Skinfaxi - 01.10.1909, Side 4
4
SKINFAXI
SKINFAXI,
mánaðarblað U. M. F. í. kemur
út í Hafnarfirði og kostar 1 kr.
árgangurinn.
Ú tgefan di:
Sambandsstjórn U. M F. I.
Ritstjórn:
Helgi Valhýsson, fíuðm. Hjaltason.
Pantanir og blaðgjöld sendist
afgreiðslu
„Skinfaxa"
Hafnarfirði.
Til íjórðungsstjórnanna.
Sambandsstjórn hafá borist styrkbeiðnir
•og fyrirspurnir um væntanlegan styrk af
fé því (kr. 1000), er sambandi U. M. F. í.
var veitt á síðasta þingi, og skal því nú
svarað með því að gera grein fyrir, hvern
ig sambandsstjórn ætlar að verja fé þessu,
eða þeim hluta þess, sem eigi gengur til
framkvæmda þeirra, er sambandsstjórn
sjálf sér um.
Sumir hafa látið i ljósi þá skoðun sína,
eða talið sjálfsagt, að sambandsstjórn skifti
þessum 1000 kr. jafnt á milli fjórðunganna,
f3ggja?), og má vel vera, að það væri eðli-
legast, ef sambandsstjórn sjálf ætlaði sér
ekkeit að gera, og léli alt starf vort
afskiftalaust í hendur fjóiðunganna. — En
þá væri hlutverk hennar harla lítið og ó-
merkilegt. Einnig mundi verða lítið úr
litlu að hiuta styrk þenna sundur í hend-
ur ötulla og starfsamra fjórðunga, ef eigi
hefðu þeir annað starfsfé en það eitt.
Sambandsstjórn hefir því orðið ásátt um
að verja styrknum á þenna veg:
1. ÍJjróttastyrkur: Styrkurinn veitist
gegn tvöföldu tillagi frá fjórðungun-
um (t. d. 100 kr. gegn 200 kr. o. s. frv.).
Skal honum varið til að styrkja í þ r ó 11 a-
mót og verðlauna einstaka menn og
félög.
2. Skógræktarstyrkur: Veitist með
sömu skilyrðum. Skal honum sérstak-
iega varið til girðinga og til að undir-
búaplöntun, (sönnun þess, að givðingar
sé eða verði gripheldar, verða að
fylgja styrkbeiðni).
3- Útbreiðslustyrkur: Veitist með sömu
skilyrðum. Skal honum varið til fyrir-
lestra um ungmennamál og önnur fræð-
andi og hvetjandi efni, er stutt geta og
eflt álit og útbreiðslu félaganna. —
Um upphæð þá, sem veitt verður til
þessara þriggja starfsgreina, er eigi hægfc
að segja neitt ákveðið að svo stöddu. Fer
það eftir þvi, hve mikið sambandsstjórn
notar til þess starfs, er hún hefir með
höndum til eílingar skógræktar, íþrótta
o. fl.
Gfta nú fjórðungsstjórnir farið að leita
hófanna hjá félögum sínum og grenslast
eftir, hverrar fjárupphæðar þaðan sé að
vænta til þessara starfa. Sækir svo fjórð-
ungsstjórn um styrk í hlutfalli við það, er
„fjórðungurinn" getur lagt fram, og
úthlutar honum til félaganna samkvæmt
tiilagi þeirra — eða ver honum á annan
hátt til sameiginlegra afnota fjórðungsins.
— Skógræktarstyrk mundí því fjórðungs-
stjórn veita félögunum sérstaklega, en
verja íþrótta- og útbreiðslustyrk sameig-
inlega — handa öllum fjórðungunum.
Sumum kann að virðast, að til of mik-
ils sé ætlast af fjórðungunum að leggja
tvöfalt íé fram á móti sambandinu. En
svo er eigi, ef skynsamiega er athugað.
Fjórðungarnir (félögin öll) standa mjög vel
að vígi til að leggja fram mikið fé, ef
samvinnan er góð. Fjárins geta þeir aflað
sér á margvíslegan hátt: — sótt um styrk
úr sveita- og sýslusjóði, t. d. til skógrækt-
ar og íþróttamóta. („Gripasýningar eru
styrktar af almannafé; því skyldum vér
þá eigi styrkja mannasýningar?“) Auk
þess geta fjórðungarnir haldið hlutaveltu,