Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1917, Blaðsíða 1

Skinfaxi - 01.12.1917, Blaðsíða 1
12. BLAÐ REYKJAVÍK, DESEMBER 1917. VIII. ÁR. Skoðanamunur. Einhverju sinni var embættisniaímr aö flytja erindi á ungmennasamkomu. Hann talaöi um framtíö þjóðarinnar og fram- farir. Líkti hann henni við Irónda, er sett- ist á niðurnídda jörð. Taldi hann aS hver hygginn bóndi mundi framan af eingöngu hugsa um endurbætur á jörðinni, slétta, gera matjurtagaröa, veita á, húsa jöröina o. fl. Mentun barnanna sinna, og híbýla- prýöina, t. d. skrautgarS viö bæinn, mundi hann svo hugsa um síðar, þegar hann væri kominn í álnir. ■' Og þjóSin átti að fara aö dæmi bónda. Hún átti aö efla atvinnuvegina og aörar verklegar framfarir af öllum mætti, en geyma stórstlgar framfarir í mentamálun- um þar til velgengnin yxi. Sennilega mun mörgum þykja sú stefna brýn og sjálfsögð með tilliti til þess hversu skamt þjóðin er á veg komin í verklegum efuum, en sunium vafasöm. Mundu þeir segja eins og skáldið : „Nytsemd láttu fegurð í frið og fegurð kannastu nytáemd við,“ og þó þykjast niega kveða fastara að orði vegna jtess að andlegi þroskinu, sem hér cr kallaður fegurð, mætti nefnast n y t s e m d. ()g þarna mvndast skoðana- munur, um stefnur á framfarabrautinni, sem skiftir ntönnum í tvo flokka, eftir því hvort þeir vilja gera „fegurðinni“ hátt eða lágt undir höfði, meta meira verklegar framfarir þjóðarinnar eða andlegar. Annar flokkurinn mundi vilja fara að dæmi bóndans í sögunni, hugsa fyrst um að bæta sína eigin jörð eða auka útgerð- ina sína, stofna fiskifélög, búnaðarfélög, kynbótafélög og kaupfélög, bæta samgöng- ur á sjó og landi, hleypa bráðum vexti i iðnaðinn með þvi að hagnýta vatsnafl landsins og fleira af líku tagi. Þvi fer fjarri að Skinfaxi vilji gera minna en vert er úr málstað verklegu við- reisnarinnar. Og það telur hann ekki lík- legt, greinilegt, né hent, að þjóðin skiftist í tvo flokka og vilji annar eingöngu and- lega, en hinn verklega viðreisn. Hann vill „kannast við nytsemdina". En hann neitar því að hamingja þjóðarinnar fáist með gulli og gróða einum. Hann vill aö hvort- tveggja fylgist að, en rnetur þó andlegan þroska þegnanna mest og lítur svo á, að hann sé frumskilyrði sannra framfara. Almennur kosningaréttur, ýms fram- kvæmdafélög er menn stofna sér til hags- bóta, opinberar umbætur þjóöfélagsins og aukin velmegun einstak.ra manna eru æski- leg framfaraspor. En eins og enginn telur ráðlegt aö fá byssur eða margbrotnar víg- vélar í hendur börnum og fáráðum, svo skiftir og miklu hver á heldur, hvort held- ur er daglegur eyðslueyrir, þátttaka i kaup-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.