Morgunblaðið - 02.10.2008, Síða 12

Morgunblaðið - 02.10.2008, Síða 12
O ddur rak verslanirnar Kjallarann á Laugavegi og Kókó í Kringlunni á sínum tíma. Í inn- kaupaferðum sínum til London tók hann fyrst eftir Body Shop. „Ég var oft að þvælast á Portobello Road-markaðinum að skoða se- cond-hand-fatnað. Þá sá ég þessa Body Shop-verslun fyrst.“ Oddur segir áhugann hafa kviknað og ekki síst vegna umhverfisstefnu fyrirtækisins. „Þetta var grænt merki og strax mikil áhersla lögð á að hafa vöruna um- hverfisvæna og náttúrulega. Sú stefna hefur svo gengið sem rauður þráður gegnum starfsemina til dagsins í dag.“ Það megi segja að Anita Roddick (stofnandi Body Shop, innsk. blm.) hafi verið hippi. „Það passaði svona svolítið við hugmyndir manns um lífið þá,“ segir Oddur. Hann nefnir sem dæmi um stefnu keðjunnar að Body Shop hafi verið heiðruð af Sameinuðu þjóðunum fyrir að standa fyrir ýms- um mannréttindaherferðum, til að mynda herferð gegn of- beldi inni á heimilum og gegn konum. Vilja aftur á Laugaveginn Fyrsta verslunin var opnuð í Kringlunni árið 1991. Body Shop-verslanirnar hér á landi eru þrjár, á Akureyri, í Kringlunni og í Smáralind. Þá ráku systkinin verslun á Laugavegi í ellefu ár. Henni var lokað vegna óhentugs húsnæðis. Oddur segir lageraðstöðuna ekki hafa hentað lengur og þar af leiðandi húsnæðið allt. Hann segir þau hafa hug á að snúa aftur á Laugaveginn í framtíðinni. „Við gerum það ábyggilega þegar hann rís aðeins betur upp. Það eru skiptar skoðanir um hvernig Laugavegurinn á að líta út. Þó að það sé gaman að göml- um húsum sem er vel við haldið þá eru kröfur erlendra stórfyrirtækja um húsnæði oft aðrar en eigendur hús- næðis í miðbænum gera sér grein fyrir. Það má ekki vera þannig að þú þurfir tvo aukastarfsmenn af því að hús- næðið er svo hólfað niður til að mynda. Þetta mætti gjarn- an breytast.“ Starf verslunareigandans hefur ekki breyst mikið Aðspurður hvað honum finnist hafa breyst við versl- unarreksturinn á tuttugu árum segir Oddur það í raun ekki mikið. „Það að reka smásöluverslun á Íslandi er nokkuð sem þarf að fylgjast með daglega nema reksturinn nái þeirri stærðargráðu að ekki þurfi að vasast í öllu sjálf- ur, þótt það sé ákveðinn sjarmi yfir því. Persónulega upp- lifi ég ekkert stórar breytingar.“ Grunnurinn sé alltaf sá sami. „Mér finnst þetta ennþá skemmtilegt. Sérstaklega fyrir jól og svona þegar hamagangurinn er mikill. Þá er gam- an.“ Hann segir þó landslagið hafa breyst mikið og að það hafi verið stórt stökk þegar Kringlan kom til sögunnar. „Það var nánast litið á það sem svik að opna verslun í Kringlunni af því maður var með verslun á Laugaveg- inum.“ Að lokum spyr blaðamaður Odd hvort hann eigi sér áhugamál utan vinnunnar sem gefi honum tækifæri á að hugsa um annað en vinnuna. „Já, já, já. Ég hef gaman af því að veiða lax og svo fylgist ég vel með fótbolta. Svo reynir maður að hugsa vel um sig og mæta í líkamsrækt.