Skinfaxi - 01.10.1930, Qupperneq 4
SKLNFAXI
136
aða þjóð. En við nánari samvinnu og betra nám geta
þessar raddir, litir og linur gefið enn þá meiri þroska,
skapað lifandi og fjölskrúðuga líst. Það liafa þeir sýnt
okkur Einar Jónsson, Ásmundur Sveinsson, Ríkarður,
o. m. fl. söngvarar og skáld. — En það eru líka til
margar fleiri listir, sem a 11 i r geta lagt stund á. Heima-
iðjan ber oft vott um mikla snilld, gefur tekjur og ynd-
isstundir margar. — Það er iist að rækla landið, gróð-
ursetja tré og blóm í garðinum sínum, græða skóg,
breyta móum í tún og akra, byggja fögur og góð hús.
— Og það er list að syngja vorhug inn í hjarta þjóðar-
innar með einföldum tónum.
Alll þetta bíður íslenzkra ungmennafélaga. Markið
er bátt. Það er biutverk „Skinfaxa" að benda á leiðirn-
ar að því og hvernig þær verði þræddar, og sameina
a 11 a góða æskumenn um áhugamálin.
Ábugamál og bugsjónir eru líftaugar U. M. F. 1.
Treystum þessar líflaugar og eflum þær. Þá mun þjóð-
in göfgast og þroskast og landið verða enn þá fegurra
en það hefir nokkru sinni verið. Þá mun smáþjóðin,
sem eitt sinn var kúguð og ennþá er sundruð, verða
öndvegisþjóð.
Látum ekki æskueldinn kulna, sem kviknaði í vor á
sólríkum dögum og björtum nóttum. Látum ekki fé-
lagsböndin slitna, sem við knýttum þá. Látum heit-
strengingar, sem gerðar voru við liamraveggina, verða
að veruleika. Látuin hugsjónirnar rætast, sem fæddust
vorið 1930 á Þingvöllum við Öxará.
Þóroddur Guðmundsson.
Barnadeildir.
U. M. F. Afturelding í Mosfellssveit er að koma upp yngri
deild hjá sér. Vonandi koina fleiri félög á eftir. Sambandsstjóra
U. M. F. í. er sérstök ánægja, að fá að hjálpa til að koma
slíkri starfsemi á fót.