Skinfaxi - 01.10.1930, Qupperneq 16
148
SKINFAXI
á sjó, því að ella er yfir fjöll að fara, brött og ill yfir-
ferðar. Fólk þetta er afbrigða gestrisið og gott lieim
að sækja, enda er þar ekki gestkvæmt. — Geirang-
ursfjörður er 15 km. langur og eru 1500 m. há fjöll
a báðar hendur. Á vetrum er oft liættulegt að sigla
um fjörðinn, því að snjóflóð falla þar títt, og oft út
á miðjan fjörð og lengra.
Margir fossar falla niður
fjöllin, en merkastur er
Knivsfláfossen, er fellur
niður í sjö kvíslum og er
því jafnan nefndur „Syst-
urnar sjö“. í Geirangri eða
Marák, eins og þorpið lieit-
ir, er undirlendi ekkert. Frá
bryggjunni til gistihússins
Utsigten, eru 3 km. og ligg-
ur það 300 m. yfir liafflöt.
íbúarnir lifa nær eingöngu
á ferðamannastraum, sem
er þangað mikill. Liggur
þaðan vegur upp í Jötun-
heimafjöll og fleiri fjallveg-
ir. Kvöldið, sem við komum
þangað, fórum við í bíl upp fjall ofan við þorpið.
Ókum við 17 km. og vorum þá komin í 1038 m. hæð.
Liggur sá vegur í ótal bugðum, svo kröppum og brött-
um, að hér á landi er enginn vegur neitt því líkur.
Útsýni er stórfelt og hrikalegt, þegar upp er komið,
ekki ólíkt og víða hér heima. Gróðurlaus fjöll með
snjófönnum en jöklar í fjarska. Var þetta glæsileg-
asta fjallaförin, er við enn höfðum farið.
27. júlí fórum við á skipi út Sunnylvfjörð, sem
liggur út frá Stórfirði. Er hann líkur Geirangursfirði,
með býlum á hamrastöllum. Er hér t. d. einu býli
svo fyrir komið, að það er byggt undir liamravegg
Geirangursfjörður.