Morgunblaðið - 09.11.2008, Page 57
Menning 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2008
Árni Matthíasson
Mér er það minnisstættað hafa keypt íGramminu framúr-skarandi skífu hljóm-
sveitar sem hét Green River;
skemmtileg rokkskífa þar sem
menn steyptu saman nýbylgju og
því sem einna helst mætti kalla
þungarokk. Útkoman var hrátt
melódískt rokk, þó að það hljómi
eins og hálfgerð þversögn. Ekki
grunaði mig þá að Green River
væri að ryðja nýrri tónlistarstefnu
braut sem ætti eftir að gera allt
vitlaust nokkrum árum síðar.
Grunge verður til
Green River var ættuð frá
Seattle, það var Mark McLaughlin
sem stofnaði hana og nokkrir
skólafélagar hans. McLaughlin,
sem fékk snemma viðurnefnið Arm
og er einna helst þekktur undir því
nafni, hafði reyndar verið í nokkr-
um hljómsveitum þegar hann stofn-
aði sína fyrstu alvöruhljómsveit
með Steve Turner, Alex Vincent,
Jeff Ament og Stone Gossard.
Green River gaf ekki út nema tvær
stuttskífur og eina stóra plötu, en
þó að tónlistin á þeim skífum sé
flestum gleymd í dag minnast
menn sveitarinnar fyrir það að hún
gaf út fyrstu skífurnar af því sem
síðar var kallað grunge og ruddi
þannig brautina fyrir ýmsar sveitir
sem áttu eftir að ná heimsfrægð.
Ekki löngu eftir að fyrsta og eina
breiðskífa Green River kom út
lagði hljómsveitin upp laupana og
menn héldu hver í sína áttina. Þrír
liðsmannanna, Gossard, Ament og
Fairweather, stofnuðu hljómsveit-
ina Mother Love Bone og síðar
stofnuðu tveir þeir fyrrnefndu
Pearl Jam. Þeir Mark Arm og
Steve Turner ákváðu að stofna
saman nýja hljómsveit og kölluðu
til Dan Peters úr Bundle of Hiss á
trommur og Matt Lukin úr Melvins
á bassa, en þeir Arm og Turner
léku á gítar og Arm söng. Sveitina
nefndu þeir síðan eftir bíómynd –
Mudhoney.
Fyrsta stuttskífa Mudhoney,
Superfuzz Bigmuff, kom svo út í
október 1988 og er tilefni þessara
skrifa, enda kom viðhafnarútgáfa
af henni út um daginn í tilefni af
tuttugu ára afmæli hennar.
Skemmst er frá því að segja að
Superfuzz Bigmuff seldist lítið sem
ekkert, þó að hróður hennar hafi
aukist jafnt og þétt. Fyrstu smá-
skífu Mudhoney var þó betur tekið
og vakti hún meðal annars svo
mikla athygli á sveitinni í Evrópu,
aðallega í Bretlandi, að þar lék hún
jafnan fyrir fullu húsi löngu áður
en Ameríkanar voru búnir að
kveikja á því hvílík gæðasveit hún
var.
Seattle-rokksveitaflóð
Fyrsta breiðskífan, samnefnd
sveitinni, kom svo út 1989 og í kjöl-
farið fóru fleiri Seattle-sveitir að
láta á sér kræla; nýtt tilbrigði við
rokk var komið til sögunnar, það
sem menn kölluðu Seattle-rokk og
Marc Arm kallaði „grunge“. Helsta
hljómsveit sem fylgdi í fótspor
Mudhoney var Nirvana, en ekki má
gleyma hljómsveitum eins og So-
undgarden, Tad og Alice in Chains.
Mudhoney og fleiri grungesveitir
reyndar voru á mála hjá Sub Pop,
en í kjölfar vinsælda Nirvana má
segja að allar rokksveitir Seattle-
borgar hafi komist á samning hjá
stórfyrirtæki og Mudhoney var ein
þeirra því 1992 gerði sveitin samn-
ing við Reprise-útgáfuna. Þrátt
fyrir það náði Mudhoney aldrei
teljandi vinsældum og Reprise rifti
samningnum 1998. Mudhoney lagði
þó ekki upp laupana og er enn að,
sendi frá sér þokkalegustu skífu
fyrr á þessu ári, The Lucky Ones.
