Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1968, Síða 42
LYSIXG A LANDHELGISGÆZLIIMI
óam
Lu. tíu jyrepu óLijju ía (j in u
1. Upphaf og stofnun. í júlí 1926
hófst regluleg- útgerð varðskipa, til
að taka við gæzlu landhelginnar af
dönskura varðskipum. Stofnunin fær
nafn: Landhelgisgæzla íslands, með
lögum 1967.
2. Markmið. Varðskipin eru frá
upphafi gerð út til löggæzlu- og
björgunarstarfa, vopnuð og búin
björgunartækjum. Með lögum 1967,
sem koma í stað laga frá 1935, er
varðskipum falin björgun og lög-
gæzla innan og utan landhelgi, og
áhafnir gerðar að ríkislögreglu-
mönnum.
3. Athafnasvæði. Aðalathafna-
svæði Landhelgisgæzlunnar (LHG)
er landhelgi íslands og úthafið um-
hverfis hana. Ennfremur veitir LGH
landsbyggðinni sérhverja hjálp í
mannúðarmálum, þar sem starfsafla
hennar verður beitt. LHG starfar á
sjó, í lofti og á landi.
4. Skipulag. Dómsmálaráðherra
er æðsti maður LHG. Ráðherrann
stjórnar LHG gegnum stöðu ráðu-
neytisstjóra. Yfirmaður starfsemi
LHG er forstjóri, sem sér um dag-
legan rekstur. Forstjóri stjórnar
rekstri starfsflota og rekstursdeilda.
Skipherrar stjórna skipum og yfir-
menn eru fyrir deildum.
5. Almenn störf og þjálfun. Varð-
skip eru stöðugt að gæzlu kringum
landið. Stöðug hlustvarzla er á 2182
kr/s. Megnið af deginum og kl. 20.oo
og 22.oo GMT er hlustað á 500 kr/s.
Varðskip sinna sérhverju neyðar-
kalli eða hjálparbeiðni, sem þeim
berst og hafa almenna björgunar-
gæzlu. Áhafnir varðskipa fá mikla
reynslu við öll björgunarstörf á sjó
og eru sérstaklega þjálfaðar til
þeirra starfa. Áhafnir flugvéla eru
reyndar og þjálfaðar til leitar og
björgunarstarfa úr lofti.
6. Starfsemi. Starfsemi starfsflota
LHG er stjórnað frá stjórnmiðstöð
í aðalskrifstofu LHG. Skip og flug-
vélar LHG eru sjálfstæðar bjöi'gun-
areiningar, þegar þau eru að gæzlu.
Sérhver aðili eða einstaklingur get-
ur gert LHG aðvart um hættu eða
beiðst hjálpar. Fer eftir aðstæðum
hverju sinni, hvort tilkynnt er til
stjórnmiðstöðvar LHG eða beint til
varðskipa. Algengast er að skip á
sjó eða aðrir aðilar geri varðskipum
aðvart beint, þegar skjótrar hjálpar
er þurfi. Skipherrar varðskipanna
taka þá sérhverja ákvörðun varð-
andi athafnir varðskipsins til björg-
unar eða aðstoðar.
7. Starfsafli. Starfsafli LHG til
björgunarstarfa skiptist í stjórnmið-
stöð, loftskeytastöð, skipaflota og
flugvélar ásamt mannafla. Stjórn-
miðstöð og loftskeytastöð starfa á
venjulegum vinnutíma og þegar
nauðsyn krefur. — Stjórnmiðstöð
stjórnar ferðum skipa og flugvéla
gegnum loftskeytastöð. LHG gerir
nú út 3 varðskip. Skipin eru 208,
693 og 882 brúttólestir að stærð.
Flugvélar eru ein Skymaster DC—4
og ein Bell Air þriggja farþega
þyrla. Varðskipin starfa við öll skil-
yrði og geta verið dögum saman á
sjó. Skymastervélin er útbúin í löng
leitarflug og þyrlan starfar á styttri
vegalengdum. Varðskipin eru útbú-
in til allra björgunarstarfa á sjó og
tvö þau stærstu geta flutt þyrluna
og þyrlur varnarliðsins. Flugvélarn-
ar eru útbúnar til leitar og björg-
unar úr lofti.
8. Fjarskipti. Stjórnmiðstöð, varð-
skip og Skymaster geta haft fjar-
skipti á venjulegum skipatíðnum á
lang- og miðbylgjum og á hvaða
bylgjum sem er á stuttbylgjusvið-
inu. Einnig á VHF bylgjum flugvéla
og skipa. Þyrlan getur haft fjar-
skipti á VHF bylgjum flugvéla, á
2182, 2790 og nokkrum öðrum tíðn-
um á miðbylgjum. Flug VHF tíðnir
varðskipa og þyrla eru: 118,1 —
123.5 — 141,0 og 121,5 mr/s sem er
flugneyðarbylgjan. — Skymastervél
hefur VHF bylgjurnar: 119,7 —
121.5 — 123,5 — 118,7 —. 119,1 —
141,0 127,9 — 118,9 — 126,8 og
118,1, sem er uppkallsbylgja flug-
véla. Varðskipin hafa skipa VHF
bylgjur: 156,8 mr/s. og nokkrar aðr-
ar tíðnir á því sviði.
9. Viðvörunarkerfi. Sérhver aðili
eða einstaklingur getur tilkynnt
LHG um hættu eða beðið um hjálp.
Algengast er að skip, sem þurfa á
hjálp að halda, kalli á varðskip á
2182 kr/s. Aðilar í landi koma
beiðni sinni eftir aðstæðum til
stjórnarmiðstöðvar LHG eða hafa
samband við varðskip gegnum
strandstöðvar landsímans. Stjórn-
miðstöð LHG, sími 10230, er opin á
venjulegum vinnutíma, og þegar
þörf krefur. Utan vinnutíma er
hringt í 10231 og svarar þá sjálf-
svari, sem segir hvern eigi að
hringja í og símanúmer hans.
10. Samvinna við aðra björgunar-
aðila. LHG starfar að mestu sjálf-
stætt við björgunarstörf á hafinu.
Þegar nauðsyn krefur kallar LHG
þá björgunaraðila og einstaklinga
sér til aðstoðar, sem tiltækir eru, og
stjórnar þá samræmdum aðgerðum
þeirra aðila. LHG veitir sérhverjum
björgunaraðila, sem hefur stjórn
björgunaraðgerða á hendi, alla þá
hjálp sem möguleg er, og hagar þá
aðgerðum sínum samkvæmt vilja
hjálparbeiðanda. — Stjórnmiðstöð
LHG er í beinu f jarritasambandi við
björgunarmiðstöð varnarliðsins á
Keflavikurflugvelli.
Ólafur V. Sigurðsson.
*
42
VÍKINGUR