Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Síða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1976, Síða 25
Fjórir Skotar og einn íri fóru eitt sinn í skemmtireisu til Parísar. Þeir fengu sér hressingu á einu af hinum mörgu útiveitingahúsum. Allt í einu segir einn Skotinn: — Ég borga allt saman. Félagarnir urðu undrandi, en daginn eftir stóð í Parísarblöðunum: „Hörku slagsmál! Ofsareiður Skoti réðist með barsmíð á írskan búktal- ara.“ ★ Enn ein Skotasaga Ungur maður í einkennisbúningi Hjálpræðishersins var á leiðinni til Innvernes, sem er norðarlega í Skot- landi. Á móti honum í klefanum sat gamall Háskoti, er horfði á hinn unga hermann forvitnum augum. — Loks stóðst sá gamli ekki mátið og spurði: „Hvaða herdeild tilheyrir þú ungi maður, ég minnist ekki að hafa séð þennan einkennisbúning fyrr.“ „Ég er í Hjálpræðishernum,“ sagði ungi maðurinn, „og ég er á leið til Innver- nes til að berjast við djöfulinn. — Því næst berst ég við hann í Aberdeen, svo í Edinborg og svo áfram.“ „Þetta líkar mér, vinur,“ hrópaði gamli Skotinn og lyfti sér í sætinu. „Bara hrektu djöfulinn suður á bóg- inn — en skildu ekki við hann fyrr en hann er kominn alla leið yfir til Englands!“ ★ „Geturðu lánað henni mömmu skæri í nokkrar mínútur?“ spurði Óli litli nágrannakonuna. „Alveg sjálfsagt, en á mamma þín virkilega ekki skæri?“ „Jú, en hún tímir ekki að nota þau til að opna sardínudósina." Með leyfi Hennar Hótignar. Háttsettur breti kom kvöld nokkurt inn í einn fínasta klúbb í New York, skellti sér úr jakkanum og hengdi hann á stólbakið. Yfirþjónninn kom að vörmu spori og tilkynnti bretanum að slíkt væri algerlega bannað á þessum stað. „Ég hef sérstakt leyfi,“ svaraði bret- inn. „Leyfi? Frá hverjum?" „Bretadrottningu. Ég var fyrir skömmu gestur í Buckingham Palace og ég fór úr jakkanum. Drottningin lvfti vísifingrinum: „Þetta megið þér aðeins gera í Ameríku.“ ★ Þú ert allt of skynsöm, dóttir góð. Karlmenn vilja heldur giftast heimsk- um konum. Ekki núna, mamma. Þetta var bara í þína tíð. ★ Sjúkdómsgreining: Taugaveiklun. Sýslumaðurinn: „Þér heitið Jón Jónsson. Eruð þér faðir barnsins, sem stúlkan kennir yður?“ Jón: „Já, það err ég.“ Sýslumaður: „Nú, þér meðgangið, þá er eftir að tala um borgunina.“ Jón: „Ég hafði nú ekki hugsað mér að taka neina borgun. Þetta var bara greiðasemi.“ ★ Er hérna selt lýsi á flöskum? Já, það er hérna, drengur minn! Þér ættuð að skammast yðar! Með leyfi Hennar Hátignar. Háttsettur breti kom kvöld nokkurt inn á einn fínasta klúbb í New York, skellti sér úr jakkanum og hengdi hann á stólbakið. Yfirþjónninn kom að vörmu spori og tilkynnti bretanum að slíkt væri algerlega bannað á þessum stað. — Ég hefi sérstakt leyfi, svaraði bretinn. „Leifi? — Frá hverjum?“ „Bretadrotningu.“ Eg var fyrir skömmu gestur í Buckingham Palace, og fór úr jakkanum. Drottningin lyfti visifingrinum: „Þetta megið þér aðeins gera í Ameríku."

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.