Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.1918, Blaðsíða 1

Skinfaxi - 01.01.1918, Blaðsíða 1
Ungmennafélögin i Dalasýslu. Ef til vill þykir það bera vott um and- Iega deyfð og menningarleysi, hve lítið ungmennafélögin hafa útbreiðst í Dalasýslu eða nágrenni hennar. Ástæðan er þó alls ekki sú. Dalamenn eru ekkert ófélagslynd- ari eða skilningssljóvari á þýðingu félags- skapar, en menn í öðrum sveitum þessa lands. Eg býst jafnvel við, að þeir séu heldur hið gagnslæða, og bendir til þess, hve vel kaupfélögin hafa þrifist þar og dafnað. Það má svo að orði kveða, að þetta svæði: Dalasýsla, Snæfellsness-og Hnappa- dalssýsla, ásamt suðurhluta Strandasýslu, hafi lent fyrir utan hin eiginlegu fjórð- ungssambönd U. M. F. í. I fyrstu var ákveðið, að Vestfirðinga- fjórðungur næði alla leið að Hvílá í Borg- aríirði. En með stofnun hans voru tak- mörkin færð að Gisfirði og Bilru, sam- kvæmt ósk frá Vestfirðingum sjálfum. Sunnlendingafjórðungur befir samt aldr- ei náð neinum tökum á þessu svæði. Þingin, sem í rauninni eru hin öflugustu uppörfunarmeðul fjórðunganna, liafa verið háð svo langt í burtu, að þau hafa engin áhrif haft þar norðureftir, og af fjórðungs- ins hálfu engin ráðslöfun verið gerð til þess, að ná í þau félög, sem þar hafa verið stofnuð. Félögin sjáif hafa sökum fjarlægðarinnar heldur ekki séð sér hag í að ganga í sambandið. Áhuginn þar oft frekar lítill, enda engin utanaðkom- andi uppörfun. Til skamms tíma hafa í Dalasýslu að eins verið tvö ungmennafélög, „Unnur djúpúðga“ og „Ólafur pái“, en eru nú fjögur síðan „Dögun“ og „Stjarnan“ voru stofnuð. Ennþá eru þessi félög þó öll fyrir utan samband U. M. F. I., en þess verður þó skamt að biða, að þau öll í sameiningu gangi í sambandið. I síðastliðnum desembermánuði ferðað- ist jeg að tilhlutun sambands U. M. F. í. um félög þessi, og vil jeg því lýsa þeim að nokkru. U. M. F. „Stjarnan“ í Saurbæjarhreppi var stofnað í síðastliðnum nóveinbermán- uði. Stofnendur voru 25. Þar á meðal presturinn síra Jón Guðnason og nokkrir af áhugasömustu bændunum í sveitinni. Formaður er Markús Torfason í Ólafsdal. Síðan hafa allmargir bæst við félagið og allar líkur til, að það innan skamms geti orðið öflugt og framtakssamt félag. Það heldur úti handrituðu blaði sem heitir Leiftur. U. M. F' „Dögun“ í Fellsstrandarhreppi er sömuleiðis allungt félag. Félagar þar eru 26 og flestir ungir. Það heldur úti handrituðu blaði, sem „Smári“ nefnist. Formaður er Halldór Guðbrandsson á Hallsstöðum. Virðist mér talsverður áhugi hjá félagsmönnum. Á næsta vori hugsa þeir að taka blett til garðræktar, og leggja þannig skerf sinn á matborð þjóðarinnar.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.