Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1912, Side 1

Skinfaxi - 01.02.1912, Side 1
2. BLAB REYKJAVÍK, EEBRUAR 1912. III. ÁR Mentun. Niðurl. Þannig drotnar þá í heiniinum algerlega röng og verulega hættuleg kenning um, hvernig þeir menn mega vera, sem vilja láta telja sig fyrirmynd meSbræðra sinna. Og ennfremur er svo háttað sálum mann- anna, lögum mannanna og stofnunum mannanna, að sú skoðun hlýtur að halda áfram að ráða um óratíma enn — halda áfram að draga úr sönnum framförum menningarinnar í heiminum. En freistum um stund að gleyma þessum hindrunum. Setjum svo, að þær stofnanir sem nú bækla manninn, væru fúsar að breyta til, og sinna hverri sannri endur- bót. Setjum að lög vanans hættu að bræða æskuna í mynd og líking undanfarandi k}rnslóðar. Setjum að allir skaðlegir hleypi- ■dómar og stéttakreddar væru numdar burt úr höfðum mannanna og allir hrópuðu «inum rómi: „Menning! Ráð þú fyrir ■okkur! Taktu leir jarðarinnar og hlás í hann anda lifsins! Mótaðu okkur svo að við verðum eins og þú veist að best hæfir!“ Og menningin mundi svara: „Aumur maður! bæn þin er heyrð! Egþekki örlög þín, og eg veit, hvað þér hæfir. A leið þinni «ru þrjár torfærur feikimiklar, og er sú siðasta þeirra mest. Ef þú hefir mátt og megin lil að komast lifandi yfir þær allar, þá ertu einn af mínum útvöldu, einn af þeim, sem reisir mina eilífu höll. En ef þú ert of veikur, ef þú ert léttvægur fund- inn, þá muntu hrapa niður í ómælisdjúpið og vera týndur — nema minningin um ósigur þinn, hún mun hvila eins og heljar- bjarg á þeim, sem á eftir þér koma. Gæt þess því vel, maður, að alt er und- ir komið, hvernig þú ert við þessum raun- um búinn. Vit, að allir menn þurfa að vinna, starfa og berjast f'yrir lífinu á jörð- inni. Til að sigra þar, verður þú að vera styrkur og stæltur, fær um að þola hvers- kyns áreynslu og þjáningar, hita og kulda gengi og gæfuleysi, vera æfður og undir- búinn að yfirvinna hætturnar, sem verða á vegum þínum. Þannig máttu sigrafyrstu raunina. En þegar þar er komið, þá finnur þú, göngumaður, að þótt sért hraustur og harð- fengur, þótt þú stritir og stríðir, þá vinnur þú lítið á einangraður, vopnlaus og fákunn- andi. Þú verðar að þekkja heiminn, þekkja lög náttúrunnar, geta sameinað þitt afl annara manna afli. Getir þú þetta, megnar þú að kljúfa bergið og sækja málminn, að temja dýrin á mörkinni, að breyta skóginum og hrjóst.urlendinu í frjó akur- lönd, gera klæði úr grösum akursins en skýli úr klettinum, spenna löndin járnveg- am og segulþráðum en úthöfin eimskips- línum. Gróða jarðarinnar og auði hafsins blandar þú og breytir á þúsund vegu til að fullnægja löngun þinni og lífsþrá. Þetta er brauðstritið, baráttan fyrir fæði, klæð- um, skýli, baráttan til að vernda og við- halda ljósi lífsins meðan auðið er. — Það er önnur þrautin. Og þá er ein eftir enn, sem er miklu erfiðust. Það, að gera þig sannarlega hæf- an til að lifa með öðrum mönnum, það að fá þann djúpa skilning á lífi annara

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.