Skinfaxi - 01.09.1912, Page 8
72
SKINFAXl
Á Laustiu
eru hvað mestir mannflutningar, og eink-
um til Reykjavíkur, þar sem skólarnir
eru flestir. Ungmennafélagar sem ílytja,
muni eftir réttindum þeim, er þeir eiga
samkvæmt sambandslögunum, þar sem
Ungmennafélag er fyrir. — U. M. F. R.
biður þess getið, að það vilji gera aðkomu-
félögum sem hæst undir höfði og veita
þeim þátttöku í glimum og öðrum fyrir-
tækjum sinum með sömu skilyrðum og
eigin félögum. Þeir sem koma, segi lil sín.
Þeir einir
fá Skógræktarritið ókeypis með Skin-
faxa, sem hafa goldið andvirði hans d ár-
inu, munið það! Til lítils mun að senda
þeim mönnum blaðið áfram, sem slíkt fá-
dæma tómlæti sýna, að láta þessa góðu
bók ganga úr greipum sér. — Hvað varð-
ar þann mann um áhugamál Skinfaxa,
sem encju iætur sig skifta skógræktarmál
iandsins? Um fram alla muni, látið Skin-
faxa ekki ala óráðvendnina í landinu. —
Odýrast er að senda andvirðið með póst-
ávísun.
Cuðin. Davíðsson
er nýkominn austan frá Sogi, þar sem
hann var að vinna við skóglendi Ungm.-
félaganna. Fé hafði komist inn á landið
mcð því að rótað hafði verið (af manna-
höndum), hleðslu undir girðingunni á tveim
stöðum, var það þar sem vegur hafði leg-
ið áður. — Mönnum ér ekki láandi, þó
að þá langi til að sjá reynifrén, og fari
þessvegna inn fyrir girðinguna, en ekki er
hún rík löngunin hjá hessu fólki, að slík-
um trjám fjölgi á landinu, ef það hirðir
ekki um að aftra öðrum verri spellvirkjum
inn á eftir sér. Guðm. smalaði, bætti
girðinguna grisjaði og seldi við. En krummi
hafði kroppað alt fræið af reynitrjánum,
þegar það skyldi taka.
Urn Skinfaxa.
Víst er um það að gengi hans fer batn-
andi, og er þar til marks hin óvenjumikla
Mi
SKINFAXI
3 — mánaðarrit U. M F. í. — kemur út i Reykjavík
j og kostar 1 kr. árgangurinn, erlendis 1,50 kr.
ÍRITSTJÓRI:
Jónas Jónsnon frá Hriflu.
u Skólavörðustig 35.
U Afgreiðslumaður:
Björn Þórhallsson Laufási
Ritnelnd:
H Agúst Jósefsson, Guðbrandur Magnússon
Tr. Þórhullsson.
[U___________
kaupenda-aukning, því heita má að hún
hafi tvöfaldast tala kaupendanna á einu
ári Og nær hundraði munu þær vera
beiðnirnar um hann, sem komið hafa síðan
birgðirnar þraut. — Ritið sem fylgdi hon-
um ókeypis mun eiga þátt í þessu að
nokkru, en álika rit fylgja honum fram-
vegis, svo gera má ráð fyrir mikilli aukn-
ingu enn þá.
En nú er mælst til þess, að þeir, sem
gjörast ætla kaupendur Skinfaxa með næsta
ári, gefi sig fram fyrir áramót, svo að
eintakafjöldinn geti orðið hæfilega ákveð-
inn. — Ungmennafélagar! Það œtti að
vera hægt fyrir hvern ykkar sem er, að
útvega einn nýjan, skilvísan kaupanda, því
jafn-ódýr bókakaup fást ekki i landinu.—
Og það sem þið ætlið að gera til að út-
breiða blaðið, skuluð þið gera sem allra
fyrst.
Eitsöfuunin.
Þessir hata þegar lagt skerf til hennar:
Ungmennafélag Reykjavikur 25 kr., G.
5,00, J. S. 5,00, J. Þ. 1,00, Þ. K. 1,00.
Alls 37 kr.
íþróttafélagiö í Eeykjavík
færir nú út kvíarnar. Hefir það auk
venjulegra æfinga í vetur námsskeið fyrir
unglinga, byrjendur. Kennari er Björn
Jakobsson.
Félags'prentsmiðjnn.