Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1930, Page 26

Skinfaxi - 01.10.1930, Page 26
158 SKINFAXI Bækur. Jónas Rafnar: Staksteinar. Útgefandi Þorsteinn M. Jónsson, Akureyri 1930. — Jónas læknir Rafnar gerðist þjóðkunnur fyrir eina smásögu: „Talað á milli hjóna“, sem birtist i Skirni fyrir nokkru. Síðan hefir fátt á prenti hirzt eftir hann, þar til nú, að kemur 11 arka skáldsaga. Mun hún eigi spilla vin- sældum höfundar. Sagan er látlaust sögð og skenmitilega, á ljómandi alþýðumáli, persónurnar ljóslifandi og atburðirnir eins og þeir gerast i lífinu. Væri óskandi, að Jónasi lækni gæti unnizt meira tóm til sagnagerðar, en verið hefir. Ársrit Nemendasambands Laugaskóla 1930. — 5. árgangur þessa ágæta rits er nýkominn, vandaður og fjölhreyttur að efni, merkileg sönnun þeirrar frjóþrungnu gróandi, sem al- þýðuskólarnir fóstra, og Laugaskóli ekki sízt. Mikill hluti heft- isins er helgaður Völundi heitnum Guðmundssyni, ritgerðir og kvæði eftir og um hann, þar á meðal aðalnámsritgerð hans i Laugaskóla 1927, um „líkingar i íslenzkum bókmenntum", glæsilegt verk. — Ársritið er um allt svo úr garði gert, að eigi á við, að það vanli i bókaskáp neins ungmennafélagá. Nýföroyskur skaldskapur. Úrval. Tórshavn. Felagið Varðin. 1930. — Þetta er lítil bók, einar 80 blaðsíður, og hefir að geyma úrval úr ljóðum átta núlifandi góðskálda færeyskra. Mörg kvæðanna eru ágæt, og er gaman, eigi sízt fyrir íslend- inga, að fá svo handhægt sýnishorn af færeyskum kveðskap. Ætti bók þessi að ná verulegri útbreiðslu hér á landi, og vill Skinfaxi mælast til, að ungmennafélagar hjálpi til þess. Sambandslögin. (Þess er getið í fréttum af sambandsþingi, á öðrum stað í þessu hefti, að sambandslagafrumvarp milliþinganefndar var eigi afgreitt sakir tímaskorts, en fram komu við það róttæk- ar breytingatillögur. Mál þetta er ekki ómerkt og snertir alla ungmennafélaga. Hér eru því prentaðar greinar þær, sem skiftar eru skoðanir um, og breytingatillögur við þær. Frum- varpið í heild verður sent öllum sambandsfélögum í október).

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.