þar sem hvorki háir stýrivextir né
lágt raungengi nái að styðja við
krónuna.
„Litlar líkur eru á að ástandið
batni til muna í bráð og við sjáum
ekki að útlit sé fyrir kröftug um-
skipti krónu fyrr en líða tekur á árið
2009,“ sagði Ásgeir Jónsson, for-
stöðumaður greiningardeildarinn-
ar, á kynningarfundi í gær. „Þá
verður búið að innleysa megnið af
útistandandi krónubréfum og hugs-
anlega mun þá hafa dregið úr lausa-
fjárskorti á mörkuðum. Krónan
mun hins vegar ekki nálgast jafn-
vægi fyrr en 2010.“ Segir Ásgeir af-
ar erfitt að spá fyrir um þróun á
gengi krónunnar í náinni framtíð,
þar sem óstöðugleiki muni einkenna
markaði á næstunni.
Segir Ásgeir að gjaldeyrisvara-
forði Seðlabankans sé allt of lítill
fyrir íslenska hagkerfið og stýri-
vextir bankans hafi orðið óvirkir á
gjaldeyrismarkaði fyrir sjö mánuð-
um. Gagnrýnir hann Seðlabankann
fyrir að hafa þrátt fyrir þetta ekki
nýtt tímann til að auka gjaldeyris-
varasjóðinn. „Þvert á móti reyndu
hagstjórnaryfirvöld að berja áfram
óvirkan vaxtamarkað með hækkun
stýrivaxta og þrengja svo enn frek-
ar að lausafjárstöðu á fjármála-
markaði með útgáfu ríkistryggðra
bréfa.“
Endurhverf viðskipti við Seðla-
bankann hafi aukist um 190 millj-
arða á árinu og því virðist í fljótu
bragði sem bankinn hafi aukið laust
fé í fjármálakerfinu um þá upphæð.
Hins vegar beri að líta til þess að
alls hafi ríkis- og innstæðubréf verið
gefin út fyrir 149 milljarða það sem
af er árinu. Stærstur hluti þessara
190 milljarða hafi því runnið út úr
kerfinu á ný. Á meðan einn armur
hins opinbera gefi komi annar arm-
ur og taki.
Litlar líkur á að ástandið
batni fyrr en á næsta ári
Morgunblaðið/Kristinn
Evrur Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaup-
þings, gagnrýnir Seðlabanka Íslands fyrir að hafa ekki boðið
bönkunum upp á gjaldeyrisskiptasamninga í evrum.
Krónan hefur aldrei verið lægri og ekki útlit fyrir kröftug umskipti í bráð
Kaupþing gagnrýnir Seðlabankann fyrir aðgerðaleysi í gjaldeyrismálum
fimmtudagur 2.
10. 2008
viðskipti mbl.is
viðskipti
Áhuginn á Body Shop kviknaði vegna umhverfisstefnunnar » 12
Hluthafafundur í
Glitni banka verður
haldinn laugardaginn
11. október næstkom-
andi, samkvæmt upplýs-
ingum frá Glitni. Stjórn
Glitnis ákvað þetta á
fundi sínum í hádeginu í
gær. Fundurinn hefur
ekki verið auglýstur en
það verður væntanlega
gert í dag.
Á hluthafafundinum verður tekin af-
staða til samkomulags um að ríkissjóður
leggi Glitni til nýtt hlutafjárframlag að
jafnvirði 600 milljóna evra, eða um 84
milljarða íslenskra króna á genginu eins
og það var síðastliðinn mánudag.
Ætla má að hart verði tekist á á hlut-
hafafundinum eftir rúma viku, en fram
hefur komið í fjölmiðlum á undanförnum
dögum að margir hluthafar, jafnt stórir
sem smáir, eru óánægðir samkomulagið.
gretar@mbl.is
Hluthafafundur í
Glitni laugardag-
inn 11. október
Rúm vika er í hlut-
hafafundinn.
ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar
lækkaði um 1,97% í gær og var lokagildi
hennar 3.328,84 stig. Gengi bréfa Glitnis
hækkaði um 2,64% og SPRON um 1,15%.
Hins vegar lækkaði gengi bréfa Existu um
10,83% og bréf Straums lækkuðu um
6,35%. Velta nam 68 milljörðum króna,
þar af 13,8 milljarðar með hlutabréf. Mest
var veltan með bréf Landsbankans, eða
7,2 milljarðar, en gengi bankans lækkaði
um 1,96%. bjarni@mbl.is
Enn lækkar gengi
hlutabréfa