Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Qupperneq 18
Lloyd's Register
og Shipping
I mörg ár flokkuðu menn
skip á mismunandi hátt, en
nú er það flokkurinn A1 sem
ÖH skip verða að fullnægja
hvað styrkleika og búnað
snertir
Skipalisti Lloyd’s er í sambandi
við vátryggingafélagið. Venjulega
hafa menn tilhneygingu til þess að
skoða Lloyd’s, sem eitt fyrirtæki,
en í rauninni eru vátrygginga-
félagið og skipalistinn algjörlega
aðskildar stofnanir.
Vátryggingafélagið hóf starf-
semi sína í London árið 1686. Til
fjáröflunar var safnað ábyrgðar-
mönnum. Það var þröngur hópur
manna, sem með fjáreign sinni
ábyrgðust þær tryggingar, sem
stofnunin veitti, og þannig er það
enn þann dag í dag.
AðaJstöðvar Lloyd’s hafa að-
setur við Leadenhall Street/Lime
Street í London. Þar eru nú, eins
og fyrir 290 árum, skráðar trygg-
ingar á öllu hugsanlegu. Allt byrj-
aði þetta á krá einni í London, þar
sem skipstjórar, sem verið höfðu í
langsiglingu, hittust og ræddu sín
á milli, hætturnar í sjóferðum.
Eigandi kráarinnar, Edward
Lloyd, fylgdist með viðræðunum
og þannig varð það hann, sem varð
upphafsmaður að því, að stofnað
var hið fyrsta raunverulega sjóvá-
tryggingafélag heims. Til að byrja
með var eingöngu um sjótrygg-
ingar að ræða, en smátt og smátt
tók stofnunin að sér tryggingar á
öllu, milli himins og jarðar.
Þegar, hinir ýmsu ábyrgðar-
menn höfðu orðið ásáttir um að
taka að sér áhættuna, voru gefin út
skírteini fyrir því, sem sönnun þess
að skaðinn var tryggður. Sam-
göngutæki nútímans, eins og flug-
vélar og risaskip, eru afar dýr tæki,
og þessvegna hefur orðið að auka
fjölda ábyrgðarmanna, en allir
vérða að hafa budduna í lagi, til
þess að geta verið með.
f aðalskrifstofu Lloyd’s í
London sitja miðlarar, frá hinum
ýmsu félögum, sem eru fulltrúar
þeirra, sem hagsmuna eiga að
gæta vegna ábyrgðar fyrirtækja og
verzla með áhættu og hluta hagn-
aðar, eftir sömu reglum, sem gilda
í öllum kauphöllum heims.
Skipalisti Lloyd’s er angi vá-
tryggingastofnuninnar og getur
rakið sögu sína allt frá árinu 1760.
f 216 ár hefur stofnunin unnið við
flokkun skipa, og árangurinn er
fjöldi bóka, sem innihalda upplýs-
ingar um skip, sem flokkuð hafa
verið af Lloyd°s. Merkið “A1 at
Lloyd’s“, gefur til kynna gæðin
hvar sem er í heiminum. Skipalisti
Lloyd’s er í ár 2 stór bindi, sem
hvort um sig er yfir 2000 síður.
Aðalskrifstofa Skipalista Lloyd’s
er til húsa við Fenchurch Street í
London — götu sem er samhliða
umráðasvæði vátryggingafélags-
ins. Lloyd’s skipalistinn hefur nú-
orðið mjög tæknimenntað starfslið
um 1500 manns og hefur skrifstof-
ur á 29 stöðum í Englandi og 200
Að mörgu er að hyggja þegar skip eru smíðuð. Hvert smáatriði á vís-
indalega forsögu og er háð fyrirmælum Lloyds, eða annarra flokkunar-
félaga.
250
VÍKINGUR