Morgunblaðið - 02.10.2008, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
STRAUMUR-Burðarás fjárfest-
ingabanki og Landsbanki Íslands
skrifuðu í fyrradag undir sam-
komulag um kaup Straums á
meirihluta af erlendri starfsemi
Landsbankans á sviði fyrirtækja-
ráðgjafar og verðbréfamiðlunar.
Straumur mun eignast félögin
Landsbanki Securities í Bretlandi
og Landsbanki Kepler í Frakk-
landi að fullu, og einnig 84% hlut
Landsbankans í Merrion Lands-
banki á Írlandi. Kaupverðið er 380
milljónir evra, jafnvirði um 55,4
milljarða íslenskra króna á núver-
andi gengi. Kaupin eru háð sam-
þykki eftirlitsaðila í viðkomandi
löndum.
Kaupverðið er greitt með 50
milljóna evra reiðufé, útgáfu víkj-
andi láns og sölu útlána. William
Fall, forstjóri Straums, vildi á
fréttamannafundi í gær, þar sem
kaupin voru kynnt, ekki greina frá
því hvað víkjandi lán, annars veg-
ar, og sala útlána, hins vegar, væru
hvort um sig í fjárhæðum. Eig-
infjárstaða bankans er afar sterk
eftir þessi viðskipti og er eiginfjár-
hlutfallið yfir 20%. Hann sagði
hins vegar á fundinum að kaupin
væru spennandi skref fyrir
Straum. Bankinn hefði fyrir þau
verið með starfsemi í 10 löndum en
yrði nú með starfsemi í 18 löndum.
Alls myndu um 1.200 manns starfa
hjá bankanum og tekjur af er-
lendri starfsemi aukast verulega
og verða vel yfir 80% af heildar-
tekjunum. „Staða Straums á fjár-
festingarbankamarkaði fyrir með-
alstór fyrirtæki mun styrkjast
verulega,“ sagði hann.
Aðspurður hvort samruni
Landsbankans og Straums, sem
rætt hefur verið um í fjölmiðlum
að undanförnu, væri líklegri eða
ekki eftir þessi viðskipti sagðist
Fall ekki vilja tjá sig um það. „Ég
hef ekki tjáð mig um þennan orð-
róm og mun ekki gera það nú en
menn geta dregið sínar eigin álykt-
anir,“ sagði hann.
Traust sambönd
Í tilkynnningu frá Straumi segir að
fyrirtækin þrjú, sem samkomulag-
ið lýtur að, búi að traustum við-
skiptasamböndum og stórum hópi
viðskiptamanna í öllum helstu fjár-
málamiðstöðvum Evrópu. Rétt
eins og Straumur hafi þau einkum
einbeitt sér að meðalstórum fyr-
irtækjum og lagt áherslu á stað-
bundna þekkingu og ráðgjöf. Sam-
anlagt muni greinendur hinnar
nýju samstæðu veita ráðgjöf um
fjárfestingar í yfir eitt þúsund evr-
ópskum fyrirtækjum.
Samanlagðar tekjur fyrirtækj-
anna þriggja sem keypt eru námu
á síðasta ári 232 milljónum evra.
Samanlagður hagnaður þeirra fyr-
ir skatt nam 30 milljónum evra.
Fram kemur í tilkynningu frá
Landsbankanum að salan á félög-
unum þremur myndi hvorki veru-
legan söluhagnað né tap fyrir
bankann.
! "
# $ %!$& '(%
# $ #() %(&
# $ *( +
#, ,
# $ %!$& '(%
#, ,
# $
# $ & - !$ .! &
# $ /01 &
# $ & .! &
# $ 2 !
34 /015&(
2 . (
5!(
3
*#%
2F,.")#
2F,.")#
*#%
4 1EM:
*#%
?M.'#F#$E#
0112
0112
0112
0112
0112
0112
0112
0112
0112
0112
0112
0112
302
0112
0112
0112
3 (( '& - !$ .! &
/ & .! & 301 6
3 (( '7(
3 (( 8
'& - !$ .! & 9
:% % ; #() %(&
< $ %
=!
