Skinfaxi - 01.07.1917, Side 1
Sambandsþingið.
Ungmennafélögin hafa nú lialdið fimfa
aðalfund sinn. Aðsóknin var tiltölulega
mikil, einkum þegar þess er gætt, hve
skipaferðir eru nú óhentugar. Sambandið
hefir á umliðnum þrem árum drjúgum fært út
kvíarnar, stækkað alt að því um þriðjung
bæði að tölu félaga og félagsmanna. Hafa
þó styrjaldarvandræðin á fjölmargan hátt
dregið úr framkvæmdunum.
Fyrir þrem árum var lögunum breytt
talsvert. Félagsmönnum var gert kleyft
að minka smásamböndin (fjórðungana)
ef þeir álitu það heppilegra. Jafnframt
var verksvið og vald sambandsstjórnar
aukið. Þó var töluverð mótstaða gegn
þessum breytingum, og varð það til þess
að hið nýja fyrirkomulag var ekki glögg-
lega ákveðið, sem æskilegt hefði verið.
Vegna formgalla á Iögunum hafa t. d. JBorg-
firðingar og Mýramenn ekki getað skilið
sig úr Sunnlendingafjórðungi, þó að mik-
ill meiri hluti félagsmanna hafi óskað
breytingar.
Hið nýafstaðna sambandsþing gerði að-
eins smábreytingar á lögunum, eins og
sjá má af þinggerðinni, sem birst hefir
hér i biaðinu. Menn komu sér saman
um að gera engar breylingar, nema þær
sem svo að segja voru óhjákvæmilegar
vegna hinnar undangengnu aðalbreytinga.
Sambandslögin verða því ekki gefm út að
nýju fyrst um sinn. Gilda með þeim
breytingum, sem hin prentaða þinggerð
ber með sér.
Sambandsþingið viðurkendi hinsvegar,
að innan skams myndi félagsskapurinn
verða kominn i svo fastar skorður, að
ástæða væri til að koma Iögunum í veru-
lega varanlegt form. Vegna þess setti
sambandsþingið nefnd til að starfa milli
sambandþinga að því að koma formi sam-
bandslaganna í horf, sem teljast mætti
viðunanlegt til langframa. Aðeins var
tekið frarn, sem líka er því nær einróma
álil í U. M F. í., að við stefnuskránni
skuli ekki hreyfa. Jafnframt þessu var
skorað á héraðssamböndin, að setja nefnd-
ir til að athuga lögin, fyrir hvert smá-
samband. Er gert ráð fyrir að héraðs-
samböndin hafi mjög óbundnar hendur
um sína lagagerð. Aðeins verður skipu-
lag þeirra að byggjast á og vera í sam-
ræmi við anda og form skuldbindingar
U. M. F. í.
Sú stefna, sem nú hefir verið sagt frá
mótaði alla vinnu sambandsþingsins. Full-
trúarnir voru þess vissir, að félögin myndu
halda áfram að eflast og stækka eins og
að undanförnu, en þeir vildu að framför-
in og breytingarnar yrðu í beinu áfram-
haldi af því, sem á undan er gengið, og
bygð á fenginni reynslu. Samt má ekki
útiloka nýjar lífvænlegar hugsjónir og nýja
starfskrafta. „Gamla" fólkið sem hingað
til hefur borið hitann og þungann af erfið-
inu við félagsstarfið, týnir nú smátt og
smátt tölunni, en hin upprennandi æska