Skinfaxi - 01.12.1913, Síða 8
96
SKINFAXI
IE=s”k
1«
fl
SKINFAXI
— mánafiarrit U. M F ]f. — kemur út 1 Reykjavik
og kostar 1 kr. árgangurinn, erlendis 1,50 kr.
RTTSTJÓRI:
Jónas Jónssoti frá Hriflu.
Skólavörðustig 35.
Afgreiðslumaður:
Bjarni Þ. Magnússon Skðlavörðustig 6 B.
Ritnetnd:
Agúst Jósefsson, Guðbrandur Magnússon,
Tr. Þórhallsson,
kemur út 12 sinnum á ári. — Vert er ]ieim
er gjörast vilja útsölumenn að hefjast
handa nú þegar, því í næsta blaði verða
auglýst verðlaun handa þeim 5 inöniium
sem útvega Skinfaxa flesta kaupendur.
Munið að Skinfaxi er meginstoð sam-
bandsins og félaganna, að hann er gott
blað og ódýrt, og að ofan á alt þetta fylg-
ir honum góð bók ár hvert.
Keppið um verðlaunin. Keppist um að
greiða götu Skinfaxa. Munar um hvern
kaupanda sem honum bætist. q ^
Stækkun — Útsölumenn.
Á það hefir verið minst, að Skinfaxi
mundi stækka um helming og byrja að
flytja myndir og að verðið mundi hækka
upp í tvær kr. — Þetta er nú fasfákveðið.
Skinfaxi verður 16 siður framvegis, i stað
8, en kemur mánaðarlega eins og áður. —
Breyting þessi er sprottin af þörf, blaðið
hefir ekki komist yfir að ræða nærri alt
það er skyldi, og væntum vér því, að
breytingunni verði tekið með fögnuði af
öllum vinum blaðsins.
En hér er auðvitað dálítið djarft teflt,
kostnaðurinn eykst um rífan helming, og
þetta ber sig því að eins, að állir standi
í skilum. Hitt er líka fullvíst, að útbreiðsla
blaðsins gœti verið miklu meiri; vér sem
að því stöndum ætlum nú að gera snarpa
atrennu til að auka hana, en það er ekki
nóg. Allir ungmennafélagar og vinir blaðs-
ins verda að gera miklu meira til þess
að afla blaðinu gengis, og vér vonum að
þeir geri það nú.
Sölufyrirkomulaginu verður breytt. Blað-
ið vill ráða sér ötula, reglusama og ábyggi-
lega útsölumenn í öllum bygðum lands-
ins, sem safna að sér sem flestum kaup-
endum og séu milliliðir um hvorttveggja,
útbýting og innheimtu, og fá þeir 40 aura
<20%) af hverjum kaupanda að launum.
Það eru óvenjuhá laun fyrir blað sem
Heiinilisiðuaöarrit.
sem skilvísir kaupendur Skinfaxa þetta ár fá
ókeypis, getur fyrir ófyrirsjáanleg forföll ekki
komið út fyr en á nœsta ári. Skinfaxi biður alla
hlutaðeigendur at'sökunar á þessu, en getur hins-
vegur fullyrt það, að bókin verður fullkomnari
fyrir þennan frest sem verður á útkomu hennar.
Eins og ráðgert hefir verið, fylgir blaðinu eitt
rit árlega, og eru drög lögð fyrir það, að næsta
árgangi fylgi Þjóðfólagsfrceði eflir Einar prófess-
or Arnórsson, og munu báðar þessar bækur
fylgjast að að ári til allra þeirra, sem standa í
skilum við Skinfaxa.
íþróttanámsskeiöinu
en nú lokið. Kent hafa þar Bj. Jukobsson,
Erlingur, Guðm. Kr., Hallgrimur, Magnús Tóm-
asson, Sigurjón, Wuage o. fl. Þeir þrímenningar:
Helgi, Kári og Sigurður byrja nú að haf'u náms-
skeið f félögunum. Þeir hafa með sér ýms íþrótta-
tæki, knött, spjót, kúlu, kringlu og stöng. Þeir
vinna kauplaust, en félögin borga fæði og f'erða-
koslnað. U. M. F. í Borgarfirði og Mýrum snúa
sér til Jóns i Deildartungu, en Rungvellingur og
Árnesingar til Helga i Birtingaholti með allar
umsóknir viðvíkjandi íþróttakenslunni.
Bréfakvöld.
Ungmennafelug Akraness hefir ákveðið bréfa-
kvöld hjá ser á af’mælisdegi sinum 23. jan. næst-
komundi.
Ungmenuafélag Biskupstungaa
hefir ákveðið bréfakvöld hjá sér i nœstkom-
andi janúarmánuði. Væntir brófa frá Ungmenna-
félögum og öðrum viða að.
Félagsprentsiniðjan.