> <%% %
?%%$ @ <% +
3 % 4
2F,.")#
-)
#
A
B/!!
+
0112
0112
0112
0112
0112
0112
0112
0112
0112
312
314102
# $ 3 A(
# $ B !
C % < ! *%(
*#%
A#!!
#
0112
0112
562
4.) #'/
2"! 2,.")#
2"! :%
"! A*& 9 '# !
2 '$# EM:# ##.
&# ) '# ! #
2* -)
4.D$
4%#.#9*#:#D AED#'
"!
209-)
&:# # %'#
4.%
604532
54372
84952
84002
:48:2
:4812
:4:52
:4:72
:4092
:4032
:;4802
0114112
4.)
)" -)
2"! 2,.")#
2"! :%
4%#.# 9 *#:#D
2* -
2 '$# EM:# ##.
1 9 4. : '$# EM:#
&# ) '# ! #
4%' # '$# EM:#
&:# # %'#
4.%
864802
:04552
34662
34872
845:2
:4::2
04972
041;2
041:2
04102
::4072
0114112
-%'#
%."# -%'#
%."# '<
=
#"%
#
#
A$# #%N! 2 + #%#
A$# #%N! 2 + #%#
Umsvifin erlendis aukast
Straumur-Burðarás kaupir þrjú erlend dótturfélög Landsbankans fyrir 55 milljarða króna
Morgunblaðið/Kristinn
Spennandi skref William Fall, forstjóri Straums-Burðaráss, segir kaupin
á þremur dótturfélögum Landsbankans spennandi skref fyrir Straum.
ákveðið svið við-
skipta, heldur er-
um við að ein-
beita okkur að
alhliða banka-
starfsemi, og fyr-
irtækjaráðgjöf er
stór þáttur í því.
Grundvall-
araðkoma Lands-
bankans verður
sem banki og
lánastofnun, en grundvall-
arstarfsemi Straums verður hins
vegar sem verðbréfafyrirtæki. Það
er því í báðum tilvikum verið að
skerpa á kjarnastarfseminni. Lands-
bankinn hefur lengi verið stefnufast-
ur í því að velja það alhliða við-
skiptabankamódel, sem ég held að
allir séu sammála um að sé farsælast
þegar til lengri tíma er litið.“
Halldór segir að viðræður milli
Landsbankans og Straums-
Burðaráss hafi staðið yfir í nokkurn
tíma. Segir hann að atburðir síðustu
helgar, þegar samkomulag varð um
að ríkissjóður legði Glitni til nýtt
hlutafé að jafnvirði 600 milljóna
evra, hafi ekkert haft með þessar
viðræður að gera og ekki flýtt þessu
ferli með nokkrum hætti.
„Við vorum búin að setja upp
ákveðna tíma- og vinnuáætlun um
hvenær við ætluðum að ná nið-
urstöðum í samtölum okkar í milli. Í
því sambandi stefndum við að því að
ná niðurstöðu í þessari viku.“
Áhersla á bankastarfsemina
Halldór segir að salan á dótt-
urfélögunum þremur til Straums-
Burðaráss styrki eiginfjárstöðu
Landsbankans um rúma 55 milljarða
króna, sem sé mjög mikilvægt. Það
segi sig nánast sjálft hvað það skipt-
ir miklu máli við núverandi að-
stæður á mörkuðum.
„Í annan stað getum við vegna
þessa hagrætt í rekstrinum og við
eigum að geta náð fram bættri
kostnaðarhagkvæmni vegna einföld-
unar á starfseminni. Auk þess verð-
ur starfsemin markvissari.“
SALA Landsbankans á þremur
dótturfélögum til Straums-
Burðaráss fyrir 380 milljónir evra
var niðurstaðan eftir umræður um
ýmsa mögulega samstarfsfleti bank-
anna, sem staðið hafa að und-
anförnu, að sögn Halldórs J. Krisj-
ánssonar, bankastjóra
Landsbankans. Hann segir að for-
svarsmenn bankanna tveggja hafi
verið sammála um að þetta væri
skynsamlegasta leiðin, en ýmislegt
hafi verið skoðað. Niðurstaðan sé sú
að bæði fyrirtækin geti einbeitt sér
að kjarnastarfseminni.
