Skinfaxi - 01.10.1930, Blaðsíða 7
SKINFAXI
139
Jón lieldur uppi íþróttaskóla (Mullersskólanum) í
Reykjavík og kennir auk þess reykvíkskum íþrótta-
félögum. Hann liefir æft sérflokka í glímu o. fl. og
stýrt þremur sýningaferðum glímumanna til útlanda:
Noregs (af hálfu U. M. F. !.), Danmerkur og Þýzka-
lands. Hafa sýningar lians vakið mikla atljygli og
lilotið einróma lof.
Jón hefir mikið verksvið og torvelt í Reykjavík.
En hann lætur sér ekki nægja það. Honum er það
ljóst, og kunnugt frá eigin uppvexti í sveit, að æsku-
menn og meyjar úti um dreifðar ijyggðir landsins
liafa mesla þörf kennslu lians. Þau eiga þess engan
kost, að skreppa í fimleikaskóla né á fund iþrótta-
kennara, er á milli verður starfanna. Er þó vilji
þeirra og löngun til likamsmennta oft engu síðri en
kaupstaðabúa. Þessu fólki vill Jón hjálpa, og „vilj-
inn flytur veröld alla.“ IJanda því stofnaði hann til
bréflegrar fimleikakennslu. Geta nú allir notið
lcennslu lians, enda þótl staðbundnir séu norður á
Iiornströndum eða Langanesi.
Reyjisla þessarrar bréílegu kennslu er að vísu ekki
löng, en nóg þó til þess, að vitað er, hversu hún gefst.
Ætti að nægja að nefna það dæmi, að noklcrir menn
í hópsýningu Jóns, er mikla athygli vakti á Alþingis-
hátíðinni, höfðu enga fimleikakennslu fengið, aðra
en hréflega, þar til tvo mánuði fyrir sýninguna.
Enn i vetur lieldur Jón uppi bréflegri kennslu. Get-
ur Skinfaxi eigi látið hjá liða, að vekja atliygli á
henni og eggja lesendur sina að nota hana rækilega.
Kénnslan er fyrir konur og karla, 14—30 ára, og eldri
þó ef vill. Kennslugjald er kr. 1,75 til kr. 3,00 á mán-
uði og námstíminn 7 mánuðir. Geta nýir nemendur
hyrjað fyrsta dag hvers mánaðanna októher, nóvem-
her, desemher eða janúar.
Nú liefir Jóni dottið í lnig, en eigi er það ráðið, að
halda stutt námsskeið liér i Reykjavík næsta haust,