Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Blaðsíða 21
Heraygutten
Björgunarskip norðmanna
björguðu á árinu 1975 44 sjó-
mönnum úr bráðum lífsháska.
22 skipum var bjargað frá því að
farast. Tilsvarandi tölur frá 1974
eru 13 manns og 17 skipum bjarg-
að.
Þá má einnig geta þess, að 1975
drógu norsk björgunarskip 531
stærri og 253 minni skip með 3901
manns um borð, til hafnar. Sex
bátum með samtals 38 mönnum
var leiðbeint í höfn.
Framkvæmdir voru 148 sjúkra-
flutningar og 185 kafanir frosk-
manna vegna ýmissa tilfella.
í 879 tilfellum var tilkynnt um
báta sem voru sambandslausir við
land.
Frá því er norska Slysavarnar-
félagið var stofnað 1891 og fram til
31. desember 1975 hefir 4689
mannslífum verið bjargað og
reiknast til að um það bil einu
mannslífi hafi verið bjargað á viku
þaú 81 ár sem félagið hefur starfað.
258,219 manns hefir verið veitt
aðstoð við meira og minna erfiðar
kringumstæður.
VÍKINGUR
Laust fyrir síðustu áramót var
héraðsstjórninni í Heröy í N-Nor-
egi afhentur sjúkrabátur, sem ætl-
að er það hlutverk, að hafa með
höndum skyndihjálp og annast
læknisaðstoð við slys á fiskibátum
við ströndina, aðallega innanskers
og ekki er gert ráð fyrir að starfs-
svið sjúkrabátsins nái lengra en 5
sjóm. til hafs.
Báturinn er 46 feta langur og er
ganghraðinn um 20 sjóm. og
smíðaverð með útbúnaði um 28
millj. ísi. kr.
Ekkert hefur til sparað að gera
sjúkrabátinn sem bezt úr garði svo
að hann geti gegnt sínu hlutverki
sem fljótandi líknarstofnun. Efni
skrokksins er sterk álblanda.
Sjúkraherbergi er sérstaklega
hannað til minniháttar læknisað-
gerðar og á þann hátt að læknirinn
fái sem bezta aðstöðu. Það er
rúmgott og hægt að komast að
sjúklingnum frá öllum hliðum. Þá
er reynt að koma í veg fyrir snögg-
ar hreyfingar og mikil vinna verið
lögð í að fyrirbyggja hávaða frá
vélum og hverskonar titring. Á
fullri ferð á hávaðinn ekki að fara
fram úr 67 desibel í sjúkraklefa og
63 í stýrishúsi. Öll aðstaða til flutn-
ings sjúklinga að og frá sjúkraklefa
er sérstaklega góð. Heitt og kalt
vatn, geymsla fyrir súrefnistæki og
önnur nauðsynlegustu læknatæki,
ásamt snyrtiklefa. Þá er sjúkra-
bátnum ætlað að aðstoða með
skyndihjálp á afskektari stöðum ef
slíkt tilfelli koma fyrir. Hann getur
einnig flutt 14 farþega styttri
vegalengdir. Læknir hefur rúm-
góðan klefá frammi í bátnum.
Fólk á þessum norðlægu slóðum
fagnar komu þessa sjúkrabáts, og
væntir þess að hann eigi eftir að
gegna mikilvægu hiutverki í
hverskonar slysa- og neyðartilfell-
um.
Þykir mikil hugkvæmni og fag-
þekking koma fram í smíði og
búnaði öllum, enda ekkert verið til
sparað að gera þessa fljótandi
líknarstofnun sem bezt úr garði.
G.j.
253