Skinfaxi - 01.10.1930, Qupperneq 22
154
SKINFAXI
Minnismerki.
Eg skora hér á alla góða drengi,
sem eitthvað vilja heí'ja þetta land:
Af alhug vinna að gæfu þess og gengi
og glaðir hnýta við það tryggðaband,
því minning þeirra manna stöðugt lifir.
1 minni þjóðar verður nafnið skráð;
svo legstein þarf ei leiði þeirra yfir,
því letur það fær tíminn stöðugt máð.
Hver sem hefir eitllivert stórverk unnið,
—- sem aðrir fleiri klæðist dauðans hjúp. -—
Hann ávann nafn, sem ei fær gleymst né runnið
með öðrum smærri nið’r i tímans djúp.
Með fögru starfi á fósturjörðu sinni.
fléttað margur licfir kranzinn sinn.
Því að nafni heldur hæst í minni
háleit sál, en ekki likaminn.
Þó að velt sé þungum bautasteinum,
á þeirra grafir eftir runnið skeið,
og letrað nafnið gullnum stöfum greinum,
með glöggar tölur — ár og tíma leið,
slíkt lcemur oft á óverðuga niður
og aðra en þá, sem fyrstir ruddu braut.
Eu það mun eflaust þykja fagur siður
og ])að er prýði á leiði þess, er lilaut. -—■
En til livers eru minnismerki gefin
á manna leiði og slitur líkamans?
Hvort veldur því ei óttinn sár og efinn
um að týnist minning dánumanns?