Morgunblaðið - 02.10.2008, Page 9

Morgunblaðið - 02.10.2008, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2008 9 viðskipti/athafnalíf FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is GLITNIR opnaði í gær á nýjan leik fyrir viðskipti með sjóði sem lokað var í kjölfar hruns á hlutabréfum sl. mánudag. Í sjóðum Glitnis eru nú engin skuldabréf á Stoðir hf. (áður FL Goup), stærsta eiganda bankans fyrir inngrip ríkisins. Endurmat á Sjóði 9 sem er pen- ingamarkaðssjóður í íslenskum krón- um hefur leitt til þess að gengi sjóðs- ins hefur lækkað um 7% sem þýðir að ávöxtun síðastliðna 12 mánuði er um 7,6%. Skv. upplýsingum bankans eru 18 þúsund félagar í sjóðum Glitn- is og því líklegt að margir eigendur hlutdeildarskírteina hafi borið skarð- an hlut frá borði eftir óróann sein- ustu daga. Stærstu skuldarar Sjóðs 9 hjá Glitni eru í dag Glitnir, Baugur Group, Straumur, Exista og Kaup- þing banki. Ljóst er að sjóðurinn hef- ur átt töluvert af skuldabréfum sem útgefin eru af félögum í eigendahópi Glitnis. Hrein eign sjóðsins var 105 milljarðar í gær en var til saman- burðar 117 milljarðar fyrir mánuði. Athygli vekur að eignasamsetning Sjóðs 9 er verulega frábrugðin þeirri fjárfestingarstefnu sem hann hefur sett sér. Skráð skuldabréf fyrirtækja eru í dag 23% af eignasamsetningu sjóðsins og önnur skuldabréf 18%. Stefna sjóðsins er hins vegar sú að skráð skuldabréf fyrirtækja skuli nema 10% af eignum sjóðsins og ekki skuli vera önnur skuldabréf í safn- inu. Stefna sjóðsins er að heildar- eignir hans skuli vera 20% í rík- isskuldabréfum en sú eign var engin í gær og að 70% séu í bankabréfum, víxlum og innlánum. Hlutfall þessara bréfa var 59% í gær. Verulegar breytingar hafa orðið á eignasamsetningu sjóðsins að und- anförnu. 1. september sl. voru skráð skuldabréf fyrirtækja 16% af eign sjóðsins en hlutfallið var komið í 23% í gær eins og áður segir. Önnur skuldabréf voru 14% fyrir mánuði en hlutfallið var 18% af heildarandvirði sjóðsins í gær. Að hámarki mega fjárfestingar í skráðum skuldabréf- um fyrirtækja vera 50% og 60% há- mark er á öðrum skuldabréfum. Peningamarkaðssjóðir hafa um- talsvert svigrúm til fjárfestinga sam- kvæmt lögum. Í ljósi atburða síðustu daga hafa ýmsir spurt hvort eðlilegt sé að peningamarkaðssjóður á borð við Sjóð 9 geti keypt skuldabréf sem stærstu eigendur bankans hafa gefið út. Ekkert er því til fyrirstöðu. Lög sem gilda um fjárfestingar sjóðanna kveða á um í hvers konar fjármála- gerningum þeir mega fjárfesta en þeir mega ekki binda meira en 20% af eignum sínum í verðbréfum og peningamarkaðsskjölum sama útgef- anda. Þó er heimilt að binda allt að 35% af eignum sjóðs í skráðum verð- bréfum í kauphöll og peningamark- aðsskjölum sama útgefanda enda sé fjárfesting yfir 20% aðeins í einum útgefanda. Samkvæmt upplýsingum Fjármálaeftirlitsins fylgist það með því að fjárfestingar og eignasamsetn- ing verðbréfa- og fjárfestingasjóða sé í samræmi bæði við lög sem um þá gilda og reglur sjóðsins. Fari fjár- festingar sjóðs fram yfir leyfileg mörk samkvæmt lögunum eða reglum sjóðsins getur FME gert kröfu um að úrbætur verði gerðar innan tiltekinna tímamarka. Sé litið á upplýsingar um sam- bærilegan peningamarkaðssjóð hjá Landsbankanum kemur í ljós að um- talsverður hluti af eignasamsetningu hans er í skuldabréfum sem fjár- málastofnanir hafa gefið út eða 26,5%, önnur skuldabréf eru 27,2% og innlán 26,2%. Verðbréf með rík- isábyrgð eru hins vegar innan við 1%. Eign sjóðsins er um 172 millj- arðar. Peningamarkaðssjóður Kaupþings er að stærstum hluta eða 61% í inn- lánum, skuldabréf fyrirtækja eru 26%. Stærstu skuldarar sjóðsins eru Kaupþing, Straumur og Glitnir. Peningamarkaðssjóður Kaupþings stýrir 43 milljörðum kr. ,,Almenningur gerir ráð fyrir því að þessir peningar séu alltaf til taks og séu mjög tryggir. Það er því ekki mjög eðlilegt að það sé mikið af ein- stökum fyrirtækjapappírum í þess- um sjóðum,“ segir viðmælandi sem gjörþekkir til á markaði skammtíma- verðbréfa í samtali við Morgunblað- ið. Sjóður Glitnis tengdur eigendum  Sjóður 9 varði miklum peningum sjóðsfélaga í að kaupa skuldabréf af félögum eigenda bankans  Fjárfestingar peningamarkaðssjóðsins voru verulega frábrugðnar uppgefinni fjárfestingastefnu              >      "#     01  ?= @    %     "#4  A 4        "# #+  * ? .    "# 71 :1 06 9; 0 09 05 3; :8 Morgunblaðið/Golli Sjóðir opnaðir á ný Glitnir opnaði í gær fyrir viðskipti með sjóði sem hafa lokaðir síðan á mánudag. Við endurmat á Sjóði 9 liggur fyrir að gengi sjóðsins hefur lækkað um 7% sem þýðir að ávöxtun síðustu 12 mánuði er um 7,6%. Sími 554 6088 • hreint@hreint.is • www.hreint.is • Reykjavík • Akureyri • Selfossi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.