Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Blaðsíða 23
2/2. Sjór hefur gengið 70 km
á land upp í Hollandi. Gífurlegt
tjón hefur orðið í Belgíu, Bret-
landi og Frakklandi. Er þetta
talið mesta fárviðri í fjórar aldir.
— í Durban í Suður-Afríku varð
úrkoma 330 mm á 17 klst. og er
þetta mesta úrkoma þar, sem
mælst hefur. — Taugaveiki hef-
ur nú komið upp í Þýzkalandi.
•
3/2. Milljónir manna í nauðum
í Hollandi. Þar og í Bretlandi er
vitað um nærri 900 manns, sem
hafa farizt. Margra hundraða er
saknað enn. — Ekkert hefur
heyrzt til um 200 brezkra togara,
sem voru á veiðum á fárviðra-
svæðinu. — Eisenhower kallar 7.
flotann baadaríska frá Formósu.
•
4/2. Norðmenn veiða minni síld
en í fyrra. — Rússar eru að eyði-
leggja fiskimiðin við Bjarnarey
af ásettu ráði, segja norsku
sjómennirnir. — Fólkið í Hollandi
bíður á húsþökum og trjám, en
brimið molar húsin smátt og
smátt. Fjöldi fólks drukknaði í
gær, er hús og tré féllu í flóðið.
— Rússar hafa byggt fimm stóra
flugvelli við landamæri Noregs.
Á Múrmansk-svæðinu eru 50 flug-
vellir, og þar hafa 900 flugvélar
aðsetur. — Fiskþurrð í Grimsby
í s. 1. viku. Þá fengust 5 stpd.
fyrir kit. — Kirkjuklukkurnar
hringdu „garðabrot“ um allt Hol-
land, og vitað er um, að þrettán
hundruð manns hafa farizt í
flóðunum.
•
5/2. Búizt er við ofviðri á ný
á flóðasvæðunum. Hætta er á að
stóraukin rottuplága breiði út
sjúkdóma í Ostende. — íran
sviptir Rússa einkaleyfi til styrju-
'veiða. Hafði aðeins fengið 15%
hagnaðarins. — Vindhraði á Norð
arsjó og flóðasvæðinu komst upp
í 100 km í nótt. — Bretar veita
fé til endurnýjunar fiskveiðiflot-
anum. Þingið ræðir 30 milljóna
punda framlag í þessu skyni.
•
6/2. 175 þúsund hektarar akur-
lendis eru nú undir vatni í Hol-
landi. — Frost og fannkyngi er
víða í Evrópu. — Mestu ógnirn-
ar á flóðasvæðunum loks um
garð gengnar. — 50 stiga frost
mældist í Norður-Finnlandi í
fyrrinótt. Er það mesta frost í
manna minnum þar.
•
7/2. Jamaika fær fulla sjálf-
stjórn.— Eyjan St. Phil við Hol-
land er með öllu horfin. Ekki er
kunnugt um afdrif íbúanna, 400
talsins. — Einkaréttur til inn-
flutnings lyfja í Noregi. Norska
þingið samþykkti í dag að ríkið
tæki hann í sínar Iiendur. —
Mesti skipsbruni frá stríðslokum
varð í Hamborg á dögunum. Eld-
urinn kom upp í sænska kola-
skipinu „Antarctic Ocean“. —
Stórbruni varð í pappírsverk-
smiðju í Sarpsborg. — Flotafor-
ingi Bandarikjanna á Iíyrrahafi
vill hafnbann á Kína. Segir það
xitiloka afskipti Rússa af mögu-
legum vopnaviðskiptum Formósu-
manna og Kínverja á meginland-
inu. — Flóð brýtur ný skörð í
varnargarða á Englandi. Yfir 1600
manns hafa orðið flóðunum að
bráð. — Queen Mary lagðist
hjálparlaust, án hafnsögumanna-
báta, upp að bryggju í New York
í gær. En verkfallið stendur enn
yfir þár. — Rússar fjölga flug-
völlum, munu hafa milli 70-90
flugvelli meðfram vesturlanda-
mærum sínum.
•
10/2. ísbrjótar eru að verki á
Eyrarsundi. Þúsundir danskra
heimila vatnslaus vegna frosta. —
Hollendingar unna sér engrar
hvíldar við björgunarstarfið. Hús-
þökin standa upp úr vatnselgnum.
■•
11/2. Brezka stjórnin er and-
víg hafnbanni á Kína. — Óttazt
er að höfnina I Álaborg kunni að
leggja. — Finnar vilja alþjóðlega
hjálparstofnun á vegum Samein-
uðu þjóðanna. — Þýzkum stúdent-
um leyft að heyja einvígi og þar
með gömul erfðavenja tekin upp
aftur. — Færeyingar fá nýjan
„Tjaldur“, glæsilegt skip og vand-
að. Hann mun leysa af hólmi
góðan kunningja, gamla Gullfoss
okkar Islendinga.
•
12/2. Stóraukin flóðahætta í
Englandi. Þrjú fljót flæða yfir
bakka sína, þar sem sjávarflóðin
hafa gert mestan usla. — Tjónið
í HoIIandi áætlað 4,4 milljarðar
króna. — Eisenhower hafnar náð-
unarbeiðni Rosenbergshjónanna.
Athugaðir möguleikar á freðfisk-
sölu til Indlands og Ástralíu. SH
hyggst senda menn til að athuga
skilyrðin. — Rússar slíta stjórn-
málabandi við Israel.
•
13/2. Mikil síldveiði við Noreg.
Veiðin nemur 4,6 millj. hl. —
Norðurlandaráðið kemur saman í
dag í Kaupmannahöfn. — Bretar
og Egyptar hafa komizt að sam-
komulagi um Súdan. Súdansþing
ákveður eftir þrjú ár, hvort land-
ið verði sjálfstætt eða sameinað
Egyptalandi. — Gin- og klaufa-
veikin hefur magnazt nokkuð í
Danmörku og Hollandi.
•
14/2. Hollendingar eiga mikið
undir því, að ekki fari að hvessa
á útnorðan. Stærsti straumur
ársins yfir helgina.
/ •
16/2. Varnargarðar biluðu
hvergi um helgina, en fannkoma
teppir enn þjóðvegi á Bretlands-
eyjum.
•
17/2. Norðmenn vilja fá hol-
lenzkar stúlkur í sveitirnar. —
Eisenhower vill að Yaltasamning-
urinn verði ógiltur. — 11 þúsund
lesta franskt skip leitaði hafnar
í Napoli, vegna þess að eldur
hafði komið upp í því. — Reglu-
Framhald á bls. 67.
VIKINGUR
63