Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.10.1930, Qupperneq 14

Skinfaxi - 01.10.1930, Qupperneq 14
146 SKINFAXI komin út á sjálfan Sognfjörð, sem er lengsti fjörður á Vesturlandi (180 km.). Til Lærdal komum við kl. 10 um kvöldið og fórum þaðan aftur kl. 12 og héldum áfram á því skipi til kl. 1 næsta dag, að við koinuin lil Vad- heim, og höfðum þá farið rúman liálfan fjörðinn. All- ir firðir á Vesturlandi eru mjög þröngir. Sognfjörður er einna breiðastur, og er liann þó hvergi meira en 4 km. á breidd, en samt er liann 1244 metra djúpur, þar sem dýpst er. Bygðin er mestmegnis í smærri kaup- stöðum og þorpum, þar sem, daladrög skerast inn milli fjallanna. I Vadheim tóku á móti okkur Olaf Försund frá Sogn Undomslag. Snæddum við á Valdheim hotel og liélt liann þar snjalla ræðu fyrir minni Islands, um leið og hann bauð okkur velkomin i Sogn. Eftir stundar- dvöl var sezt í híl og haldið lil Sandane um kvöldið og fylgdi Försund okkur alla leið, Var það betra en ekki, því að hann fræddi okkur um marga hluti á þeirri leið. Frá Vadheim liggur vegurinn fyrst um dal með 500 metra háum fjöllum á báðar hendur. Er sú hæð á fjöll- um og þaðan af meiri ekki óalgeng á Vesturlandinu, og þegar dalirnir milli fjallanna eru þröngir, þykir okkur Islendingum full lítið útsýnið; þó ervíðaþrengra en i Sogni og Sunnfirði. — Við stöldrum stundarkorn við i Förde og höldum svo áfram til Vatnsenda. Er það gistihús við suðurenda Jölstervatns, sem er lengsta vatn á Vesturlandi, um 30 km. Síðan ökum við meðfram vatninu, gegnum Vátedalen, sem er mjög hrikalegur og draugalegur, enda kvað þar vera mikið af huldufólki og margskonar forynjum, Þykir viðsjált að vera þar einn á ferð er rökkva tekur. Um Vátedalen rennur jök- ulsá, er kemur frá Jöstedalsjökli, sem sést vel frá veg- inum og skriðjöklar úrhonum.Áþessi rennuriBreims- vatn, sem er dýpsta vatn Noregs (273 metr.). — Á þess- arri leið er mjög mikið af furuskógum og við livern bæ eru stórir hlaðar af timbri, söguðu niður i þunnar, stuttar fjalir. Þessar fjalir eru notaðar i síldartunnu-

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.