Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1917, Page 2

Skinfaxi - 01.02.1917, Page 2
10 SKINFAXI. stendur ú vegamótunum og á að velja milli vínlandsins og bannlandsins, þá von- um við, að flestir þeir sem hugsa hátt og vona djarft, vilji lieldur festa bygð sína í bannlandinu. Mörg veglegri við- fangsefni biða œskumannanna hér á landi heldur en að drekka áfengi. Margir veg- ir vænlegri til gleði og manndóms heldur en drykkjubrautin. Reynslan sker úr þessum málum. „Vormenn landsins" sýna i verkinu, hvort þeir vilja fylkja sér um fallið merki vínguðsins eða fylgja bann- mönnum og gera ofdrykkjuna landræka fyrir fult og alt. Framtíð Þrastaskógar. Eins og kunnugt er, tóku ungmennafél. við Þrastaskógi að gjöf, með þeim skilyrð- um, að þau ræktuðu hann eins vel og þau framast gætu og hefðu best vit á. Félags- skapurinn áleit að auðvelt mundi vera að uppfylla þessi skilyrði fyr eða siðar. En til þess þó að það geti orðið, þurfa kraft- ar allra ungmennafjelaganna að vinna i sameiningu. Þegar skógurinn var girtur, var stórt spor stígið i áttina til þess að ræktá hann. Verndun hans var trygð, en það er undirstaðan undir ræktuninni. Tölu- vert er búið að grisja í skóginum (ca. 20 þús. □ m.). En miklu meira þarf að gera. Fræplöntur þarf að rækta, að svo miklu leyti sem hægt er, og gróðursetja nýjar trjátegundir í rjóðrin, halda áfram að grisja kjarrið, og gefast ekki upp við það, fyr en allur skógurinn er grisjaður, halda girðingunni við, endurbæta hana árlega. o. fl. o. fl. Mörg handtök þarf að gera skóginum Þ‘l gagns, til þess að einhver árangur sjáist. Ekkert af þessu kem- ur af sjálfu sér. Og engum öðrum en ungmennafjelögunum er trúað fyrir að koma þessu í framkvæmd, og því er treyst að þau ræki það með alúð og sam- viskusemi. Félagsskapurinn verður að miklu leiti metinn eftir þvi, hvernig hann leysir af hendi þetta starf — hve vel hann ræktar eignarjörð sína Þrastarskóg. Því verður ekki neitað að fjelögin eiga hér óhæga aðstöðu. Þau eru dreifð víðs- vegar um landið, og geta því ekki brugðið sér til Þrastaskógar, i tómstundum, til þess að vinna í honum. Sökum þessarar fjar- lægðar hafa þau lítið af skóginum að segja, og því má búast við að þau geri sér litla hugmynd um, hvernig ræktun hans muni best borgið í framtjðinni. Þrastaskógur liggur á takmörkum fjög- urra þéttbygðra sveita: Grafnings, Ölvess, Grímsness og Flóa. Akbraut frá Reykja vík austur um Grímsnes og Biskupstung ur liggur hjá skóginum við Sogsbruna Þegar akbrautin er komin alla leið austur að Geysi, verður hún með fjölförnustu vegum landsins. Hún verður notuð af öll- um uppsveitum Árnessýslu, og með tím- anum má gera ráð fyrir óslítandi ferða- mannastraum um veginn, til Geysis, að sumrinu. Að því rekur að knýjandi nauð- syn verður fyrir greiðasölubús við veginn. Sjálfkjörinn staður fyrir það er hjá Sogs- brúnni, fast við Þrastaskóg. Og alt mælir með því að ungmennafélögin lát reisa það hús, eigi það og hafa umráð með því að öllu leyti Húsið mætti reisa innan Þrastaskógar- girðingarinnar og vanda til þess sem best, svo að það gæti verið góður sumarbústað- ur handa manni, sem ráðinn yiði til þess að dvelja þar vor og sumar til að hafa á hendi umsjón með ræktun skógarins, og sæi um alla vinnu, hirða hann o. s. frv. Auk þess hefði sá maður greiðasölu á hendi, og mundi sú atvinna ein borga sig vel að sumrinu. Þá ætti hann og geta stundað matjurtarækt með góðum árangri. Er nóg landrými og góður jarð- vegur i Þrastaskógi fyrir matjurtagarða. Umsjón með Sogsbrúnni gæti hann einnig

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.