Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Qupperneq 13
fjarlægum sveitum komið með
seilarólar og slógsekki til að reyna
að afla sér nýmetis og margir báru
þess merki að þar var ekki vanþörf
á.
Var nokkur furða þó þetta gjöf-
ula haf væri blessað, þrátt fyrir
allt, sem það tók. Starf sjómanns-
ins var ekki einungis virðingar-
starf, það hvíldi yfir því viss helgi.
Sjómaður í skinnklæðum var frið-
helgur. Yfirvöld máttu helst ekki
taka hann fastann fyrir afbrot, fyrr
en hann hafði lagt af sér skinn-
klæðin. Það var ekki fyrr en seinna
— eftir að nokkrir menn höfðu
uppgötvað að hægt var að græða
meira á því að versla með það, sem
aðrir sóttu í sjóinn, en að sækja
sjálfir þangað til fanga að orðatil-
tækið „eins og versti sjóari“ komst
í tísku og var skörulega á lofti
haldið af ungri en fámennri stétt
manna, sem aldrei höfðu í salt
vatn migið, eða þótt liðtækir til
sjóferða og harðræða, en fundu
undir niðri til þess að almenningur
mat þá, þrátt fyrir meiri efni og
fínni ígangsklæði, minni að
rpanngildi. Þrátt fyrir hetjulega
baráttu þá var ekki alltaf hægt að
hrósa sigri. Hafið er gjöfult en það
er líka stórtækt til fórna. Ég efast
um að nokkur þjóð í víðri veröld
hafi goldið helsta atvinnuvegi sín-
um eins' langvarandi og árvisst
mann- og eignatjón. Fáar munu
þær fjölskyldur vera, sem ekki hafa
misst náið skyldmenni í hafið. Ef
til vill er það ekki tilviljun ein að
kona Njarðar, hins norræna
sjávarguðs, hét einmitt Skaði. Það
sýnir betur en flest annað hversu
brýn nauðsyn sjósóknin var ís-
lendingum, að þessi mannskæði
atvinnuvegur skyldi stöðugt eflast
í stað þess að leggjast niður. Það
sýnir að hér var beinlínis um lífið
að tefla, ekki einungis þeirra, sem
sjóinn sóttu, heldur og lands-
manna allra. Þessi mannskæða
styrjöld er tilverustríð islensku
VÍKINGUR
þjóðarinnar og hana hafa sjó-
mennirnir háð í 1100 ár.
„Eftir súðbyrðings för, kom
hinn seglprúði knörr, eftir segl-
skipið vélknúin skeið. En þótt
tækjum sé breytt, þá er eðlið samt
eitt — eins og ætlunarverkið, sem
sjómannsins beið.“ Svo kvað Örn
Arnarsson og kom þar langri sögu
fyrir í stuttu máli eins og honum
var lagið. Enn dýfa íslendingar ár-
um í sjó þó hin „vélknúna skeið“ af
ýmsum stærðum og gerðum sé
aðal farkosturinn í dag til verslun-
arsiglinga og fiskifanga. Enn er
hafið samt við sig, viðsjált og þó
heillandi í sínum síbreytilegu
töframyndum.
Heimur sjómannsins er heimur
út af fyrir sig, Heimur öfgafullra
andstæðna og örra sviðskiptinga.
Vinnustaður sjómannsins er eng-
um öðrum vinnustað líkur. Þetta
litla samfélag um borð er samstæð
heild. Hér er þröngbýlt, og ekki
hægt að leita félagsskapar út fyrir
hópinn. Innan þessa hóps verður
að leita vina og sáJufélaga eða vera
án þeirra. Hér verður hver að búa
við þær aðstæður, sem fyrir hendi
eru hvort, sem honum er það ljúft
eða leitt. Það reynir því mjög á
aðlögunar og umgengnishæfni
manna, en sameiginleg barátta og
markmið, sem allir verða að taka
þátt í, hvaða starfi, sem þeir gegna
á skipinu þjappar þeim saman
þótt ólíkir séu, treystir þá til sam-
eiginlegs átaks og samheldni.
Hér blasa þau sannindi við, sem
mörgum vill gleymast í landi að
sá, sem reynir að komast hjá að
gera félagslega skyldu sína, svíkur
ekki einungis samfélag sitt, heldur
einnig sjálfan sig. Hér verður hver
að gera skyldu sína og helst dálítið
meira. Nótt, dagur, helgidagur,
hátíðisdagur — þessi tímamark-
andi hugtök eru ekki til á sjónum.
Þar verður vinnan að hafa sinn
gang án eyktarmarka. Fiskimönn-
unum dugar ekki að gefa eftir í
aflahrotunum. Fiskigöngurnar
hafa sinn óvissa tíma, sem nota
verður meðan er. Þá er þrælast
áfram í samblandi af villtri veiði-
gleði og illri nauðsyn. Blóðugir og
slorugir upp fyrir haus og lítið
skeytt um þreytu, svefnleysi, eða
sára lófa. Og því miður hefur allt
of oft í því ofurkappi, sjó og vindi
verið boðinn byrginn, meira en
skipið þoldi og landi aldrei náð,
með sinn harðsótta feng. En það
eru einmitt erfiðleikarnir, sem
kalla á samhjálp og drengskap. Þar
hefur margur meðalmaðurinn ekki
hlífst við að leggja lífið að veði til
að bjarga félaga sínum án þess að
þeirra á milli væri nokkur vinátta.
Þar koma til hin rótgrónu, óskráðu
lög sjómannsins og til að fram-
fylgja þeim þarf enga lögggæslu.
SP ARIS JÓÐUR
VÉLSTJÓRA
Hátúni 4a
(á homi Laugavegs og Nóa-
túns)
Afgreiðslutími kl. 09,30—15,30
og 16,30—18,00
Við bjóðum viðskiptavinum vor-
um upp á alla almenna þjónustu
og næg bílastæði
®28577
245