Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1917, Blaðsíða 8

Skinfaxi - 01.02.1917, Blaðsíða 8
16 SÍQNÍ’AXÍ íív. Við vitum að þeir eru til Eyjafialla- og Eiriksjökull og alt þeirra frændlið mikið og tígulegt. Við vitum af heiðalöndunum, — þessum undarlegu æfintýralöndum. Þar kemst bæði vetrariki og sumardýrð í al- gleyming. Þar bjuggu fyrrum útilegumenn og huldumenn. Hrifu þeir stundum á brott með sér bændadæturnar, hinar fall- egustu, er þær hvörfluðu frá bygðinni í grasaferðir. — Já, við vitum að ísland hefir margt gullfallegt að geyma, en flest pehhjum við ekki, af eigin sjón, nema örlítinn hluta þess. Mörg af okkur flytj- umst við frá æskunni, og yfir í alvöru og áhyggjur fullorðinsáranna. án þess næstum að hafa stígið fæti út af smalaþúfunni. Og þó þráum við viðsýnið. Hún er eiginleg æskunni þráin eftir því, að „kom- ast upp á fjallið og sjá hvað hinumegin býr“. Og eiginleg reyndar bœði gömlum og ungum. Því ferðumst við þá ekki meira? „Fátækt“, — „getuleysi“, heyri eg kveða við hvaðnæfa. Nei það er ekki alt vegna fátæktar. Fyrir þvi skal ég færa nokkrar líkur. Hér í Borgarfirði þar sem ég þekki best til, þykir sá varla maður með mönn- um, sem ekki fer a. m. k. einu sinnu á ári til Reykjavíkur. Slíkar ferðir kosta ærið fé, og líklega meira en margir ætla. Því þá ekki að breyta til. Fara eitt árið norður, annað vestur, þriðja austur, og þá fjórða árið til höfuðborgarinnar. Auðvitað lasta ég ekki höfuðborgina okkar, með kvikmyndaleikhúsin, gasljósin og ráðherr- ana þrjá. En það hygg ég, að þar séu það einkum mennirnir og verh þeirra sem halda athygli ferðamannsins fastri. Alt annað að ferðast um ókunn héruð eða fjöll á vordegi. Þar liggur mér við að segja, að athyglin hljóti fremur að beinast að guði og verhum hans. Eg held því að flestir, a. m. k. flest sveitafólk, sem hefir einhver ráð á hest- SKINFAXI. Mánaðarrit IJ. M. F. í. Yerð: 2 krónur. Ritstjóri: Jónas Jónsson, Skólavörðustíg 35. Sími 418. Al'greiðslumaður: Egill Guttormsson. Skólavörðustíg 8. um, gætu farið skemtifarir öðru hvoru. Reynslan sýnir að menn geta farið skemti- farir til Rvíkur. Yrðu ferðirnar varla dýrari, þó þeim væri, við og við, heitið í aðrar óttir, jafnvel þó ferðir um fjöll og sveitir heimti dýrari tíma en R.víkurferð- irnar. Því skemtilegast væri auðvitað að ferðast um fjöll og fjarlægar sveitir að vorinu; helst rétt fyrir sláttinn, þegar mennirnir, hestarnir, landið og loftið væri alt þrungið af sumarsælunni. Ein aðalhugsjón ungm.félaganna er, að sameina hendur og hugi æskunnar. Sú hugsjón er þörf, um leið og hún er fögur. Sundrungin getur verið þjóðarmein. Það var hún á Sturlungaöldinni, og það hefir hún oft verið síðan. Sum ungm.félög þau, er i nágrenni búa hvert við annað, gera hvort öðru heim- boð. Fátt sameinar betur hendur oghugi en slíkar heimsóknir. Þær eru að vísu annmörkum bundnar, einkum ef fara ætti út úr héraði. Gaman væri þó að geta stökusinnum, tekið í hendur starfssystkyn- um sínum, hinumegin við fjöllin og veg- leysurnar. Niðurl. Ritstóri: Jónas Jónsson frá Hriflu. Félagsprentsmiðjan

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.