Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Side 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Side 12
komufólki á vertíðum. Og þó sumir teldu útróðramenn ekki til Guðs bestu barna, þá sýnir sagan að slíku var meira flíkað í gaman- málum en alvöru. Þar tókust einatt mægðir og þar hnýttust oft vináttubönd, sem ekki rofnuðu æfina út. Þessi mikla hreyfing fólksins landshluta á milli, sem sjómennskan útheimti, á örugglega sinn sterka þátt í því að tunga landsmanna greindist ekki meira í mállýskur en raun varð á. Þó að aðbúnaðurinn í verstöðvun- um væri frumstæður þá er þess að gæta að fæstir, sem þangað sóttu komu frá háreistum húsakynnum eða nægtaborði. Það, sem aflaðist — þótt oft væri lítið var þó ætt, svo hungurvofan réði þar sjaldan ríkj- um. Þó sjórinn væri sóttur af ofur- kappi þá réðu vindar og brim því að frístundir voru töluverðar og þær nýttust furðanlega til andlegs og líkamslegs þroska. Þar voru æfðar þær íþróttir, sem þá tíðkuð- ust, svo sem glíma og ýmsar afl- raunir. Fimir léttleikamenn stukku yfir garða og torfærur. Einn var sá leikur, sem nú er löngu horfinn af sjónarsviðinu. Það var að stökkva jafnfætis upp úr tunnu án þess að koma við barmana. Sumir stukku ofaní tunnu. Það léku færri, þó stökkið sjálft væri ekki eins þvingað þá var meiðsla- hættan meiri ef ekki var komið nákvæmlega rétt ofaní tunnuna. Hagir menn smíðuðu ýmsa hluti til bús eða skips, jafnvel list- muni og aðrir lærðu þar af. Rímur voru kveðnar, ein og ein bók kom í leitirnar og var lesin við glætu frá ljóra eða litlu ljósi. Þar var látið fjúka í kviðlíngum og þó efnið væri misjafnt að andagift og stundum nokkuð hrjúft þá var málið agað undir form og rím. Þar blómstraði þjóðsagan og þjóðtrúin, draum- speki, dultrú og margskonar fyrir- boðar, einkum þeir, sem bentu til þess er verða vildi á komandi ver- tíð, afli, farsæld, erfiðleikar, feigð. Og svo var það hið sígilda umræðu efni — sjórinn og sjósóknin — Æfintýri hafsins. Þar var af nógu að taka og umræðuefnið óþrjót- andi. Sjórinn, skipin, aflabrögðin, mennirnir, veðrið. Sagt var frá æsilegum siglingum þegar söng í rá og sauð á keipum. Þá voru kveðnar dýrar siglingastemmur og hvergi leyft af röddinni ef heyrast átti gegn um hinn breiða organtón hvítfaldaðra ægisdætra, sem fjöl- þreifar seildust til skips og manna og vildu færa til síns heima. En það var ekki alltaf blásandi byr. Oftar var beitivindur eða barningur. Þá þurfti að hanga á árunum klukkustund eftir klukku- stund og reynt að berja til lands, með blóðbragð í munni og þreytudofna handleggi, þótt tím- unum saman væri ekki hægt að sjá að það steinmarkaði. Þá var það seiglan — andleg og líkamleg seigla, sem gilti um fram allt. Láta ekki sljóleika ofurþreyt- unnar brjóta niður lífsviljann og slæva varúðina. I mörgum tilfell- um var það þá tilhugsunin um af- komu konu Og barna í lágu hreysi við lítinn kost, sem hélt baráttu- viljanum uppi fremur en dauða- geigurinn. I þessari baráttu voru engar samningsleiðir til — aðeins sigur eða dauði. Þar urðu allir að duga til hins ýtrasta og sameigin- lega. Þar gat enginn skorist úr leik eða farið sínar eigin leiðir. Allir voru á sama báti tengdir sameig- inlegum örlögum og það er reynsla, sem seint gleymist og á stóran þátt í að móta skapgerð sjómannsins. En hafið var ekki alltaf í vígahug. Stundum var það slétt og blítt og vaggaði gnoðinni værðarlega í faðmi sér. stundum smáglettið, jafnvel hrekkjótt eins og til að minna á að hér dugar ekkert gáttlæti. Maður, mundu hvar þú ert staddur. Þú skalt ekki halda að þú sitjir heima á fleti þínu og strjúkir kettinum eða gasprir við konur. En skrafdrýgst varð mönnum um aflabrögðin. Einnig þar var oft skammt öfganna á milli. Stundum nærri óviðráðanlegur landburður, stundum ördeyða. Þeir eldri sögðu frá draumaróðrinum, þegar komið var að landi í ljúfu leiði með drekkhalðið skip. I lendingunni var einatt beðið með brennandi spurn. Er hin langþráða björg loks að berast? Er útmánaðasveltunni loks lokið? Þar mátti jafnvel sjá fólk úr TRETORN GAMLA GÓÐA MERKIÐ SJÓSTÍGVÉLIN Fullhá, álímd, lág og með lausum svampgúmmísóla. TRETORN GÚMMlVETLINGAR Einkaumboðsmenn: JÓN BERGSSON HF. Langholtsvegi 82, Reykjavík Sími36579. 244 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.