Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.10.1930, Side 24

Skinfaxi - 01.10.1930, Side 24
15(3 SKINFAXI Fjárlög voru seit fyrir sambandið og stjórn kosin til næstu þriggja ára. Kosnir voru: Sambandsstjóri Aðalsteinn Sig- mundsson, ritari Guðmundur frá Mosdal og féhirðir Kristján Karlsson. Vegna anna baðst Sigurður Greipsson undan að sitja í stjórn, og Kristján að vera sambandsstjóri. Voru báð- um þökkuð ágæt störf á liðnum árum, í stöðum þenn, er þeir viku úr. Verðlaunaskjöldur Skarphéðins. Skjöld þann, er hér birtist mynd af, hefir Ríkarð- ur Jónsson gert fyrir Héraðssam- bandið Skarphéð- in. Er hann hið prýðilegasta lista- verk, gerður úr dökkum viði og filabeini. Keppt verður um skjöld- inn árlega á hér- aðsmótunum við Þjórsárbrú, og hlýtur það félag hann til varð- veizlu, er flesta vinninga fær i íþróttum. Nú er hann í vörzlum U. M. F. Skeiða- nianna. U. M. F. í. á AlJjingishátíð. U. M. F. í. sýndi hændaglímu og vikivaka á Þingvöllum, eins og til stóð. Sigurður Greipsson stýrði bændaglímunni, en glímumenn voru viðs vegar að. Vikivakana steig barnaflokk- ur frá U.M.F.Velvakandi, en honum stýrðu ungfrúrnar Ásthild- ur Kolbeins, Ragnheiður Björnsson og Þórbjörg Guðjónsdóttir. Báðar tókust sýningarnar vel, og um vikivakasýninguna létu margir mælt, að hún hefði verið einn glæsilegasti atburður hátiðarinnar. Var hún tvímælalaust U. M. F. til sæmdar og vikivökunum lil fylgisauka.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.