“ Oddur Pétursson, framkvæmda- stjóri Body Shop á Íslandi, segir frá rekstrinum í samtali við Guðnýju Camillu Aradóttur Morgunblaðið/Valdís Thor Framtakssamur Oddur rak áður verslunina Kjallarann á Laugavegi og Kókó í Kringlunni. Nú rekur hann í sam- starfi við systur sína, Ragnhildi Pétursdóttur, þrjár Body Shop-verslanir á landinu. Verslanareksturinn er bæði krefjandi og skemmtilegur camilla@mbl.is SVIPMYND» Á TIMES Square, torgi í New York, er að finna svokallaða skuldaklukku. Um er að ræða raf- rænt skilti þar sem heildarskuldir bandaríska alríkisins eru birtar. Skuldirnar eru nú um 9.500 millj- arðar dala, andvirði um milljón milljarða íslenskra króna. Aðstandendur klukkunnar, sem upphaflega var sett upp af hinum sérvitra fasteignajöfri Seymour Durst, standa nú frammi fyrir al- varlegum vanda. Haldi svo fram sem horfir muni skuldir ríkisins verða meiri en svo að talan komist fyrir á skiltinu. Spáð er að skuld- irnar fari yfir 10.000 milljarða dala á næstunni og mun þá þurfa að taka klukkuna niður og stækka. bjarni@mbl.is Þurfa að bæta við núlli SKANDINAVÍSKA hönn- unarfyrirtækið Aurumania hefur hannað reiðhjól, sem hlýtur að vera í hópi þeirra allra dýrustu í heiminum í dag. Hjólið er húðað 24 karata gulli og á því er að finna 600 Swarovski-krystalla. Hjólið mun kosta um 11,6 milljónir króna, en aðeins verða framleidd tíu eintök. Þau eru handsmíðuð frá grunni og eru hnakkur og handföng handsaumuð úr leðri. Eðlilegt er að velta fyrir sér hvort rétt sé að fara út á þjóðvegina á djásni sem þessu. Hversu góðir sem hjólreiðastígar eru geta margar hættur steðj- að að gullhjólum. Framleiðendurnir hafa séð fyrir þessu því hægt verður að kaupa króka úr hreinu gulli til að hengja hjólið á upp á vegg, enda á slíkur dýrgripur varla annað skilið. bjarni@mbl.is Íburður á tveimur hjólum MIKIÐ hefur verið fjallað um erf- iðleika í rekstri Eimskips á und- anförnum vikum enda á óskabarn þjóðarinnar sér stóran sess í hjört- um margra. Fullyrða má að töluvert hefur verið tekið til í rekstrinum að undanförnu til þess að spara fé en Útherja leikur þó forvitni á að vita hvað hefur verið gert varðandi samn- ing Eimskips við knattspyrnuhetjuna Eið Smára Guðjohnsen. Samningurinn sá gekk út á að fyrir hvert mark sem Eiður skoraði styrkti Eimskip góðgerðarsamtök, Hjarta- heill ef Útherji man rétt, um eina milljón króna. Eiði hefur lítt gengið að skora undanfarin ár og því hefur Eimskip varla þurft að punga miklu fé út. Fyrir vikið hefur samningurinn væntanlega fallið í gleymsku, a.m.k. hjá einhverjum, en nýlega gerðist það að kappinn skoraði í leik fyrir Barcelona en auk þess hefur hann átt sæti í byrjunarliði félagsins. Haldi Eiður áfram að standa sig er allt eins víst að hann fari að skora meira og þá er spurning hvort samn- ingurinn sé enn í gildi. Má Eimskip við þeim aukakostnaði sem vel- gengni Eiðs Smára myndi hafa í för með sér? Eða mun kappinn skjóta óskabarnið í kaf? utherji@mbl.is Óskabarnið skotið í kaf? ÚTHERJI Safnaðu því sem þú vilt ... ...eiga mikið af! 15,0% ávöxtun * Peningamarkaðssjóður SP RON *Nafnávöxtun miðast við 1. okt. 2007 til 1. okt. 2008. Peningamarkaðssjóður SPRON er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstarfélag sjóðsins er Rekstarfélag SPRON.AR G U S / 0 8 -0 3 9 8

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.