Morgunblaðið - 02.10.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.10.2008, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ viðskipti/athafnalíf                                                                              Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, net- fang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Björgvin Guðmundsson, frétta- stjóri, bjorgvin@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is SAMDRÁTTURINN í þjóðarbúinu mun halda áfram á næsta ári og er því spáð að þá muni landsframleiðsl- an dragast saman um 1,6%. Þetta eru mikil umskipti frá kröftugri upp- sveiflu síðustu ára. „Við höfum ekki séð neikvæðan hagvöxt í á annan áratug,“ sagði Þorsteinn Þorgeirs- son, skrifstofustjóri efnahagsskrif- stofu fjármálaráðuneytisins, í gær er hann kynnti þjóðhagsspá fyrir árin 2008 til 2013. Útlitið er dökkt. Nú er reiknað með að viðskiptahalli verði 16,8% af landsframleiðslu á þessu ári. Hann minnki smám saman og verði 8,2% á næsta ári og 6,0% árið 2010. Ekki er bjart yfir á vinnumarkaði á næstu misserum. Reiknað er með að atvinnuleysi verði að meðaltali 1,2% af vinnuafli á yfirstandandi ári. Það muni síðan aukast og verða 2,7% á næsta ári og aukist enn frekar á árinu 2010 og verði 3,8% af vinnuafli. Vegna gengislækkunar krónunn- ar á árinu ásamt viðvarandi spennu á vinnumarkaði áætlar fjármálaráðu- neytið nú að verðbólga aukist í 11,5% að meðaltali á þessu ári. Spáð er að verðbólga dragist hratt saman á næsta ári og verði um 5,7% að með- altali. Reiknað er með að 2,5% verð- bólgumarkmið Seðlabankans náist síðan á seinni hluta 2010 og hún verði að meðaltali 2,8% það ár. Fram kom í máli Árna M. Mathiesen fjármála- ráðherra og Þorsteins Þorgeirsson- ar í gær að mikil óvissa einkenndi spána vegna þeirra miklu sveiflna sem hafa átt sér stað á örskömmum tíma. Frá því að sérfræðingar ráðu- neytisins lokuðu reiknilíkönum sín- um um miðjan síðasta mánuð og þar til þjóðhagsspá og fjárlagafrumvarp komu úr prentun lækkaði gengi krónunnar um tæplega 20%. Hagvöxtur skreppur sam- an í fyrsta skipti í áratug  Spáð er 2,7% atvinnuleysi á næsta ári og 3,8% á árinu 2010 í þjóðhagsspá  Verðbólgan gæti orðið 11,5% í ár en hún ætti síðan að minnka hratt Morgunblaðið/Eggert Dökkt útlit Árni M. Mathiesen kynnir fjárlagafrumvarp og þjóðhagsspá. Í HNOTSKURN »Allt útlit er fyrir að kaup-máttur ráðstöfunartekna minnki um 4,9% í ár og hann muni dragast áfram saman á næsta ári um 1,4% en fari svo að aukast á nýjan leik 2010. »Mikil óvissa einkennirþjóðhagsspána vegna gengissveiflna, hvort um frek- ari stóriðjuframkvæmdir verður að ræða á næstu árum og ekki síst að enginn sér fyrir hver útkoman verður við end- urnýjun kjarasamninga á vinnumarkaði á næsta ári. SÆNSKI fjárfestingarbankinn Carnegie, sem er að stærstum hluta í eigu Moderna Finance, dótturfélags Milestone sem er fjárfestingarfélag Karls Wernerssonar og fjölskyldu, féll um 17% á mánudaginn. Geng- islækkunin verður varla skýrð á ann- an hátt en með þeim atburðum sem áttu sér stað með þjóðnýtingu Glitn- is þegar íslenska ríkið keypti um 75% hlut í bankanum og svo virðist að tengsl Milestone og Glitnis ráði þar um að því er fram kom í Hálf- fimm fréttum Kaupþings. Milestone er annar stærsti hlut- hafinn í Glitni í gegnum Þátt eign- arhaldsfélag sem heldur utan um 5,6% í íslenska bankanum. Moderna á um 17,6% í Carnegie. Frá áramót- um hafa hlutabréf Carnegie fallið um 59% og stóð markaðsverðmæti hans í um 60 milljörðum króna á mánu- daginn. Markaðsverðmæti fyrirtæk- isins hefur því lækkað um 35 millj- arða frá áramótum. Því má ætla að Karl Wernerson og tengd félög hafi tapað um 6 milljörðum á Carnegie frá áramótum. Ef lækkun Carnegie á mánudaginn er skoðuð í samhengi við lækkun bréfa í Glitni síðan á mánudag liggur fyrir að Karl og fjöl- skylda hafa tapað rúmum 13 millj- örðum á Glitni og Carnegie í kjölfar þjóðnýtingar Glitnis. Carnegie tilkynnti í kjölfarið um aðgerðir sem eiga að auka skilvirkni í starfseminni og koma rekstrar- kostnaði á sama ról og hann var í árslok 2006. Það myndi þýða um 10% lækkun rekstrarkostnaðar. Ætlunin er að draga úr viðskiptum með gjald- eyri og erlend hlutabréf og fækka störfum. Munu aðgerðirnar hafa áhrif á 40 störf. thorbjorn@mbl.is Milestone fer illa út úr þjóðnýtingu á Glitni NOVATOR hefur ráðið til sín ráð- gjafa hjá fjárfestingarbankanum bandaríska Merrill Lynch til að skoða framtíðarmöguleika félagsins. Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Novators, segir að til standi að skoða fjóra mögulegar leiðir fyrir félagið sem kæmu til framkvæmda á næsta ári. Fyrsta hugsanlega leiðin er að Actavis sameinist öðru stóru fyrir- tæki, önnur leiðin að félagið taki yfir annað stórt fyrirtæki og þriðja leiðin að Actavis verði selt. Fjórða leiðin, sem skoðuð verður, er að Actavis verði skráð að nýju á markað. Ásgeir segir að nú sé ár liðið frá yf- irtöku Novators á Actavis og vilji Björgólfur Thor Björgólfsson, eig- andi Novators, líta lengra fram á veg- inn og stíga næsta skref í uppbygg- ingu félagsins. Ekki sé um neina bráðaákvörðun að ræða, heldur hafi vinnan, sem nú hefst, verið í undir- búningi í nokkurn tíma. bjarni@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Eignir Björgólfur Thor Björgólfs- son, eigandi Novator og Actavis. Framtíð Actavis tekin til skoðunar RITSTJÓRN Vísis.is hefur stað- fest að frétt vefsins um blaða- mannafund þar sem aðkoma rík- issjóðs að Glitni var kynnt, var skrifuð kl. 9:25 á mánudags- morgun, eftir að Seðlabankinn hafði sent út tölvupóst þar sem boð- að var til fundarins. Fréttin hafði verið tímasett kl. 9:16. „Í öllum látunum gleymdist að uppfæra tímann á fréttinni,“ segir í athugasemd Vísis.is. Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis, hefur haldið því fram að blaðamannafundurinn hafi verið boðaður munnlega, áður en sam- þykki stærsta hluthafa Glitnis hafi legið fyrir. Hefur Þorsteinn m.a vís- að til tímasetningar umræddrar fréttar máli sínu til stuðnings, því tölvupóstur með samþykki hafi ekki verið sendur fyrr en kl. 9:24. Í tilkynningu frá Þorsteini segir að hann standi við fyrri orð sín um að- draganda blaðamannafundarins. thorbjorn@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Frá fundinum Samþykki lá fyrir kl. 9:24 og fundur var boðaður kl. 9:25. Fundur var boðaður eft- ir samþykki GLITNIR sendi í gær frá sér af- komuviðvörun til Kauphallarinnar á Íslandi. Ástæðan er annars vegar 71% lækkun á gengi hlutabréfa bankans í kjölfar samkomulags um kaup ríkissjóðs á 75% hlut í Glitni. Og hins vegar 23% lækkun úrvals- vísitölunnar í Kauphöllinni á þriðja ársfjórðungi. Segir í tilkynningu Glitnis að þetta muni hafa í för með sér auknar afskriftir og neikvæð áhrif á afkomu Glitnis á þriðja og fjórða ársfjórðungi þessa árs. gret- ar@mbl.is Afkomuvið- vörun frá Glitni VELTA á skuldabréfamarkaði hefur aukist mikið á undanförnum dögum samhliða því umróti og þeim lækkunum sem orðið hafa á hluta- bréfamarkaði. Þannig nam velta á skuldabréfamarkaði um 54 millj- örðum króna í gær, um 49 millj- örðum í fyrradag og 34 milljörðum á mánudag. Met hafa ekki verið slegin í þessum efnum, en ávöxtunarkrafa á skuldabréfamarkaði hefur farið lækkandi í kjölfar hinna auknu um- svifa. Í Morgunkorni Greiningar Glitnis í gær segir að í því umróti sem verið hefur undanfarna daga hafi fjár- festar flutt sig í miklum mæli yfir í öruggari fjárfestingu, jafnt í íbúða- bréf sem önnur ríkisbréf. Segir deildin að frá því á föstudag í síðustu viku hafi krafa íbúðabréfa lækkað um 35-114 punkta. Þá hafi ávöxtunarkrafa ríkisbréfa einnig lækkað mikið, eða um 106-278 punkta. Meira framboð Greining Glitn- is telur líklegt að áhættufælni fjár- festa verði áfram mikil enda mikil óvissa með marga þætti sem snúa að íslensku hagkerfi um þessar mundir sem og í öðrum hagkerfum. „Meira framboð ríkisbréfa væri æskilegt við þessar kringumstæður. Eftirspurn eftir slíkum pappírum er klárlega fyrir hendi,“ segir Greining Glitnis. gretar@mbl.is Sækja í skuldabréf Áhættufælni fjár- festa hefur aukist. F í t o n / S Í A með ánægju Tími er peningar Með Iceland Express kemstu út og heim aftur samdægurs og sparar þannig tíma og kostnað. Fyrirtækjasamningur við Iceland Express tryggir svo hagstæðara verð og eykur þægindi. F í t o n / S Í A Lond on 9 x í viku Reykjavík Fljúgðu til London kl. 8:00 að morgni... Reykjavík ...og komdu heim kl. 21:50 að kvöldi sama dags

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.