Skinfaxi - 01.10.1930, Qupperneq 28
160
SKINFAXI
2. grein hljóöi svo:
Stefnuskrá U. M. F. í. er:
Að auka þjóðrækni og þroska íslenzkra æskumanna.
Nokkrar skýringar á stefnuskránni:
1. Þar sem þjóðrækni er fyrst og fremst ræktarsemi við
land, þjóð og þjóðareinkenni, skulu ungmennafélögin
kosta kapps um, að auka þekkingu félaga sinna á landi,
tungu, sögu, siðum og bókmenntum þjóðar vorrar.
2. Þroski er bæði andlegs og líkamlegs eðlis, og þess vegna
skulu ungmennafélögin leitast við:
a. Að auka þekkingu félaga sinna, stæla vilja þeirra og
göfga hugarfar þeirra.
b. Að stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum og aukinni
líkamsmenntun félaga sinna.
3. Auk þess skulu ungmennafélögin starfa að vín- og tóbaks-
bindindi, aukinni alþýðumenntun, alhliða ræktun lands-
ins, endurreisn heimilisiðnaðar í þjóðlegum stil og öðru
því, er horfir landi og lýð til heilla.
3. grein hljóði svo:
Enginn er löglegur félagi né aukafélagi U. M. F. í. né neinn-
ar deildar þess, nema hann staðfesti með undirskrift sinni
skuldbindingu sambandsins, en hún er þessi:
Vér undirrituð höfum kynnt oss stefnuskrá U. M. F. í. og
lieitum því, að vinna samkvæmt henni að líkamlegum og and-
legum þroska vorum og annarra og heill þjóðar vorrar.
4. grein (ný gr.) liljóði svo:
Vínnautn skal stranglega bönnuð á fundum og samkomum
ungmennafélaga. Stjórnir félaga og félagar allir skulu vaka
yfir því, að stefnuskrá og skuldbinding séu í lieiðri hafðar.
í lögum hvers félags skulu vera viðurlög við skuldbind-
ingarbroti.
Nú liggja tillögur þessar hvorartveggja fyrir til athugunar
og umræðu. Skylt er um hvert mál að liafa það, sem hollast
dæmist að beztu manna yfirsýn. En hugsa skyldu menn sig
tvisvar um, áður liróflað sé við helgum hyrningarsteinum
félags vors, skuldbindingunni t. d., svo að öruggt sé, að betra
reynist hið nýja, en liið gamla var.
F élagsprentsmiðj an.