Morgunblaðið - 09.11.2008, Side 30
30 Knattspyrna
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2008
ENN BETRI REYKJAVÍK
Reykjavíkurborg leitar að kraftmiklum samstarfsaðilum á
sviði forvarna, lýðheilsu og fegrunar í hverfum borgarinnar
Við lýsum eftir nýstárlegum hugmyndum að verkefnum
frá einstaklingum, fyrirtækjum, félagasamtökum eða
stofnunum. Margvísleg verkefni koma til greina en þau
verða að fela í sér minnst eitt af eftirfarandi:
Frekari upplýsingar veita Regína Ásvaldsdóttir skrifstofustjóri
skrifstofu borgarstjóra í síma 411 4500, regina.asvaldsdottir@
reykjavik.is og Hans Orri Kristjánsson verkefnisstjóri á skrifstofu
borgarstjóra í síma 411 4506, hans.orri.kristjansson@reykjavik.is
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Forvarna- og
framfarasjóði Reykjavíkurborgar. Markmið sjóðsins er
að styrkja forvarnarstarf, efla félagsauð, auka öryggi
og bæta umgengni.
Forvarnir í þágu barna og ungmenna
Eflingu lýðheilsu
Aukið öryggi íbúa
Fegurri ásýnd hverfis
Markvisst samstarf íbúa, félagasamtaka, fyrirtækja
og borgarstofnana í þágu forvarna og félagsauðs
Verkefnin skulu unnin í samstarfi við þjónustumiðstöðvar í hverfum
og/eða fagsvið borgarinnar. Upplýsingar um úthlutunarreglur og
umsóknareyðublöð er að finna á vef Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is/ennbetri
Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á
skapandi og uppbyggileg verkefni fyrir börn
og unglinga.
Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember 2008.
•
•
•
•
•
Umsóknum er hægt að skila á netfangið ennbetri@reykjavik.is eða
í Ráðhús Reykjavíkur merkt „Enn betri Reykjavík“.
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Þ
að fer ymur um áhorf-
endasvæðið á Britannia-
leikvanginum. Ókunnugir
gætu haldið að heima-
menn, Stoke City, hefðu
verið að skora mark, alla
vega fá dæmda
vítaspyrnu. Svo
er ekki. Það er
innkast.
Hvernig má
það vera? Inn-
köst eru alla-
jafna ómerkileg-
asti hluti knatt-
spyrnuleiks en
þegar Rory
Delap, leikmaður Stoke, á í hlut verða
þau að stórhættulegu vopni enda er
kasthæfni mannsins með miklum
ólíkindum. Innköstin minna helst á
flugskeyti. Af þrettán mörkum Stoke
í ensku úrvalsdeildinni í vetur hafa
sjö komið eftir innköst frá Delap, þar
af bæði mörkin í fræknum sigri á
Arsenal um liðna helgi. Það fyrra,
sem Ricardo Fuller gerði með skalla,
kom eftir 45 metra langt innkast frá
Delap en það mun vera einum metra
styttra en heimsmetið í innkasti en
það setti Dave Challinor, leikmaður
Tranmere Rovers, árið 2000. Án þess
að opinbert mót sé haldið í þeirri
ágætu grein. Öll nema eitt hafa mörk-
in komið á heimavelli. Það er engin
tilviljun að Stoke hefur þrengt flöt
sína inn að leyfilegum mörkum.
Þess má geta að Portsmouth
er í öðru sæti á listanum yfir
mörk upp úr innköstum, með
tvö.
Við vorum með áætlun…
Aumingja Arsène Wen-
ger, knattspyrnustjóri Ars-
enal, var nánast orðlaus
eftir ófarirnar. „Við vorum með áætl-
un um það hvernig við ætluðum að
bregðast við innköstunum, höfðum
æft það sérstaklega. Þau koma fljúg-
andi inn í teiginn og það er erfitt að
eiga við þau með tuttugu manns í ein-
um hnapp. Þetta er ekki okkar helsti
styrkleiki en við vorum líka óheppn-
ir.“
Þú segir ekki! Raunar er Arsenal
vorkunn, dæmin hafa sýnt að fá lið
eru aumari að verjast loftárásum.
Svo smeykir voru varnarmenn Ars-
enal orðnir við innköstin er leið á leik-
inn að þeir sneru sér í heilhring á frí-
merki með sóknarmann í bakinu til að
spyrna knettinum upp völlinn, í stað
þess að setja hann út fyrir hliðarlínu,
eins og jafnan er gert við þær að-
stæður.
Og Arsenal er ekki eina liðið sem
mátt hefur sækja knöttinn í tvígang í
netið í einum og sama leiknum gegn
Stoke í vetur. Everton fékk að reyna
það líka.
Topplið Chelsea varð aftur á móti
þeirrar gæfu aðnjótandi að Delap var
á sjúkralistanum þegar glímt var við
Stoke. Hinn gamalreyndi og geðþekki
knattspyrnustjóri liðsins, Luiz Felipe
Scolari, jós kappann þó lofi. Sagði
tækni hans stórkostlega og að enginn
markmaður ætti að voga sér út í þessa
bolta. „Hann sendir boltann betur
með höndum en fótum, það er magn-
að. Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt
um dagana. Hann þarf ekki að vera
kominn nema tíu metra inn fyrir
miðju til að koma knettinum inn í teig.
