Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1930, Blaðsíða 21

Skinfaxi - 01.10.1930, Blaðsíða 21
SKINFAXI 153 staður, eða skóli, fyrir það fólk, er löngun og liæfi- leika liefir til þess að gefa sig við íslenzkri leiklist. Eg þykist sjá hina fyllstu möguleika til samvinnu milli þess félagsskapar, sem liefjast kynni handa um íslenzka kvikmyndagerð, og þess fólks, sem í framtið- inni kann að skipa sér á bekk sem landnámsmenn ís- lenzkrar, þjóðlegrar leiklistar. Eitt af höfuð-viðfangs- og áhugaefnum ungmenna- íélaga íslands er allskonar íþróttir. Hugsið ykkur Iive sterk og heilbrigð álirif til stuðnings líkamsatgervi gæti komið frá þeim þætti íslenzkrar leiklistar, sem gæfi sig af alúð við að leika fyrir myndatöku eftir fornsögum vorum. Hugsum oss: Skarphéðin við Markarfljót. Sund Grettis ur Drangey. Kaf Halls Ótryggssonar eftir stjór- anum við Iirisey (Ljósvetningasaga). Yígfimi Gunnars, Ivára, Kjartans, og m. o. m. fl. En það, sem eg liygg að yrði ef til vill höfuð-ávinn- ingurinn, er þjóðernisvakning sú, er eg hygg, að eðli- lega ætti sér stað, ef unnt yrði að sýna ýmsa atburði fornsagna vorra á þann hátt, er eg hefi nefnt, og um fram allt á öfgalausan liátt, undir eftirliti hinna sögu- fróðustu manna. Eg er sannfærður um, að mál þetta á eftir að verða tekið lil meðferðar og fullra framkvæmda, áður langt um líður, af einhverjum félagsskap. En eg vildi óska, að það yrði ungmennafélagsskapurinn íslenzki, sem ætti lieiðurinn af að brjóta ísinn, einmitt í þessu rnjög svo mikilsverða máli, því að mér virðist, að þetta verkefni sé honum fyrirhugað, og að metnaðar og drengskap- ar síns vegna verði liann að vcrða fyrslur til að hefja merkið. Friðgeir H. Berg.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.