Morgunblaðið - 20.11.2008, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008
íþróttir
Stöðvaðir Íslandsmeistarar Hauka stöðvuðu sigurgöngu Akureyringa í N1 deildinni
í handknattleik í gærkvöld með því að vinna tólf marka sigur á Akureyri 3
Íþróttir
mbl.is
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
SIGURÐUR Jónsson hefur lokið
störfum fyrir sænska úrvalsdeild-
arliðið Djurgården en í gærkvöld
ákvað stjórn félagsins að segja hon-
um upp störfum sem þjálfara liðsins
sem og aðstoðarmanni hans, Paul
Lindholm. Sigurður átti eitt ár eftir
af samningi sínum en hann tók við
þjálfun liðsins fyrir síðustu leiktíð og
fór vel af stað en Stokkhólmsliðið
endaði í þriðja sæti eftir að hafa ver-
ið í baráttunni um sænska meist-
aratitilinn allt fram að síðustu um-
ferð deildarinnar.
Gengi Djurgården í ár var hins
vegar ekki gott en það lenti í tólfta
sæti af sextán liðum en lærisveinar
Sigurðar töpuðu fimm síðustu leikj-
um sínum í úrvalsdeildinni.
Bjóst við að fá sparkið
Ekki náðist í Sigurð í gærkvöld en
hann var staddur í fríi í Austurlönd-
um. Hins vegar sagði Sigurður við
Morgunblaðið í síðustu viku að hann
reiknaði alveg með því að fá sparkið
en Sigurður lýsti ástandinu hjá
Stokkhólmsliðinu á þann hátt að
tveir valdahópar væru innan stjórn-
ar félagsins og einnig meðal leik-
manna og það gæfi augaleið að erfitt
væri að starfa undir þannig kring-
umstæðum. Hann sagðist þó tilbúinn
að halda áfram ef ástandið lagaðist.
Náði ekki markmiðunum
,,Það eru nokkrir þættir sem ráða
þessari ákvörðun en þeir veigamestu
eru að liðið náði ekki markmiðunum
í deildinni né í bikarkeppninni og
náði ekki að spila þá tegund af fót-
bolta sem við viljum sjá það spila,“
sagði Alf Johansson formaður Djug-
ården við sænska blaðið Dagens
Nyheter í gær.
Sigurði
sagt upp
störfum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sigurði Jónsson var sagt upp störf-
um hjá Djurgården í gærkvöld.
Er hættur þjálfun
hjá liði Djurgården
Reuters
Hetjan John Terry, fyrirliði Englendinga, var hetjan þegar Englendingar lögðu Þjóðverja, 2:1, í vináttuleik í Berlín í gær. Á myndinni hefur Terry betur í
skallaeinvígi gegn Heiko Westermann og skorar sigurmarkið sem leit dagsins ljós átta mínútum fyrir leikslok. Sjá úrslit í vináttuleikjum í gær á bls. 2
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„SATT að segja þá er ég ekkert
alltof bjartsýnn á að komist verði
hjá annarri aðgerð á hnénu.
Ákvörðun liggur ekki fyrir ennþá
en það bendir margt til þess þótt ef
til vill láti ég reyna eitthvað frekar
á hnéð áður en endanleg ákvörðun
verður tekin,“ sagði Snorri Steinn
Guðjónsson, landsliðsmaður í hand-
knattleik og leikmaður danska liðs-
ins GOG, í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi.
Snorri Steinn fór í aðgerð strax
eftir Ólympíuleikana í haust þar
sem fjarlægð var beinflís á fram-
anverðu vinstra hné þar sem hnésin
gengur niður í sköflunginn.
Eftir 10 vikna endurhæfingu fór
Snorri að leika á ný með GOG fyrir
um tíu dögum og strax leit út fyrir
að ekki væri allt með felldu. Ekki
bætti úr skák að hann fékk þungt
högg á hnéð í kappleik fyrir viku.
Það kann að hafa gert illt verra, að
sögn Snorra Steins.
„Ég fór í myndatöku í gær og þá
kom í ljós að annaðhvort situr bein-
flísin enn á sínum stað eða ný hefur
gert vart við sig. Þannig lítur úr
fyrir að ég standi í sömu sporum og
ég gerði í haust. Að minnsta kosti
lítur þetta ekki út fyrir að vera eins
og það á að vera,“ segir Snorri
Steinn.
„Ég ætla kannski að láta reyna
betur á hnéð áður en endanleg
ákvörðun veðrur tekin um aðgerð.
Það er leikur eftir hálfan mánuð og
þá verð ég kannski með og ég sé til
hvað gerist þá,“ sagði Snorri
Steinn.
Kemur kannski heim í aðgerð
Heimildir Morgunblaðsins herma
að svo kunni að fara að fari Snorri í
aðra aðgerð og þá verði hún gerð
hér heima. Hann vildi ekki stað-
festa það í gærkvöldi enda væri það
á forræði vinnuveitenda hans hjá
GOG að ákveða hvar aðgerðin verð-
ur framkvæmd, verði af henni. Að-
gerðin í haust var gerð hjá lækni í
Viborg
„Hins vegar er ekkert sem bann-
ar mér að heyra skoðanir annarra
lækna og ég lýsi hér með eftir
Brynjólfi Jónssyni lækni. Ég vil
gjarnan heyra í honum sem fyrst,“
sagði Snorri Steinn í léttum dúr um
leið og hann viðurkenndi að vera
orðinn ákaflega leiður á að geta
ekki leikið handknattleik. „Mig var
farið að klæja í lófana að fara að
leika á nýjan leik.“
Landsleikir í hættu
Eins og fyrr segir þá bendir flest
til þess að Snorri Steinn leggist á
ný undir hnífinn. Fari svo er afar
ósennilegt að hann geti tekið þátt í
leikjunum við Makedóníu og Eist-
lendinga í undankeppni Evr-
ópumótsins sem fram eiga að fara
upp úr miðjum mars á næsta ári,
a.m.k. ef tekið er mið af þeim tíma
sem endurhæfingin eftir aðgerðina
í haust tók.
Snorri á leið í aðra aðgerð?
Hnéaðgerðin í haust virðist ekki hafa tekist Gæti orðið frá keppni fram í
mars Aðgerðin gerð hér heima? Vill ná tali af Brynjólfi Jónssyni lækni