Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1930, Page 27

Skinfaxi - 01.10.1930, Page 27
SKINFAXI 159 1. grein. Ungmennafélag íslands (U.M.F.Í.) er samband íslenzkra ungmennafélaga. En ungmennafélög heila að lögum þessum féliig þau, er hafa tilgang, starfskrá og skuldbindingu svo sem segir í 2., 3. og 4. grein laga þessarra. 2. grein. Tilgangur U. M. F. í. er sá: I. Að vinna gagn íslandi og islenzkri menningu. IT. Að draga athygli ungra íslendinga að velferðarmálum lands og þjóðar, og kenna þeim að skilja hvers virði það er, að vera Islendingur, og hverjar eru skyldur ís- lendings við land sitt, tungu og þjóðerni. III. Að hjálpa félagsmönnum til þroska, menningar og dreng- skapar. Kjörorð U. M. F. í. er: íslandi allt. 3. grein. Öll göfug, góð og nytsöm verk eiga heima á starfskrá ung- mennafélaga. En jafnan skal látið ganga fyrir öðru, að vinna að verndun, viðhaldi, eflingu og sköpun þess, sem þjóðlegt er og rammíslenzkt í hvívetna, og aukinni þekkingu og glædd- um skilningi á íslenzkum efnum og anda. Megináherzla skal lögð á þekkingu á móðurmálinu og vandaða meðferð þess. 4. grein. Enginn er löglegur félagi né aukafélagi U. M. F. 1. né neinn- ar deildar þess, nema hann riti undir og lifi svo sem geta leyfir eftir skuldbindingu sambandsins, en hún er þessi: Vér undirrituð lofum þvi og leggjum við drengskap vorn, að meðan vér erum félagar einhverrar deildar U. M. F. í., skulum vér eigi neyta neinna áfengra drykkja, né valda þvi visvitandi, að þeir séu öðrum veittir. Vér skulum vinna af aíhug að blessun lands vors, sæmd og þrifum þjóðar vorrar, framförum sjálfra vor andlega og líkamlega, og að heill og þróun ungmennafélagsskaparins. Lögum og fyrirskipunum ungmennafélaga viljum vér í öllu hlýða og leggja fram krafta vora sérplægnilaust til slarfa þeirra, er oss kann að vera falið að vinna fyrir U. M. F. í. eða deildir þess. Þessar eru breytingatillögur U. M. S. K.: Við I. grein: í stað „tilgang, starfskrá“ komi: „stefnuskrá" og tilvitn- unin í 4. gr. falli niður.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.