Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1913, Síða 4

Skinfaxi - 01.12.1913, Síða 4
92 SKINFAXI ur. íþróttirnar auka heilsu og hreystibrag, gera menn kjarkmeiri og duglegri. Þær eru vörn á móti margskonar spillingu og freistingum, sem fjöldi unglinga fellur fyr- ir á þroska-aldrinum. Iþróttir, skynsam- lega æfðar, eru þvi eitt hið öruggasta ráð, til að endurfæða beygða þjóð. — Tveir vetur og tvö vor í slikum skóla mundi vera stór atburður í æfi íslenskra unglinga. Það mundi hjálpa þeim til að taka föstum tökum á lífmu, til að glíma við veruleikann eins og hann er, til að geta orðið góðir borgarar í þessu landi við íslensk kjör. Og það væri þó nokkurs vert. J. J. Um íslenska fánann. Ný tíðindi hafa gerst i fánamálinu. Konungur hefir úrskurðað, að ísland skuli hafa sérstakan fána, sem nota megi í landinu og landhelgi þess, þó að eins sandiliða danska fánanum á stjórnarráðs- húsinu. Fánamál eru tilfinningamdl ogeigaaS vera tilfinningamál. Engin þekking eða lærdómur ræður i slíkum málum, þau hafa víðara svið en það. Og þá er fánamálið íslenska það auðvitað líka. Og þessvegna höfum við Ungmennafélag- ar getað átt svo ríkan þátt í fánamálinu og getum ])að framvegis. Við erum ung- ir menn, flestir, og eigum minni þekkingu en eldri mennirnir. En þess gætir ekki í þessu máli. Aðalatriðið hér, er að eiga óbrjálaðar tilfinningar um það, að vér séum sérstök þjóð, og œtlum að vera það, þjóð, sem ætlar að vinna sig það upp og áfram, að hún verði þess í raun og veru makleg, að heita sérstök og sjálfstæð þjóð. íslenski fáninn er tákn sérstakra þjóð- erniseinkenna, en hann hefir jafnframt verið, er og mun verða tákn þeirra vona, sem allir góðir Islendingar ala í brjósti um framtíð landsins og fult sjálfstæði. Hon- um hefir verið veifað sem tilvonandi fuíl- veldisfána þjódarinnar, og tákni alls þess, sem gert er til þess að áfram miði í þá áttina. Þess vegna virtist ekki tímabært að hreyfa því á alþingi, að fáninn yrði lög- helgaður. Líkurnar of litlar til þess, að það næði fram að ganga, en alt minna en fullveldisfáni fengið þá leiðina, verra en ekki neitt. Okkur var formlega ólöghelgaður fáni nógur, hefðum við að eins notað okkur hann. En nú er komið sem komið er. Konungurinn hefir sent okkur fána, að vísu takmarkaðan. Látum það verða til góðs eins. Hingað til höfum við ekki orð- ið sammála um það, að við ættum að hafa sérstakan fána. Vonandi verðum við það nú. Danski fáninn fer íslendingum ver hér eftir en hingað til. Notum þennan konungs- senda fána í ríkum mæli. Okkur er ekki síður unt að auka við gildi hans, en al- ólöghelgaða fánans áður. Og þá fer ekki hjá því, að á endanum verður settu marki náð. En eitt er í þessu máli, sem eftir er að ákveða. Það er fánagerðin! En eins og sakir standa, er „fánamáli íslensku þjóð- arinnar" mikils um vert, að hún sé hin sama og þess fána, sem brent hefir sig inn í huga þjóðarinnar öll þau ár sem liðin eru, síðan hafist var handa um það mál, fáninn sem yljað hefir hugum manna við meiri háttar tækifæri; fáninn sem Ung- mennafélagar neituðu þingmönnunum um að draga niður á Þingvöllum, þegar kon- ungurinn var þar; fáninn sem þing og þjóð hefir hvað eftir annað aðhylst; fán- inn sem blakti í þúsundatali um land alt á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar; fáninn

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.