Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1930, Síða 12

Skinfaxi - 01.10.1930, Síða 12
144 SKINFAXl einkabíl sinn og ók okkur heim til skólans, þar sem við skyldum búa. í skólagarðinum eru tvær fánasteng- ur og blakti norskur fáni á annarri en íslenzkur á liinni, okkur til beiðurs. í skóla þessum liafa fjölda margir íslendingar dvalið, fleiri og færri á hverju ári. Áttum við skemmtilegar stundir,meðan við dvöldum hjá þeim feðgum,Öystein og LarsEskeland. Eru þeir báðir fróð- ir og vel menntaðir og betur beima i íslenzkum mál- um, en titt er um erlenda menn, sem ekki hafa dvalið liér langdvölum. Hefðum við gjarnan kosið lengri dvöl áVoss, en kostur var á—eins og reyndar viðar í Noregi — því að þar er rómuð náttúrufegurð og þó vart um of. Um nóttina sváfum við í Jómsborg, sem var svefnskáli skólanemenda, og eru þeir nemendur, sem þar búa, nefndir Jómsvikingar í skólanum. Morguninn eftir, 24. júli, lögðuin við af stað kl. 11, i bíl, um fögur og frjósöm liéruð, með sveitaþorpum, búgörðum, ökrum og skógarbeltum á milli, en nær og fjær getur að líta skógi vaxin fjöll. KI. 2 komurn við til Stallieim og urðum þar að fara úr bílnum og ganga niður Stalheimskleif. Vegurinn er þar svo brattur og með svo kröppum l)eygjum, að bílum er ekki kleift að aka hann. Urðum við að rogast þarna niður með far- angur okkar í nærri 30 stiga hita, og tók það hálftíma. Kostaði það marga svitadropa, en þá þvoðum við af okkur í Nærödalsá, er niður kom, og var liressandi að baða sig í köldu vatninu og fá sólbað á eftir. Er þó leik- ur einn að ganga niður, á móti þvi að ganga upp kleifina í slíkum hita. Stallieimskleif er snar- hrött fjallslilíð niður í Nærödalinn. Er þar hrika- legt landslag mjög yfir að líta af brúninni. Framundan dalurinn milli snarbrattra fjalla, sem verða enn trölls- legri, þegar niður er komið. Miðja vega í kleifinni er bautasteinn, er norsku ungmennafélögin hafa reist skáldinu PerSivle. Skammt þaðan til vinstri handar er Sivlefossinn, í á, er rennur í Nærödalsána, en i henni,

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.