Morgunblaðið - 20.11.2008, Qupperneq 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008
Detra Ashley hefur leikið sinnsíðasta leik með kvennaliði
Snæfells í Iceland Express-deild
kvenna. Gunnar Svanlaugsson, for-
maður stjórnar meistaraflokks
kvenna, sagði að hún hefði sjálf beð-
ist undan samningi og orðið hefði
verið við því. Gunnar segir að búið
hafi verið að safna fé til að hafa er-
lendan leikmann til 18. desember og
að deildin héldi öllu opnu varðandi
að fá annan erlendan leikmann. „Við
sjáum til eftir áramótin, hvort stelp-
urnar og við foreldrarnir erum tilbú-
in að leggja á okkur aðeins meiri
vinnu til að það geti orðið,“ sagði
Gunnar.
Danka Podovac er gengin til liðsvið Fylki, en hún lék áður með
Keflavík. Hún gerði eins árs samn-
ing við Fylki, en hún er 26 ára miðju-
leikmaður og gerði sjö mörk í 17
leikjum með Keflavík í Lands-
bankadeildinni í fyrra. Fylkisliðið er
greinilega að styrkja sig mikið því á
síðustu dögum hafa auk hennar þær
Lidija Stojkanovic komið frá HK/
Víking, Rúna Sif Stefánsdóttir frá
Fjölni, Anna Sigurðardóttir frá
Þrótti og Fjolla Shala frá Leikni.
KristinnBjörgúlfs-
son var mark-
hæstur hjá Run-
ar þegar liðið
vann Bodö, 35:31,
í norsku úrvals-
deildinni í hand-
knattleik í gær.
Hann skoraði sjö
mörk. Runar er í
3. sæti deildarinnar með 13 stig.
Sigurður Ari Stefánsson skoraðisjö mörk fyrir Elverum sem
tapaði á heimavelli fyrir Haslum,
34:32, í norsku úrvalsdeildinni í gær.
Elverum er í 5. sæti með 8 stig eftir
8 leiki.
Haukur Andrésson skoraði 5mörk þegar lið hans Guif vann
Trelleborg, 41:25, í sænsku úrvals-
deildinni í handknattleik í gær-
kvöldi. Kristján bróðir Hauks þjálf-
ar Guif-liðið sem er í 5. sæti.
Ólafur Stef-ánsson skor-
aði 6 mörk, þar af
eitt úr vítakasti
þegar Ciudad
Real vann Cu-
enca2016, 39:27, í
spænsku 1. deild-
inni í handknatt-
leik í gærkvöldi. Ciudad er í 3. sæti
með 18 stig, er tveimur stigum á eft-
ir Barcelona sem er efst.
Fólk sport@mbl.is
KEFLVÍKINGAR þurfa greinilega að munstra
einhverja nýja leikmenn í stöður miðvarða fyrir
næsta tímabil í knattspyrnunni. „Já, það stefnir allt
í að við séum allir farnir frá félaginu. Kenneth er
farinn og Hallgrímur líka,“ sagði Guðmundur Viðar
Mete, einn þriggja miðvarða Keflavíkur í sumar, en
hann stefnir að því að ná samkomulagi við knatt-
spyrnudeildina um að rifta samningi sínum, en hann
á eitt ár eftir.
Á heimasíðu Keflvíkinga í gær var tilkynning frá
Kenneth Gustafsson um að hann væri farinn frá fé-
laginu og í síðasta mánuði gerði Hallgrímur Jón-
asson samning við sænska félagið GAIS.
„Við erum svo gott sem búnir að ná samkomulagi
um að slíta samningi okkar og ég á von á að það mál
klárist alveg á næstu dögum,“ sagði Guðmundur
Mete í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann kom
til Keflavíkur sumarið 2005 og
hefur leikið sem miðvörður síð-
an, en missti talsvert úr síðasta
sumar vegna meiðsla og tók
Hallgrímur þá stöðu hans. „Ég
er að verða fínn af meiðslunum
og er að æfa sjálfur þessa dag-
ana,“ sagði Guðmundur.
Hann sagðist samt ekki vera
hættur í fótbolta. „Nei, nei, það
er langt frá því að maður sé
hættur. Það er ekkert sérstakt í
sigtinu hjá mér enda vil ég klára mín mál hjá Kefla-
vík fyrst áður en ég fer að skoða eitthvað annað,“
sagði Guðmundur Mete sem átti samt ekki von á að
hann færi austur á firði að spila, en hann er ættaður
þaðan. skuli@mbl.is
Allir miðverðir Keflvíkinga farnir
Guðmundur
Viðar Mete
í deildinni þegar það sótti Fre-
dercia, 24:19. Þorri skoraði ekki.
