Skinfaxi - 01.07.1917, Page 2
50
SKINFAXI.
fyllir í skörðin og meir en þab. Á þvi
byggist framförin.
Hin nýkosna sambandsstjórn er ljóst
dæmi um þessa stefnu. Þar eru tveir
gamlir riienn, og einn liltölulega ungur.
Gert er ráð fyrir því aS hinn yngsti í stjórn-
inni verði mest starfandi, vinni mikið að
blaðinu, fari fyrirlestraferðir, og ferðist til
eftirlits iþróttastarfsemi félaganna, eftir því
sem honum vinst tírni til. Þess er vænst
að slíkar ferðir eins úr sambandsstjórninni
verði sambandinu til eflingar, auki skiln-
ing og traust félagsmanna á stefnunni og
starfinu. Takist það, þarf ekki að kvíða
því, að U. M. F. hreyfingin falli í valinn
með stofnendunum. Unga og uppvaxandi
kynslóðin hefir þá hlaupið í skörðin, og
styrkt fylkinguna, þar sem hættan var
mest.
Á Jaðri.
Eg horfi um móa og mýrar
og mér sýnist bygðin ljót.
Hjá bæjunum grænir blettir
en bithaginn, — lyng og grjót.
Á milli fjalls og fjöru,
ei finnur augað neitt,
sem huganum hærra bendi,
er höndin verður þreytt.
— En þegar sólin sígur
í svalan vesturál,
og tendrar um himininn hálfan
sitt heillandi rökkurbál, —
þá finn eg i brjósti mér bifast,
sem brostinn hörpustreng,
minning um léttfættan Jítinn
og lundglaðan smaladreng.
8. janúar 1917
Arni Óreiða.
Frá Vestfjörðum.
Þess hefir stundum verið óskað, að
„Skinfaxi“ flytti smá fréttapistla um störf
ungmennafélaga í hinurii ýmsu héruðum
landsins; virðist jafnvel of lítið gert að
því að kynna félögin' h,vort öðru, en til-
tækilegasta leiðin til þess er sú, að félög-
in láti sambandsblað sitt flytja fréttir úr
heimahögunum við og við.
Þar sem eg réðist til fyrirlestraferða s.
I. vetur, fyrir Veslfirðingafjórðung og gafst
þannig tækifæri til að kynnast flestum
ungmennafélögunum, sem starfa á fjórð-
ungssvæðinu, dettur mér i hug að skýra
frá (félagsstarfinu hér vestra, — í stórum
dráttum. Ferðasaga getur það ekki orðið;
yrði of langt mál.
Álls hafa 7 sambandsfélög starfab á
fjórðungssvæðinu að undanförnu, en í vet-
ur var eitt þeirra, „IT. M. F. Onundar-
fjarðar" að skiftast í 4 sérstæð félög, sem
eru nú þegar komin í fjórðungssambandið
(veit ekki vel um eilt þeirra); eru sam-
bandsfélög þannig 10 hér vestra.
Eg heimsótti 6 af sambandsfél. (U. M.
F. Önundarfj. var þá að skifta sér) og hélt
alls 22 fyrirlestra. Efni fyrirleslranna var:
Framsóknarvegur, Framfaramenn, Hug-
sjónalíf og félagsskapur og Ungmennafél.
og stefnuskrá þeirra.
Fyrst heimsótli eg félögin í Arnarfirði.
Þar starfa 2 ungmennafél. sunnantil við
fjörðinn og heita: „Örn“ að Bildudal og
„Skjöldur" út í Dölunum. — Formaður
Bíldudalsfél. er: Svafa Þórleifsdóttir kenn-
ari. Stofnaði hún fél. og hefir verið for-
maður þess síðan. Er hún mjög ötul og
áhugasöm.
Á Bíldudal ílutti eg 3 fyrirlestra; fékk
fél. kirkjuna leigða til fyrirlestrahaldsins;
hefir fél. að undanförnu haft skólahús
kaupstaðarins lil afnota, en sökumstrang-
ari ákvæðis af hálfu heilbrigðislöggjafar-
iunar hefir félagið ekki fengið húsið í vet»