Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Page 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Page 17
Hann á að vera fullkominn Um stýrimanninn: Ef hann er vingjarnlegur, er hann ísmeygilegur. Ef hann er alvörugefinn, er hann skapvondur. Ef hann er ungur, kann hann ekkert. Ef hann er gamall, er hann mosagróinn forngripur. Ef hann er flokksbundinn, er hann einþykkur. Ef hann er það ekki, er hann aumingi, sem þorir ekki að taka afstöðu. Ef hann er kirkjurækinn, er hann hræsnari. Ef hann sækir ekki kirkju, er hann heiðingi. Ef hann drekkur, er hann fylli- bytta. Ef hann drekkur ekki, er hann leiðinlegur. Ef hann talar við alla, er hann kjaftaskur. Ef hann gerir það ekki, er hann steingerfingur. Ef hann vill halda reglur, er hann snuðrari. Ef hann gerir það ekki, er hann óábyggilegur. Ef hann er eftirlitssamur, er hann njósnari. Ef hann er getir það ekki, er hann kærulaus. Hann verður að vera þolinmóður, eins og engiil. Húðþykkur eins og flóðhestur. Kænn eins og refur. Hugrakkur eins og ljón. Blindur eins og moldvarpa. Þögull, sem gröfin. í stuttu máli: Vita allt. Sjá allt, segja ekkert. En standa samt í stöðu sinni. Ur dönsku. Leiðréttingar. Slæmar villur slæddust í textann við forsíðumynd síðasta tbl. Víkings. Frúin á myndinni, sem tók við heiðursmerkinu að manni sínum Guðm. E. Guðmunds- syni bryta fjarverandi, heitir Elínborg Jónsdóttir. Stúlkan Guðbjörg, er dóttir Jóns Sigurðssonar en ekki Eiríkssonar. Við birtum myndina aftur og biðjum mikillega afsökunar á þessum mistökum. Guðmundur E. Guðmundsson bryti, einn af elstu og virtustu starfsmönnum á skipum El. Hann átti 30 ára starfsafmæli 8. des. í fyrra. VÍKINGUR 249

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.