Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1913, Blaðsíða 2

Skinfaxi - 01.12.1913, Blaðsíða 2
90 SKINFAXI á allskonar vinnu, sem gera þarf hér á landi. Með honum eiga piltarnir að vera hvern dag í 2—3 st. og fást við allskonar gagnlegar smiðar úr tré, járni, leðri, steini. Gætu lærisveinarnir þá smíðað fyrir sjálfa sig ýmsa gagnlega gripi: skíði, skauta, bað- ker, stafi, ferðaskrínur, en fyrir skólann sleypt steina, gert borð og bekki, rúm, legubekki, dýnur, báta, tjöld og ótal margt annað, sem gagnlegt væri. Þegar voraði mætti í skyndi reisa ný hús úr steyptu steinunum, og gera að húsunum í þessum vinnutímum. Væri svo haldið áfram vet- ur eftir vetur, uns skólinn væri fullbygð- ur, en það mætti telja, þegar komin væru góð hús handa 50 nemendum, kenslustof- ur, leikstofur og íbúðarhús handa starfs- fólki skólans, og mundi undir hæfra manna stjórn eigi þurfa nema 10 ár til að koma slíkum skóla á fastan fót. Hann væri þá eign hlutafélags, og sumir hluthafar starfs- menn, en aðrir aðeins hlyntir hugmynd- inni. Ef eigendurnir eru nú svo eigingjarn- ir að vilja gera skólann að gróðastofnun, þá er velgerð þeirra engra þakka verð, og mundi launuð að verðleikum. Enginn ein- stakur maður má binda stofnanir, sern geta orðið langlífar, við sitt skammvinna, líf. Jafnvel þó forgöngumennirnir reynist vel í öllu, fer oftast á aðra leið, er þeir falla frá. Erfingjarnir hafa önnur áhuga- mál; þeir líta aðallega á verðmæti arfsins og skeyta lítt um hinn upphaflega tilgang. Þjóðskóliuu eiga- I þessu efni verða stofn- ast sjálfau sig. endurnir að sætta sig við að fá fé sitt aftur smátt og smátt, með vaxtavöxtum, en að láta þjóðskólann verða efnalega sjálfstæðan, eiga sig sjálfan. Með því er liann hafinn yfir mannlegt dægra- flugulíf. Þegar svo væri komið, yrði enginn vandi að láta stofnunina lifa góðu lífi og standa i skilum við hvern mann. Nú yrðu all- mildar árstekjur: Húsaleiga frá nemend- um talsverð, þótt taxtinn væri mun lægri en i kauptúnunum. Kenslukaup nemenda sem yrði að vera allhátt. Sá misskilning- ur þarf að lagast að góð kensla kosti ekki neitt fremur en andrúmsloftið; hún fæst þvert á móti aldrei, nema að hún só vel borguð, því að kennaravit er dýrt eins og alt vit. Stundum mundi landið styrkja eitthvað, en varla væri mikið gerandi úr því. Að síðustu kærni Iandskuld af jörð- inni frá kennurunum. Utgjöldin yrðu: kaup kennaranna, umbætur á jörð og byggingum, viðhald, vextir og afborganir af láni, meðan stofnkostnaður væri að greið- ast. Með bæjarhúsum yrði að telja íbúðar- hús handa kennurunum; ættu þeir að fá þar leigulausan bústað, meðan þeir væru starfsmenn stofnunarinnar en jörðinni væri skift milli þeirra; hver hefði land til rækt- unar og afnota. 011 framtíð sveitanna byggist á ræktuðu landi, nýbýlum og véla- vinnu. Stæði engum nær en þjóðskólun- um, ef þeir kæmust á, áð ganga á undan með góðu eftirdæmi. Sveitalíf og Fyrir kennarana væri bú sveitavinua. skapurinn lífsnauðsyn. Hann Stjórn. gerði þeim unt að lifa við lág laun, svo sem oftast mundi verða. Hann væri verksvið fyrir atorku þeirra; hann verndaði þá frá bölvun áreynsluleysisins og hann héldi þeim i eðlilegu og lifandi sambandi við framleiðandi hluta þjóðar- arinnar, sem þeir ættu að menta. Dagleg stjórn væri í mörgu besl komin í höndum nemenda undir yfirumsjón skóla- stjórans. Yfir skólastjóra og kennurum væri nefnd kosin til all-langs tíma. Hún markaði aðaldrættina í dagskrá stofnunar- innar, réði starfsmennina, og hefði aðal- fjárstjórnina á hendi. Mikill vandi er að velja slíka nefnd, svo að „hún hugsi rétt og vilji vel“, en að öllu samtöldu færi best á, að gamlir, útskrifaðir nemendur réðu sinni stofnun. Þeir einir hefðu atkvæðis- rétt og kjörgengi í stjórnarnefndina, því að sanngjarnt er að búast við, að þeim væri hlýtt til stofnunarinnar, og væru öðr-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.