Eins og getið er kom Superfuzz
Bigmuff í aukinni útgáfu fyrir
stuttu. Ekki er bara að tónlistin
hefur verið tónjöfnuð upp á nýtt,
heldur eru diskarnir nú tveir og
grúi aukalaga á þeim. Upphaflega
var Superfuzz Bigmuff sex laga, en
á nýju útgáfunni eru hvorki meira
né minna en 26 aukalög; prufuupp-
tökur, smáskífur og tónleika-
upptökur, annars vega níu lög frá
tónleikum í Berlín 1988 og sex sem
tekin voru upp í útvarpi sama ár.
Þess má geta að platan heitir eft-
ir uppáhalds skælifetlum þeirra
Arm og Turner: Super Fuzz (Uni-
vox) og Big Muff (Electro-
Harmonix).
Rokk verður til
» Í kjölfar vinsældaNirvana má segja að
allar rokksveitir
Seattle-borgar hafi
komist á samning hjá
stórfyrirtæki.
Frumherjar Sú ágæta hljómsveit Mudhoney kælir sig með leðju.
Það sannast á þeirri ágætu sveit Mudhoney að fáir njóta eldanna sem fyrst-
ir kveikja þá. Þess var minnst fyrir skemmstu að fyrir tuttugu árum kom út
stuttskífa sem boðaði mikil tíðindi í rokksögunni.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
• Vitum af fjölda fyrirtækja í öllum atvinnugreinum sem vilja skoða
sameiningar með hagræðingu í huga.
• Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 600 mkr.
• Eitt vinsælasta vínveitingahús landsins. Ársvelta 250 mkr.
EBITDA 90 mkr. Engar skuldir. Mjög hagstætt dæmi fyrir fjárfesta.
• Framleiðslu- og þjónustufyrirtæki sem þjónar fiskvinnslu og
matvælafyrirtækjum. Ársvelta 50 mkr. EBITDA 6 mkr. Stöðugur vöxtur.
• Rótgróið bílaþjónustufyrirtæki. Ársvelta 100 mkr.
Auðveld kaup fyrir duglegan mann.
• Heildverslun með neytendavörur fyrir konur. Ársvelta 100 mkr.
Góður hagnaður. Gæti hentað til flutnings út á land.
• Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 620 mkr.
Skuldsett með hagstæðu erlendu láni.
• Rótgróin heildverslun með tæki og rekstrarvörur fyrir
heilbrigðisgeirann. Ársvelta 120 mkr. EBITDA 15 mkr.
• Innflutnings- og þjónustufyrirtæki með rekstrarvörur.
Ársvelta 180 mkr. EBITDA 40 mkr.
Suðurlandsbraut 4, 7. hæð • Sími 414 1200
Netfang: kontakt@kontakt.is • www.kontakt.is
Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is
Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is
Höskuldur Frímannsson rekstrarhagfræðingur, hoskuldur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson hdl. sigurdur@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson, lögg. fasteignasali, tas@kontakt.is
Gísli Jónsson, dr.med., sérfræðingur í hjartalækningum
og lyflækningum er með læknastofu
í húsi Lækningar að Lágmúla 5, Reykjavík.
Tímapantanir alla virka daga milli kl. 9-16
í síma 590 9200.
Netfang: gisli.jonsson@laekning.is
www. laekning.is
NÚ ER ÞAÐ SVART?
Kíktu þá í
spábollann!
...ÍSLENSKT HUGVIT - ÍSLENSK FRAMLEIÐSLAWWW.SPABOLLI.NET
EINS OG rakið er í greininni hér
til hliðar er almennt talið að
„grunge“-rokk hafi þá fyrst feng-
ið að heyrast á skífum Green
River.
Sub Pop útgáfan, sem stofnuð
var í Seattle 1986, varð fyrst til
að gefa út slíka tónlist og var
með margar af helstu grunge-
sveitum á sínum snærum, í það
minnsta þar til þær slógu í gegn.
Allir þekkja Nirvana og Pearl
Jam en aðrar helstu grunge-
sveitir sögunnar, þó að ólíkar séu
og ekki allar frá Seattle, eru
Green River, Soundgarden,
Mudhoney, Tad, Alice in Chains,
Screaming Trees, Mad Season,
Babes in Toyland, og Stone
Temple Pilots.
Grunge hafði gríðarleg áhrif
og þeirra sér stað enn þann dag í
dag því enn eru hundruð hljóm-
sveita að spila grunge eða afleið-
ur þess – emo er þannig skilget-
ið afkvæmi grunge. Áhrifin eru
þó ekki bara í tónlistinni þar sem
af henni spratt fatatíska, verka-
mannaskyrtur og slitnar galla-
buxur.
Tíska og tónlist
@