Skinfaxi - 01.02.1912, Blaðsíða 7
SKINFAXI
15
fegursta skemtigarði Lundúnaborgar, en
Frakkar í Sygnu inn í miðri Paris. Er
]jað skeið 200 metrar, og allörðugt, því
að þótt áin sýnist lygn, er þó vatnsmagn
mikið og straumþungi en örmjótt þrep,
sem sigurvegarinn verður að lenda við.
Komi hann neðar að landi hefir hann
tapað leiknum, jafnvel þótt hann sé lítið
eitt fljótari en sá næsti, ef hann lendir
á réttum stað. Það veldur þessari tilhögun,
að sundraun þessi á að hvetja menn til
að verða sem færasta til að bjarga drukn-
andi mönnum, Er þá öllu meira komið
undir að geta haldið réttri stefnu, hvað
sem á dynur, en þótt fáeinum metrum
muni á löngu færi.
Nú á jóladaginn keptu 15 menn um
Parísar-bikarinn. Einn þeirra var Meister,
mesti sundgarpur Frakka; hafði hann
unnið bikarinn fjórum sinnum i röð.
Hugði hann enn á sigur og synti sem
mest hann hann mátti og stefndi beint á
markið; það gerðu einnig ílestir hinir
kapparnir. En í miðri ánni varð straum-
urinn þeim ofurefli, og hrakti þá niður
fljótið nokkuð og út af réttri leið. Meister
gekk þó dável, þar til ekki voru meir en 20
metrar að markinu. Þá greip straumiðan
hann og kastaði honum nokkru metrum
ofan fyrir lendingarstaðinn.
Að eins einn af sundmönnunum beitti
sér öllu meir í strauminn en til að brjót-
ast áfram. Það var heimsmeistarinn á
200 metrum, Gourbet úr Belgíu. Hann
náði þeim rétta lendingarstað fáum sek-
úndum eftir að Meister lenti neðar. Cour-
bet var 1 m. 45 sek. og vann hann hikar-
inn. — Setjum svo að sundkappa okkar,
Erlingi, hefði tekist að halda sama hraða
á 200 metrum, mundi hann þó hafa orðið
45 [sek. á eftir heimsmeistaranum. En
byrjunin er góð, og vel og drengilega fara
sundmenn okkar af stað.
Nýtt Ungmennafélag,
12. des. síðasth, á aldarafmæli Skúla
fógeta, var stofnað Ungmennafélag á Hvann- 1
eyri í Borgarfirði. 05 voru félagsmenn
orðnir um áramótin. Meginstyrkurinn 44,
heima á staðnum, nemendur og kennarar,
enda af eigi litlu að taka. Félagið heitir
Islendingur. Páll kennari Zóphóniasson
er formaður. Félagið hefir þegar gengið
í sambandið.
Það hlaut að koma Ungmennafélag á
Hvanneyri. Eitt fjölmennasta heimili á
landinu, jafnt vetur sem sumar, og all-
þéttbygð sveit í kring. Og ekki þarf að
kvíða húsnæðisleysi. Liklega eru Ung-
mennafélög nú orðin einna þéttust i Borgar-
firði, nálega í hverri sveit.
Best trúi ég á framlíð Ungmennafélag-
anna i sveitunum. Þar held ég bestan
jai'ðveg fyrir þau. Þessvegna þykir mér
svo vænt um að Ungmennafélag er stofnað'
á ftíewcíaskólanum. Nemendur sækja
þangað úr öllum áttum, og vissulega má
búast við, að þeir verði þá einhverjir lili
forgöngu um félagsskap heima fyrir á eftir.
Tr. Þ.
Eit um skógrækt.
Sambandsstjórn hefir ákveðið að út verði
gefið á vegum Sambandsins rit um skóg-
rækt eftir Guðmund Davíðsson skógræktar-
mann. — Það fræðir um margt það er
nauðsynlegt er að vita öllum þeim, er
hjálpa ætla til að „klæða Iandið“.
Séð verður um að gera kverið svo úr
garði, að eigulegt verði.
Auk þess sem rit þetta verður selt öll-
um, sem hafa vilja, er ákveðið, að kaup-
endur Skinfaxa fái það ókeypis, — ]>.
e. þeir sem borga blaðið. — Þau eiga að
vinna hvort fyrir annað: Skinfaxi að út-
breiða ritið — og það að fjölga kaupend-
um Skinfaxa.
Sig'urjóii Póturssou
býst nú liL utanferðar. Hann mun fara
um Norðurlönd, ef til vill víðar, og senni-
lega taka þátt i olympisku leikunum í
sumar. Þó mun aðaltilgangur hans að
læra nýjar íþróttir og fullkomna sig í þeim
1 gömlu, í því skyni að geta síðan verið enn