Róbert Gunnarsson skoraði tvö
marka Gummersbach þegar liðið
tapaði fyrir Magdeburg, 28:27, í
þýsku 1. deildinni í handknatt-
leik. Þórir Ólafsson gerði eitt
marka Lübbecke er liðið kjöldró
Dessau, 39:20, í norðurhluta
þýsku 2. deildarinnar. Sturla
skoraði ekki fyrir Düsseldorf
þegar liðið vann Firesenheim, 38:34, suðurhluta
þýsku 2. deildarinnar. Lübbecke og Düsseldorf eru
efst, hvort í sinni deild.
Vignir Svavarsson skoraði 5 mörk og Logi Geirs-
son tvö þegar Lemgo vann SK Riga, 35:27 í EHF-
keppninni. Þar með er Lemgo komið í 16 liða úrslit.
k í sigurleik
Arnór Atlason
r Andra Yrkil Valsson
t@mbl.is
ukar byrjuðu leikinn betur og náðu
tt þriggja marka forskoti. Akureyr-
ar svöruðu fljótt fyrir sig og komust
í stöðunni 6:5, en eftir það fór að halla
an fæti hjá heimamönnum. Þeir skor-
einungis tvö mörk á næstu fimmtán
útum og virtust mjög taugaóstyrkir.
ukar gengu á lagið, skoruðu hvert
rkið á fætur öðru og náðu mest sex
rka forskoti í hálfleiknum. Heima-
nn áttu síðasta orðið í fyrri hálfleik og
u fimm mörkum undir í leikhléi, 15:10.
byrjun seinni hálfleiks skiptust liðin á
kora en þegar líða tók á hálfleikinn
u Haukarnir öll völd í leiknum og Ak-
yringar vissu ekkert hvaðan á þá stóð
rið. Heimamenn breyttu varnarleik
um í von um að stöðva sókn Hauka
m virtist óstöðvandi í síðari hálfleik, en
kom fyrir ekki. Gestirnir galopnuðu
n Akureyringa hvað eftir annað og
u mest fjórtán marka forskoti í síðari
leik. Heimamenn virtust mjög pirr-
í seinni hálfleik og létu umdeilda
mgæslu hafa áhrif á sig. Þeir fóru illa
ð mörg góð færi og virtust aldrei kom-
almennilega í takt við leikinn. Því fór
að Haukar unnu sannfærandi sigur,
2.
tefán Rúnar Árnason, aðstoðarþjálf-
Akureyrar, skildi hvorki upp né niður
k sinna manna. „Það gekk lítið hjá
ur í dag, við vorum á eftir þeim á flest-
sviðum og þetta virkaði óskaplega létt
r þá. Við náðum aldrei að verjast al-
nnilega, brutum ekki nægilega vel á
m og þeir fengu fyrir vikið mörg ódýr
rk, bæði í langskotum og dauðafærum.
narleikurinn var aldrei með okkur í
ri hálfleik og við fundum engin svör
eik Hauka,“ sagði Stefán.
Akureyringar hafa byrjað deildina af
lum krafti og þrátt fyrir tapið sitja
r enn á toppi deildarinnar. „Við höfum
ðið okkur geysilega vel í deildinni og
ið hvern leikinn á fætur öðrum. Við
mum eins upplagðir í þennan leik og
anfarna leiki en það bara gekk væg-
ast sagt ekkert hjá okkur í kvöld.En núna
verðum við bara að halda áfram og hugsa
um næsta leik. Þótt þetta sé súrt vitum
við að það er ekki hægt að vinna alla leiki
og algjör óþarfi að láta þetta tap hafa of
mikil áhrif á okkur,“ sagði Stefán Rúnar
Árnason í leikslok.
