Skinfaxi - 01.10.1930, Side 13
SKINFAXI
145
lengra til hægri, er Stalheimsfossinn. Báðir eru fossarn-
ir liáir og allstórir og sjást báðir í senn er niður kemur,
sinn hvorum megin við kleifina. Frá kleifinni ganga
hilareftirNærödaltilGudvangen, eftir að fólkerkomið
frá Vossbílunum, sem einnig híða, þar til fólk úr Gud-
vangenbílum er komið upp. En i Gudvangen bíður skip,
er tekur farþegana og flytur áfram. Nærödalur er afar-
þröngur eins og flestir dalir á vesturlandi Noregs. Á
tjtsýn yfir Nærödalinn frá Stalheim.
rennur eftir dalnum og víða er undirlendið svo lítið, að
sprengja hefir þurft úr fjallinu fyrir veginn. — Frá
Gudvangen fórum við með skipi kl. 5 og er siglt út
Næröfjörð. Er þangað kemur, sem Næröfjörður og
Aurlandsfjörður mætast, koina tvö skip sitt úr hvorri
áttinni og þessi þrjú skip leggjast síbyrt saman úti á
firðinum og farþegarnir skifta um skip, eftir því hvert
hver ætlar, og eftir stundarkorn eru festar leyslar og
þau lialda sitt inn á hvern fjörðinn. Þannig eru sam-
göngurnar daglega um firðina i Noregi. Við skiftum
hjer um skip og siglum inn til Lærdal til að skifta þar
aftur um skip til að komast til Vadheims. Nú erum við