Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1913, Síða 3

Skinfaxi - 01.12.1913, Síða 3
SKINFAXI 91 um betur hæfir til að bera skyn á þarfir alþýðunnar, og hagkvæmar endui'bætur, sem breytingar tímans verða að liat'a í för með sér. Keuslan. Enn er ótalað um kensluna, nema hina verklegu. Námstíminn getur varla verið meira en tveir vetur, en helst ættu vorin að fylgja með. Á þeim tíma þarf að leggja grundvöll undir æfivinnu mannsins; vinna að surnum hliðum alveg til lilítar, en leggja undirstöðu á öðrum sviðum og kenna að vinna. Alveg skil- yrðislaus nauðsyn væri að byrja kensluna með að rannsaka einstaklingseðli nemenda, og halda þeim athugunum áfram sam- hliða kenslunni; eftir því má raða i hópa eftir innri skyldleika. Kennarinn reyndi þá ekki að lemja höfðinu við steininn; treg- gáfuðum mönnum væri ætlað minna bók- nám en skýrleiks mönnum. í stað þess fengju þeir meiri kenslu í vinnu eða iþrótt um, og mundi það þá nær skapi þeirra, þvi engum er alls varnað. En jafnvel þeir menn, sem minna lærðu um hugræn efni, af þvi að það væri móti eðli þeirra, myndu samt verða betri og skýrari félagsmenn við að taka starfandi þátt í fjölbreyttu skóla- lífi. Onnur höfuð umbót, sem taka mætti til, væri að nema sem mest með að vinna það, og hin þriðja að Iáta kenslugreinarn- ar mynda náttúrlegt kerfi, þar sem hver grein veitir annari stoð eins og hönd hendi eða fótur fæti. í stað hinna mörgu bóklegu tíma, sem nú tíðkast í skólum, ætti að fækka þeim að mun, en heimta heimavinnu í bóka- safni, og það yrði stofnunin að leggja til. Tvö mál yrði að kenna vel: móðurmálið og ensku ; islenskuna með því, að allir lesi með athygli sem mest af því sem vel hef- ir verið ritað á íslensku, þá nokkra mál- fræði, og gerðar síðan margar ritgerðir í öllum þeim fræðum sem numin eru. Ensku yrði að kenna svo vel, þegar hinn fýrri vetur, að neniendur gætu lesið fræðibæk- ur og skáldskap á því máli. Mundu lestrar- fúsir og fróðleiksgjarnir menn síðan á- valt nota ensku til þekkingaraðdrátta ut- an úr heimi, en móðurmálið til yndis og gleðiauka heima fyrir. Námsgreínar í flestum skólum eru mjög sundurlausar, í stað þess að þær ættu að mynda eðlilegar heildir. Eitt hið glögg- asta fræða-kerfi er það, sem kent er við franska spekinginn Comte. Eru þar stund- uð í eðlilegri röð sýnileg, sálar- og félags- leg fyrirbrigði. Fyrst er numið um stjörn- ur himinsins, uppruna þeirra, hreifing, afl og eðli, þá um jörðina og sögu hennar, uni dýr og jurtir eða lífið á jörðinni. um sálarlif skynsemi gæddra vera, en að sið- ustu um félagssamböndin, frá þvi hinir tveir fyrstu samverkamenu ruddu steini úr götunni. Það er félagsfræðin, sem nú er að myndast, og framar öðrum fræðum gefur glöggan skilning á borgaralegu lífi, sögu þess og eðlilegri framþróun. Mjög mikið mælir með þvílikri kenslu. Húu gefur heildarsýn yfir náttúruna; hún veitir ábyggilegan reynsluforða; hún sann- færir um gildi og tilveru náttúrulaganna, líka i mannlegum efnum, þar sem erfið- ast er að verða þeirra var; hún æfir í að hugsa um hugræn efni sem er lífsnauð- syn nú á dögum. Fyrir skort á heppi- legri æfingu í að hugsa er fjöldi kjósenda í öllum löndum sannnefnt kosnitigafé; góðir menn heima fyrir, en í mannfélags- málefnum herfang þeirra, sem hæst kalla og ósvífnast. íþróttlr. I öllu eðlilegu lifi hugsar mað- urinn, vinnur og skemtir sér. Alt þetta eiga þjóðskólarnir að hafa til að búa undir lífið. Iþróttirnar gera gagn og gleðja lika, bæði þá sem þær fremja, og hina sem á horfa. Hér á íslandi mætti æfa heimaleikfimi (Múller), gang, hlaup, suud, stökk, skiða- og skautaferðir, glímur, knatt- leiki, róður, sigling og skotfimi með byss- um og bogum. Líkaminn er aldrei of stæltur og þolinn, né of mjúkur og liðug-

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.