Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1912, Page 4

Skinfaxi - 01.02.1912, Page 4
12 SKINFAXl mælingar og ölæðisóp sumra karlmann- anna, sem finna sáraukann og neyðina, finna að |)eir búa þarna við ómannleg kjör, en kunna engin ráð betri til að létta af neyð- inni, en að deyfa hana með sterkum nautn- um og stórum orðuni. Ekkert vatn er í lestinni, og engin þjón- usta af skipsmönnum; nema þegar aum- ingjarnir voga sér á forboðna bletti á þil- farinu eða stjórnarpallinum og dönsku skipsmennirnir reka þá niður með barðri hendi og illyrðum. Ekkert sýnir gleggra, að við við höfum stéttaríg, og stéttaþótta og stéttablindni en að leiðandi menn Islands sjá ár eftir ár landa sína, fátæklingana, leikna svo grátt, heyra skipstjórana húð- skamma þá, nefna þá skríl og úrþvætti, án þess að blikna, án þess jafnvel að tala um, að einmitt þetta atriði: lífskjör ís- lenskrar alþýðu, er mesta viðfangsefni þjóð- arinnar. Stundum nægir ekki að pína Islendinga i lestinni, nieð ströndum fram, heldur er þeim boðið hið sama milli landa. Sann- orður Vesturfari hefir sagt mér, að þegar hann fór til Vesturheims fyrir nokkrum ár- um, var honum og félögum bans skipað í eitt hornið í neðri lestinni alla leið til Englands. Annars var lestin full af hest- um, bæði sú efri og neðri. í hafi skall á veður mikið og varð að loka opunum; var þá gerður seglstrompur niður til farþeg- anna í horninu til að byrgja þá að lífs- lofti; en í hristingnum lagðist strompurinn saman og var alt nær því kafnað í neðra hólfinu, bæði menn og dýr. Tilviljun ein, en ekki vit eða fyrirhyggju skipsmanna, bjargaði lífi þessara manna. Munur er nú á mannsæfinni. Munur er á því, sem efnamenn annara þjóða veita sér á ferðalagi, og því sem íslenska þjóð- in á við að búa. Munur er á leikhöllum sundskálum og páhnalundum úthafsdrek- anna miklu eða lestinni dimmu og við- bjóðslegu, sem megin-þorri íslendinga verð- ur að nota, þegar þeir ferðast með strönd- um fram. Þorir nokkur maður að segja, að þau kjör séu góð, og að svona beri að fara með menn af því þeir Iifa af að vinna nytja-vinnu? Eða mundi nokkur óska þess, að með sig væri svona farið, ef hann ætti annars úrkost? Geta ekki þeir, sem þessu ráða, reyntað skilja, eins og Lear konungur í ofviðrinu og steypi- regninu, að fátæklingar hafa b'ka hold og blóð, að þeir finni til og kveljast fjarska líkt og hinir, sem halda, að þeir séu göf- ugri: Að sömu öft lyfta upp og draga niður manninn, hver sem er líjsstaða Jians. Væri nú alveg óhugsanlegt fyrir íslensku þjóðina næst, þegar leiðtogarnir biðja um fylgd til að hafa ráðherrabrall eða hneyksli utanlands eða innan, að biðja þá að líta nær okkur að viðfangsefni? Við þyrft- um ekki að ganga svo yfirtakslangt í kröf- unum til þess að mikil bót væri fengin í þessu máli. Við gætum t. d. sætt okkur við á næstu áratugunum að unnið væri þangað til mannabústaðirnij- í Iandinu, og fartækin meðfram ströndum væru ekki óheilnæmari, ekki tiltöluiega loftminni, dimmri eða þrengri en meðalhegningar- hús í siðuðu landi. Allir menn, sem hafa opin augu, vita að við stöndum svo lágt í þessu efni, að við verðum að taka stór- kostlegum framförum áður en við náum þessu vesala lágmarki. Hér hefir verið stuttlega rakinn einn þáttur úr hverdagslífi íslensku þjóðarinnar og borinn saman við fremstu frændþjóðir okkar. Munurinn er sorglegur. Og enn sorglegri af því, að hvorki leiðtogarnir né sjálfþjóðin virðast finna, hvarskórinn krepp- ir að. Því að iíkt og strúturinn, sem hygst að flýa veiðimanninn með því að fela höfuðið i sandinum, reynuin við að bæta drepið og dauðann i þjóðlíkamanum með því að grafa okkur í háum haugum afl- vana pappírslaga.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.