Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1953, Page 22
1/2. Bændur í Þingeyjarsýslu
bjóða fé til togarakaupa með
Húsvikingum. — Bandarísk flug-
vél á leið til Islands týndist milli
Goose Bay og Grænlands, tveir
menn voru í vélinni. — Eitt
dauðaslys af völdum bílaumferðar
á götum Akureyrar í 22 ár.
•
2/2. Brúarfoss verður fyrir
áfalli við England í ofviðrinu
þar. — Vonir standa til að verð-
lag á verkuðum saltfiski haldist
óbreytt, en ástæða er til að ótt-
ast lægra verð á óverkuðum salt-
fiski.
•
3/2. 350 tunnur sildar veiddust
í Friðarhöfn í Vestmannaeyjum í
gær.
•
4/2. Beinar flugsamgöngur hafn-
ar milli Reykjavíkur og Hamborg-
ar. Hekla átti að fara í fyrstu
förina kl. 5 í morgun. — Hundruð
erlendra togara á línumiðum
Djúpbátanna. Brýn nauðsyn á
gæzluskipi.
5/2. Martin Larsen segir, að
danskir vísindamenn hafi sýnt
íslendingum einstaka ókurteisi í
sambandi við handritamálið. —
Fimm fulltrúar íslands í Norður-
iandaráð hafa verið kjörnir. —
Bátaútvegurinn mun njóta svip-
aðra gjaldeyrisfríðinda og s. 1.
ár. — Undirbúningur að mikilli
fiskherzlu á Akureyri.
•
6/2. Fiskhjallar settir upp á
Sauðárkróki. — V.b. Drífa strand
aði í nótt við Kalmanstjörn á
Reykjanesi. Mannbjörg varð. —
Góður rækjuafli Bíldudalsbáta,
mest 900 kg. á bát í veiðiför.
Nokkuð af aflanum flutt út hrað-
fryst.
•
9/2. Skreiðarframleiðslan stór-
aukin í ár, e. t. v. 2—3 földuð.
Hún varð 2355 smálestir á s. 1.
ári, 20 millj. kr. virði.
•
10/2. Þjóðverjar fagna beinum
flugsamgöngum við ísland. Reykja
vík—Hamborg leiðin opnuð með
viðhöfn á Hamborgarflugvelli. —
Tröllafoss tefst vegna verkfalls
dráttarbáta í New York. Yfir 60
harðfiskhjallar reistir á Isafirði
á þessu ári. — Enskur prófessor,
sem gat lesið Islendingasögur 14
ára gamall, er kominn hingað til
að afla íslenzkra bóka fyrir há-
skóla í Lundúnum. — Rækju-
frysting hafin að nýju á ísafirði,
söluhorfur góðar. Allur kúfisk-
urinn seldur vestanhafs.
•
11/2. Jarðskjálftakippur varð á
Akureyri í gær. — Bjarni M.
Gíslason er eini Islendingurinn,
er til þessa hefur svarað áróðurs-
skrifum prófessoranna dönsku
út af handritamálinu. — Aflinn
hjá Akranesbátunum er 2 tonnum
meiri í róðri nú en í fyrra. Þakka
það útvíkkun fiskveiðitakmark-
anna. 14 Eyjabátar misstu yfir
200 bjóð austur við Vík í fyrra-
dag. Stórviðri var á, en botn
slæmur. — tsing felldi símalín-
una á 4 km kafla í Hornafirði,
staurar brotnuðu og vírar slitn-
uðu. Smávægilegri símabilanir
víða á Austur- og Norðurlandi
vegna storms og ísingar.
•
12/2. Athugaítir möguleikar á
freðfisksölu til tndlands og
Ástralíu. SH hyggst senda menn
til að athuga skilyrði. — Vist-
maður á Elliheimilinu Grund deyr
af gaseitrun.
•
13/2. Fossarnir, sem töfðust í
New York vegna verkfallsins,
lagðir af stað heim. — Saltfiskur
hefur verið seldur til Spánar og
Brazilíu.
•
17/2. Við höfum ekki grund-
völl fyrir réttarkröfum til Græn-
lands, að áliti Grænlandsnefndar,
og er réttur Dana talinn óvé-
fengjanlegur. — Gullfaxi flytur
vörur til Grænlands. Er frostið
yfir 40 stig, og var ekki hægt að
stöðva hreyflana.
•
18/2. íslaust hefur verið að
kalla má hér við land síðan árið
1918. — Togararnir flytja sig suð-
ur fyrir land, en þar mun vera
sæmilegur ufsaafli.
•
19/2. Deild í S.V.F.Í. hefur ver-
ið stofnuð í Kaupmannahöfn. Á
hún að vekja athygli erlendis á
störfum félagsins og björgunar-
afrekum — Sjómaður frá Ólafs-
vík féll útbyrðis og drukknaði. —
Fiski ekið frá Akranesi til hrað-
frystingar í Borgarnesi. Er það
tilraun til að bæta úr ríkjandi
atvinnuleysi í Borgarnesi. —
Farið er að veiða loðnu og beita
henni í verstöðvum við Faxaflóa.
Hefur aðeins veiðzt sunnan
Reykjaness. — Rauðmagaveiði er
hafin á Akureyri.
•
21/2. Verið er að athuga hvort
Islendingar misnoti penisilínlyf.
Ofnotkun lyfsins getur gert það
óvirkt. — íslenzkur verkfræðing-
ur finnur upp viðbót við amer-
ískan olíubrennara. Getur það
haft mikla fjárhagslega þýðingu.
— Togarar látnir reyna síldveið-
ar með flotvörpu fyrir Suður-
landi. Búizt er við, að vorgots-
síldin komi inn að ströndinni í
marz til að hrygna.
•
22/2. Stór hafsíld við Aust-
firði. Togarar fá hana i vörpur. —
V.b. Særún, sem gerð er út frá
Hafnarfirði, var nærri sigld í kaf
af danska saltskipinu Jane Lang
á fimmtudagskvöldið. — Sjómenn
í Stykkishólmi telja, að landhelg-
islínan nýja bæti fiskigöngurnar.
— Bandarísk flugvél flaug á ein-
um hreyfli norðan úr hafi, og
Framhald á bls. 67.
62
VIKINQUR