Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Blaðsíða 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Blaðsíða 21
KTINNI — Nú, ég hélt, að þú hefðir slitið trúlofuninni. — Já, en honum stóð algerlega á sama. * — Heyrðu, er það satt, að konan þín sé ákaflega forvitin? — Biddu fyrir þér! Hún fæddist af eintómri forvitni. * Árið 1894 á vertíðinni gekk skæður inflúenzufaraldur í verstöðvunum Eyrarbakka og Stokkseyri. Lögðust þá margir, og nokkrir dóu. Meðal þeirra, sem létuzt úr faraldri þessum, voru Ásgrímur Eyjólfssfon verzlunar- maður á Eyrarbakka og Guðrún Guðmundsdóttir frá Baugsstöðum í Flóa. Var þá haft eftir Jóni Jónssyni í Eystri-Móhúsum, að hann hefði sagt við Símon, tengda- föður sinn, sem átti nokkrar eigur og lagðist í faraldri þessum: „Nú er Ásgrímur dauður og nú er Guðrún dauð, en ekki mun þér þyngja mikið, Símon“. * — Ef þetta er frú Þorbjörg, þá er ég ekki heima. Vinnukonan (kemur aftur): — Þetta var hún, og hún sagðist vera ósköp fegin. * — Veiztu, að Magga ætlar að giftast röntgenlækni? — Ekki skil ég, hvað hann hefur séð í henni. * — Maja: „Þú sagðir Kalla þá samt sem áður, að þú elskaðir hann“. — Magga: „Ég ætlaði ekki að gera það, en hann kreisti það út úr mér“. — Ræður hún öllu í hjúskapnum? — Það er víst ekki ofsagt. Hún gæti ritað dagbókina sína fyrirfram. * — „Hvers vegna ertu svona áhyggjufullur á svip?“ — „Ég er að reyna að ákveða, hvort ég á að vera við- staddur brúðkaup á morgun“. — „Brúðkaup hvers?“ — „Mitt“. * — „Getur þú hugsað þér annað eins? Hann hljóp frá öllu saman, þegar þau voru komin að altarinu". — „Varð hræddur, trúi ég?“ — „Nei, herti upp hugann". * — „Svo að þú tapaðir henni?" — „Já, en græddi samt“. — „Hvernig þá?“ — „Hún sendi mér aftur gjafimar, og lét óvart fljóta með fáeinar, sem einhverjir aðrir höfðu gefið henni“. — Jæja, þá er Grímsi loksins orðinn skipstjóri á h j úskaparfleytunni. — Ó-nei, blessaður vertu. Konan er áreiðanlega skip- stjórinn. Hún var þar að auki ekkja, svo ég held að Grímsi sé einungis annar stýrimaður. Lögfesta Eftirfarandi skjal, sem mönnum nú á tímum mun þykja all-einkennilegt, var lesið upp við Breiðaból- staðar-, Eyvindarmúla- og Teigskirkjur í Rangár- vallasýslu á annan og þriðja í hvítasunnu árið 1770: „Hér með festi eg og lögfesti undirskrifaður eiginkonu mína Hildi Pálsdóttur, og fyrirbýð á allta kröftugasta máta, eftir lagaleyfi, svo vel prest- inum síra Magnúsi Einarssyni á Butru, sem hverj- um öðrum að hýsa hana eða heimila, burttæla eða lokka frá mér móti guðs og manna lögum og boð- orðum. Því ég lýsi hana mína eign og eiginkonu, ef ég má óræntur vera, í öllum kristilegum egta- skaparkærleika, á beggja okkar bólfestu, Snotru í Landeyjum. Óska ég að sveitarmenn í Fljótshlíð flytji hana og færi til mín, hvar sem hitta kynnu, eins og til var sett og ráð fyrir gert á seinasta Kirkjulækjar manntalsþingi. Þessari lögfestu til staðfestu er mitt undirskrifað nafn og hjásett inn- sigli. Sveinbjörn Þorgilsson. * — „Þú átt að gefa honum undir fótinn. Það þarf að segja sumum mönnum til í þessum efnum“. — „Ég hef gefið honum undir fótinn. í gærkvöldi settist ég á legubekkinn, en hann tyllti sér á stólinn, sem fjarst var. Þá sagði ég, hvað það væri einkenni- legt, að karlmannshandleggur væri alltaf jafnlangur og ummál kvenmannsmittis. Hvað heldur þú, að hann hafi gert?“ — „Það, sem hver skynsamur maður hefði gert —• mælt og reynt". — „Nei, hann spurði bara, hvort ég ætti snærisspotta til að mæla með“. * — „Ég er að skrifa Pétri og leiða honum fyrir sjónir, -að ég hafi ekki meint það, sem ég sagði í síðasta bréfi mínu til hans“. — „Hvað sagðir þú í því bréfi?" — „Að ég meinti ekki það, sem ég sagði í því þar á undan". VÍKINGUR 61

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.