Þetta er kannski ekki áferðarfalleg
knattspyrna en sannarlega árang-
ursrík.“
Tröll við tröll í teignum
Ekki spillir fyrir að í liði Stoke er
hvert tröllið upp af öðru, skapað til að
taka við innköstunum. „Nái ég full-
komnu kasti gera hæð og gæði leik-
manna liðsins það að verkum að það er
nánast ómögulegt að verjast þessu,“
sagði Delap eftir sigurinn á Arsenal.
Tony Pulis, knattspyrnustjóri
Stoke, hefur til þessa verið tregur til
að gera mikið úr innköstum Delaps en
eftir Arsenal-leikinn lék hann á als
oddi. „Þau skapa usla,“ sagði hann.
„Ég held það sé vegna þess hvað þau
eru flöt. Hann hendir knettinum ekki
upp í loftið, köstin eru nánast lárétt og
það er afar erfitt fyrir varnarmenn að
reikna út svifið á þeim.“
Innköstin hafa að vonum vakið
mikla athygli fjölmiðla í haust og Pulis
er sannfærður um að það hjálpi til.
„Vegna þess hvað innköstin hafa feng-
ið mikla umfjöllun eru lið logandi
hrædd við þau, jafnvel áður en hann
kastar inn.“ Sjálfur hefur Delap ekk-
ert á móti kastljósinu, þó ekki sín
vegna. „Krakkarnir mínir hafa gaman
af þessu, að sjá ófrýnilega ásjónu mína
í blöðunum. Ég á síður von á fyr-
irsætusamningum en það er sjálfsagt
að njóta augnabliksins.“
Ná mest 60 km hraða
Það er engin nýlunda að Rory De-
lap taki löng innköst, aldrei hafa þau
þó borið jafnríkulegan ávöxt. Með-
allengd þeirra hefur mælst 38 metrar
– og fer vaxandi – og mest hafa þau
náð 60 km hraða á klukkustund. Það
er nánast ómannlegur kraftur.
Óhætt er að segja að innköstin jafn-
ist á við aukaspyrnu eða horn og sumir
hafa raunar bent á, að þau séu hættu-
legri þar sem Delap hefur meira vald á
vöðvunum sem hann notar en leik-
maður sem spyrnir knettinum. Inn-
kast hefur það líka fram yfir auka-
spyrnu á svipuðum stað að
sóknarmenn geta ekki verið rang-
stæðir eftir slíkt leikatriði. Á því hagn-
aðist téður Fuller gegn Arsenal. Hvað
Kolo Touré, miðvörður gestanna, var
aftur á móti að gera fyrir framan hann
er önnur saga.
Innköst Delaps eru ákaflega sjón-
ræn athöfn. Til að auka skriðþunga
sinn bregður hann sér aftur að auglýs-
ingaskiltunum á vellinum áður en
hann kastar inn. Hann tekur síðan
fjögur stutt skref og eitt skálm áður
en hann stígur þéttingsfast fram í
fremri fótinn og beinir þannig öllum
þunga fram á við. Við þetta eykst
hraði knattarins þegar hann losar sig
við hann.
Býður þyngdaraflinu birginn
Delap kveðst ekki styrkja efri hluta
líkamans með markvissum hætti en
mest mæðir á öxlum og mjóbaki þegar
hann kastar knettinum. Til þess að ná
sem mestum hraða kastar Delap hon-
um nánast lárétt og með miklum
baksnúningi. Með þessum hætti býður
hann þyngdaraflinu birginn og gerir
það að verkum að knötturinn svífur
beint þrátt fyrir að vera sleppt úr svo
lágri stöðu, ef marka má vísindalega
greiningu breska dagblaðsins The Gu-
ardian.
Engum blandast hugur um að inn-
köst Delaps eru helsta vopn Stoke
City í baráttunni við falldrauginn sem
að öllum líkindum mun ágerast er líð-
ur á veturinn. Hvort þau duga til að
koma böndum á kauða mun tíminn
leiða í ljós.
Kylfa ræður kasti
Innkastari „Nái ég
fullkomnu kasti gera
hæð og gæði leik-
manna liðsins það að
verkum að það er
nánast ómögulegt að
verjast þessu,“ segir
Rory Delap.
Í HNOTSKURN
»Rory Delap er 32 ára aðaldri. Fæddur í Englandi
en hefur leikið ellefu lands-
leiki fyrir Íra.
»Hann hefur víða komið viðá löngum ferli, m.a. hjá
Derby, Southampton og Sund-
erland. Hjá Stoke hefur Delap
verið frá árinu 2007.
RORY DELAP, LEIKMAÐUR STOKE CITY Í ENGLANDI,
HEFUR SÉRHÆFT SIG Í ÓVENJULEGUM FLUGSKEYTUM
! "