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var
mjög sáttur við leik sinna manna: „Þetta
var mjög fínt hjá okkur. Þetta var hörku-
leikur, við spiluðum góða vörn og mark-
varslan var góð. Við vorum mjög
ákveðnir í sóknarleiknum og spiluðum af
miklum krafti. Það kom mér mjög á
óvart hversu litla mótspyrnu Akureyr-
ingar veittu og fyrir leikinn hefði ég aldr-
ei búist við tólf marka sigri. En við spil-
uðum alveg á fullu allan tímann og það
skilaði sér vel. Við þurftum að vinna
þennan leik til þess að missa hin liðin
ekki of langt frá okkur og þetta eru mjög
dýrmæt stig. Akureyringar eru með fínt
lið og frábæran heimavöll og það er mjög
gaman að koma hingað að spila.“
Mikið álag hefur verið á leikmönnum
Hauka undanfarið og þeir hafa þurft að
ferðast mikið. „Það er búið að vera mikið
álag á okkur, við erum nýkomnir úr mjög
löngu ferðalagi frá Úkraínu og förum
strax á morgun [í dag] til Ungverjalands
svo við erum heldur betur á faraldsfæti.
Þessi sigur er mjög gott veganesti
fyrir Evrópuleikinn á laugardaginn
en þar bíður okkar úrslitaleikur um
sæti í 16 liða úrslitum meistaradeild-
arinnar. Það verður gaman að fara á
þennan erfiða útivöll í Ungverjalandi
en svo kemur bara í ljós hvort við eig-
um einhvern séns í þann stóra leik,“
sagði Aron Kristjánsson, þjálfari
Hauka.
Meistarataktar Hauka
Aðstoðarþjálfari Akureyrar skildi hvorki upp né niður í slökum leik sinna manna í
ærkvöldi Íslandsmeistararnir fóru nánast beint að norðan og til Ungverjalands
Morgunblaðið/Frikki
Beint í mark Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði tvö marka Hauka í stórsigri þeirra á Akureyri.
UREYRI og Haukar áttust við í N1 deild
a í Íþróttahöllinni á Akureyri í gær-
d. Fyrir leikinn var Akureyri í efsta
i deildarinnar en Íslandsmeistarar
ka sátu um miðja deild. Mikil eft-
ænting var á Akureyri fyrir leikinn og
dust fjölmargir miðar í forsölu. Leik-
nn Hauka réðu lögum og lofum á leik-
num nær því frá upphafi til enda og
u stórsigur, 34:22, eftir að hafa verið
m mörkum yfir í hálfleik, 15:10.
Akureyri – Haukar 22:34
Íþróttahöllin á Akureyri, úrvalsdeild karla, N1-
deildin, miðvikudaginn 19. nóvember 2008.
Gangur leiksins: 0:1, 2:3, 6:5, 7:9, 8:13, 10:15,
11:15, 13:18, 15:22, 19:30, 22:34.
Mörk Akureyrar: Árni Þór Sigtryggsson 7/1,
Hörður Fannar Sigþórsson 4, Jónatan Þór
Magnússon 3, Oddur Grétarsson 3, Anton Rún-
arsson 3/1, Heiðar Þór Aðalsteinsson 2.
Varin skot: Hafþór Einarsson 13 (þar af 2 til
mótherja), Hörður Flóki Ólafsson 7 (þar af 1 til
mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Hauka: Sigurbergur Sveinsson 7, Andri
Stefan Guðrúnarson 7, Kári Kristján Kristjáns-
son 6, Einar Örn Jónsson 6/2, Freyr Brynjars-
son 3, Stefán Rafn Sigurmannsson 2, Elías Már
Halldórsson 2, Arnar Pétursson 1.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 12 (þar af
4 til mótherja), Gísli Rúnar Guðmundsson 7
(þar af 2 til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elías-
son, hafa átt betri dag.
Áhorfendur: Um 1.000.
Kristján með nýjan þriggja ára samning við Keflavík
KRISTJÁN Guðmundsson verður áfram við stjórnvöl-
nn sem þjálfari úrvalsdeildarliðs Keflavíkur í knatt-
pyrnu en hann skrifaði í gær undir nýjan þriggja
ra samning við Suðurnesjaliðið. Undir stjórn Krist-
áns urðu Keflvíkingar í öðru sæti í Landsbanka-
eildinni í sumar þar sem úrslitin réðust í loka-
mferðinni. Hann tók við liðinu af Guðjóni
Þórðarsyni rétt fyrir upphaf Íslandsmótsins árið
2005 og ári síðar hömpuðu Keflvíkingar bikarmeist-
aratitlinum undir hans stjórn.
Kristján fær nýjan aðstoðarmann sér við hlið og það
engan smá reynslubolta en Einar Ásbjörn Ólafsson,
leikmaður Keflavíkurliðsins til margra ára, mun verða
Kristjáni til halds og trausts. gummih@mbl.is