„Við hjá Landsbankanum erum
með þessu að styrkja eiginfjárstöðu
bankans og skýra verksvið okkar.
Við erum ekki að yfirgefa eitt
Í þriðja lagi segir Halldór að
vegna sölunnar til Straums-
Burðaráss sé verið að færa bankann
inn á það svið þar sem hann geti náð
fram bæði fjölþættum og stöðugum
rekstrartekjum. „Við erum í raun að
færa bankann í þá átt að vera meira
í bankastastarfsemi en áður og við
náum með þessu að styrkja fyr-
irtækja- og viðskiptabankastarfsem-
ina bæði hér heima og hjá rekstri
útibúa okkar og dótturfélaga í Evr-
ópu. En það er áherslan á banka-
starfsemina sem er auðvitað nið-
urstaðan úr þessu að því er
Landsbankann varðar.“
Gott lausafjárhlutfall
Aðspurður um þær hremmingar
sem Glitnir hefur gengið í gegnum
segir Halldór að Landsbankinn sé
með gott lausafjárhlutfall. Í því sam-
bandi vísar hann á nýleg ummæli
eftirlitsaðila um trausta stöðu
Landsbankans. Þá segir hann að er-
lendir greiningaraðilar hafi bent á
að bankar með hátt hlutfall innlána
á móti útlánum, eins og eigi við um
Landsbankann, séu almennt með
sterkari stöðu núna en aðrir bankar,
þegar aðgengi að mörkuðum er jafn
takmakað og raun ber vitni.
Hann segir að Landsbankinn eigi
ekki í viðræðum um hugsanlegan
samruna við aðra banka. Fram hafi
komið að Landsbankinn hafi verið
tilbúinn í slíkar viðræður um síðustu
helgi ef réttar aðstæður hefðu skap-
ast til þess. Nú hafi aðstæður hins
vegar breyst og stjórnendur Lands-
bankans séu því ekki í hugleiðingum
í þessa veru. Auk þess hafi Lands-
bankinn styrkt stöðu sína mjög með
þeim samningi sem nú hefur verið
gerður við Straum-Burðarás. „Við
erum mjög sátt við okkar stöðu.“
Í þessu sambandi er rétt að geta
þess, að samkvæmt heimildum
blaðamanns hafa hinar lágu láns-
hæfiseinkunnir, sem Glitnir hefur að
undanförnu fengið hjá alþjóðlegum
matsfyrirtækjum, almennt dregið úr
áhuga banka á að sameinast Glitni
við núverandi aðstæður.
Kjarnastarfsemin skerpist
Halldór J.
Kristjánsson
Til leigu nýtt óinnréttað 2.995 m² skrifstofuhúsnæði á tveimur
hæðum í Borgartúni með glæsilegu útsýni ásamt 46
bílastæðum í lokaðri bílageymslu. Húsnæðið verður innréttað
eftir þörfum leigjanda, eða afhent óinnréttað með fullkláraðri
sameign. Mögulegt er að leigja húsnæðið í tvennu lagi þ.e.
2009 m² á 4. hæð og 986 m² á 5. hæð.
Leyfi er fyrir mötuneyti á 4. hæðinni. Hæðirnar eru bjartar með
glugga á 3 vegu, bjóða upp á mikla nýtingu og eru með góðri
lofthæð. Þrír blautkjarnar á heilli hæð. Lyftur í sameign ganga
frá bílakjallaranum sem er aðgangsstýrður. Glæsilegt húsnæði
á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík með nægum
bílastæðum. Teikningar og allar nánari upplýsingar veittar á
skrifstofu Leigulistans ehf.
Nýtt skrifstofuhúsnæði
til leigu í Borgartúni
Sími: 511-2900
L E I G U M I Ð L U N