Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Qupperneq 11
stundaði sjó að meira eða minna
leyti og hefur svo verið til skamms
tíma. Sjómannsstarfið hefur frá
upphafi Islandsbyggðar traustlega
samfléttast þjóðarbúinu og verið
styrkasti burðarás þess.
I dag er hægt að fletta upp í
hagskýrslum til að sjá hve stór
hlutur sjávaraflinn er í þjóðar-
framleiðslunni. Þær tölur munu
lítt véfengdar, þrátt fyrir tor-
tryggni almennings þegar talna-
flækjur eru annars vegar. En þjóð-
in er sér þess vel meðvitandi að
þrátt fyrir breytta búskaparhætti,
aukna iðnvæðingu og fjölbreyttari
atvinnuvegi, þá er sjófangið lang-
sterkasta stoðin undir íslensku at-
vinnulífi og væri henni kippt burt
þá yrði hér efnahagslegt og menn-
ingarlegt hrun. Þjóðin veit líka —
og því má hún aldrei gleyma að
sjávarafli fæst ekki án sjómanna.
En þótt ísl. þjóðin hafi í gegn
um aldirnar framar öllu öðru átt
efnahagslega afkomu sína undir
þeim verðmætum og þeirri björg,
sem sjómennirnir hafa dregið á
land, þá er vert að minnast þess að
sjórinn og sjómannsstarfið hefur
verið íslendingum farsæll skóli.
Þeim þætti hefur einatt verið of
lítill gaumur gefinn.
Sjósóknin hefur frá upphafi verið
ísl. þjóðinni lífsnauðsyn, sú kvöð,
sem ekki varð undan komist —
ekki fámennri stétt heldur öllum
almenningi. Og eins og hver önnur
starfsgrein á hún sinn persónu-
leika. Persónuleiki sjómannsstarfs-
ins hafði þeim mun meiri áhrif á
þjóðina, sem sjómannsstarfið var
almennara og skilningur á því
víðtækari í þjóðfélaginu. Sjó-
mennskan rauf ekki einungis
einangrun þjóðarinnar frá öðrum
þjóðum, heldur einnig innanlands.
Fólk frá afskekktum stöðum sótti
til verstöðvanna og blandaði þar
geði og háttum við heimamenn.
Það flutti heim með sér ný vinnu-
brögð og siði. Til voru líka afskekkt
byggðarlög, sem fylltust af að-
o
SKIPSTJÓRASTÓLLINN,
SEM HÆFIR ÖLLUM SKIPUM.
SKIPPER má leggja saman.
SKIPPER vegur aðeins 34 kg.
SKIPPER er fóðraður með leðurlíki.
SKIPPER er hægt að snúa 360°
SKIPPER er mjög vandaður og
þægilegur — algjörlega ryöfrír.
Allar upplýsingar fást hjá okkur.
w
SKIPASMÍÐASTÖÐIN
SKIPAVÍK HF.
Stykkishólmi Sími 93-8289
VlKINGUR
243